Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Héðinsfjarðargöng

Kristján L. Möller fékk samgönguráðuneytið m.a. út á það hve ötullega hann barðist fyrir Héðinsfjarðargöngunum. Það hlýtur að ganga kraftaverki næst að það mál skyldi ná fram að ganga svo skjótt og nú segja gárungarnir að þau verði tvöfölduð!  Ég tel það nú varla skynsamlegt þar sem siglfirðingar mæta varla neinum þegar þeir flýja bæinnWink.  Ég var hins vegar á Vestfjörðum um helgina og þar var stórskemmtileg uppákoma.  Við fórum til Flateyrar með rútu og á bakaleiðinni stöðvaðist rútan í göngunum og viti menn.  Í stóru útskoti (helli) biðu okkar kræsingar sem konur í þjóðbúningum reiddu fram, harmonikkuleikur og kertaljós.  Stemmningin var dulmögnuð og þetta var ólýsanlegt.  Lögreglan stóð vaktina svo enginn færi sér að voða. 
Það væri ekki óhugsandi að gera stóran helli í Héðinsfjarðargöngin sem hugsuð væru fyrir stuttar móttökur.  Þar mætti sýna hið ægifagra grjót sem sprengjumenn hafa fundið í tonnavís þar inni.  Begið þarna er með fallega kristalla og einnig finnst jaspís o.fl. í fjöllunum.  Hugsanlega mætti gera út á tröll og forynjur svo fleiri hugmyndum sé varpað fram.  Hellabyggð mætti einnig reisa í tengslum við göngin fyrir ævintýragjarna sem jafnvel vildu "leggjast út", iðka bjargsig, stunda sauðaþjófnað eða annað þjóðlegt. 
Já fyrst Kristján fékk þessi göng í gegn þá er hann pottþétt réttur maður í réttum stól.
Til hamingju Kristján og gangi þér vel.

mbl.is Kristján: Fékk draumastarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Bjarnason

Björn Bjarnason mun gegna embætti dóms og kirkjumálaráðherra áfram.  Björn er mjög vandaður maður og á að mínu viti ekki skilið þá umfjöllun sem viðhöfð hefur verið um hann og hans persónu að undanförnu.  Auðvitað er enginn hafin yfir gagnrýni en fyrr má nú vera.  Björn er með fyrstu stjórnmálamönnum sem opnaði heimasíðu og gerði þannig almenningi auðveldara um vik að fylgjast með frá fyrstu hendi hvað hann var að fást við á hverjum tíma.  Björn hefur þannig verið kyndilberi upplýsingaflæðis og aukið þar með þekkingu og völd almennings.   Ég styð þessa ákvörðun Geirs H. Haarde heils hugar.  Eins og aðra ráðherra í Ríkisstjórninni.
P.S. Auðvitað met ég Samfylkingarfólkið öðruvísi en er staðráðin í að leyfa því að sanna sig.Cool  Hef enga þörf fyrir að dæma þau fyrirfram.  Þetta er örugglega vandað fólk með hagsmuni þjóðarinnar í fyrirúmi.

Steingrímur spriklar

Steingrímur J. Sigfússon kveðst telja eðlilegt að Samfylkyngin fái umboð til stjórnarmyndunar frá forseta vorum Ólafi Ragnari Grímssyni fyrst stjórnin hafi sprungið.  Það verður spennandi að vita hvort forsetinn reynir einhvern einleik í málinu?
mbl.is Steingrímur: Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar allt of hægrisinnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott samstarf

Ég vona að  þetta takist hjá umræddum flokkum.  Ég hef fulla trú á að þeir geti unnið saman farsællega fyrir þjóðina.  Ég vona líka að menn fari tiltölulega ósárir frá borði.  Meirihlutinn var einfaldlega of lítill til að halda í viðkvæmum og erfiðum málum.
mbl.is Formlegar stjórnarmyndunarviðræður hefjast væntanlega á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameiginleg niðurstaða um samstarf

Það er ljóst að báðir þessir flokkar hafa hug á öflugu Ríkisstjórnarsamstarfi.  Það verður komin ný stjórn ef að líkum lætur eftir helgi.
mbl.is Geir og Ingibjörg sest á fund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný stjórn eða sama stjórn?

Ég hallaðist á sínum tíma að því að Viðeyjarstjórnin ætti að framlengja líf sitt eftir að Alþýðuflokkurinn tapaði þremur þingmönnum og stjórnin hélt með einungis eins manns meirihluta.  Ég veit ekki hvað er rétt nú en svo virðist sem reynt verði til þrautar að halda núverandi stjórnarsamstarfi áfram.   Hvort það skilar áragngri virðist óljóst.  Jafnvel minni líkur á því eftir því sem tíminn líður.  Ég hygg að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur gætu vel unnið saman og náð góðum árangri.  Viðeyjarstjórnin var góð stjórn og markaði mörg af þeim framfaramálum sem við njótum í dag.  Efnahagsmál þjóðarinnar hafa komist í jafnvægi og stöðugleiki ríkir í þeim.   Það er forsenda fyrir velferðarkerfið okkar að það getir þrifist, eflst og haldið fengnum hlut. 
mbl.is Vaxandi vantrú á framhald stjórnarsamstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað næst?

