Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

X-D

Ég tek undir með Geir H. Haarde.  Vinstri samsteypustjórn með tilheyrandi málamiðlunum og umþóttunum væri afar slæmur kostur fyrir okkur.  Vægast sagt.  Til að ná áframhaldandi stöðugleika, festu og framförum er afar mikilvægt að sjálfstæðismenn fjölmenni á kjörstað og kjósi.  Ég mun leggja mitt af mörkum til að svo megi verða og hef boðið mig fram til að aka kjósendum á kjörstað á morgun. 
Ég segi X-D og ekkert hik.

mbl.is Steingrímur: forsætisráðherra hreytir ónotum í kjósendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri eða hægri?

Nú er morgunljóst að skýr valkostur blasir við á kjördag.  Samfylkingin og Vinstri Grænir hafa stillt sama strengi og tekið af öll tvímæli.  Þessir flokkar ætla sér samstarf eftir kosningar.  Það er auðvitað mjög jákvætt að vita þetta fyrirfram.  Kjósendur geta þá gert upp við sig hvort þeir vilja vinstri stjórn eða hægri stjórn.  Það er ekkert óljóst í spilunum.  Ég held að allir hugsandi menn reyni eftir föngum að sjá til þess að sá árangur sem við höfum náð í efnahagsmálum haldist.  Þegar efnahagur þjóðarinnar er góður skapast möguleikar fyrir velferðarkerfið að gera vel og þá meina ég vel við þá sem þurfa á því að halda.  Það eru allt of margar gloppur í almannatryggingakerfinu sem koma hart niður á þeim verst settu.  Við höfum ákveðinn hluta af heildarkökunni sem skiptist (eða ætti að skiptast) niður á þá.  Það er