Ég bara spyr? 
--
Efnamenn sem margir eiga hagsmuni undir eiga ekki að misnota aðstöðu sína umfram aðra með þeim hætti sem Jóhannes gerði.  Ég hef fulla skömm á því þó ég geti verið þakklát fyrir lægra vöruverð á Íslandi á sumum sviðum.  Þeir sem eiga bæði lágvöruverslanirnar og hinar geta auðveldlega spilað úr spilunum sér í hag. 
--
Illugi er hins vegar vænsti maður og ég get alveg séð hann fyrir mér sem umhverfisráðherra eða Heilbrigðis og Tryggingaráðherra.  Reyndar mætti alveg sameina Félagsmálaráðuneytið og það ráðuneyti.  Guðfinna Bjarnadóttir yrði líka góður Heilbrigðisráðherra.  Aðalatriðið er að Sjálfstæðisflokkurinn fái það ráðuneyti. 
--
Kannsi bið ég Jóhannes bara að auglýsa eftir því og hvetja til þess að Sjálfstæðismenn fái Heilbrigðisráðuneytið.  Það virkar - kannski?
Hver veit?

mbl.is Rúmlega 2500 strikuðu yfir nafn Björns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn - ekkert stopp

Ég er í meginatriðum ósammála okkar ágæta veðurfræðingi og framsóknarmanni Einari Sveinbjörnssyni.  Ég tel að eini lífsmöguleiki Framsóknar sé einmitt að halda áfram stjórnarsamstarfinu.  Hugsiið ykkur, þeir geta tvöfaldað afl sitt með því að kalla inn varaþingmenn og láta ráðherrana ekki sitja á þingi.  Jón og Jónína geta bæði verið ráðherrar áfram og aðrir sem setjast í ráðherrastóla kalla inn varaþingmenn og víkja af þingi.  Það er löngu tímabært að huga að því að ráðherrar sitji ekki jafnframt á alþingi okkar Íslendinga.  Mín skoðun er sú að þegar maður fær skell þá notar maður hann til frekari uppbyggingar strax.  Það þýðir ekkert að missa móðinn. Kannski verður þetta tap Framsóknar fyrsta skrefið í átt að nútímavæðingu í verkaskiptingu okkar æðstu ráðamanna?  Það væri bara jákvætt.  Framsóknarflokkurinn kann nefnilega að koma niður á fæturna. 
mbl.is Framhald núverandi stjórnarsamstarfs feigðarflan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar eru Frjálslyndir?

Nú keppast margir við að nefna til sögunnar þá flokka sem möguleika eigi á að mynda nýja Ríkisstjórn.  Það sem vekur athygli mína í því sambandi að hvergi er minnst á Frjálslynda flokkinn.  Ég er hvorki að mæla með eða á móti þeim í stjórnarsamstarf en það er eins og þeir séu ekki til.  Hvernig getur staðið á þessu? 

Stjórnin heldur - Til hamingju

Glæsilegur árangur Sjálfstæðisflokks gerir það að verkum að Ríkisstjórnin heldur velli.  Það verður spennandi að sjá framhaldið.  Nú hefjast viðræður sem Geir H. Haarde mun hafa frumkvæðið að.  Það er mjög jákvætt og ég veit að honum  tekst vel upp í því.  Hver niðurstaðan í þeim umræðum öllum verður kemur væntanlega fljótlega í ljós.  Áframhaldandi sterk stefna Sjálfstæðisflokksins sem hefur í góðu samstarfi við Framsóknarflokk fært okkur þau líffskilyrði sem við búum við í dag verður áfram höfð að leiðarljósi fyrir okkur íslendinga.  Nú er bara að hella sér í verkefni tengd velferðarkerfinu, öldruðum og öryrkjum.  Ásamt öllum hinum verkefnunum sem ég veit að bíða úrlausnar og verða leyst undir markvissri stjórn Sjálfstæðisflokks.   Verkefni sem nú er möguleiki á að vinna í af skynsemi, þar sem grunnurinn hefur verið lagður með styrkri efnahagsstjórnun.  Þú byrjar nefnilega ekki á því útdeila peningum og spyrð svo hvar þú eigir að fá þá?  Þú vinnur þér fyrst inn peninga og síðan getur þú farið að útdeila.   Þetta er einfalt reikningsdæmi sem allir skilja.  Ég lít björtum augum til framtíðar. 
Til hamingju Ísland!!!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband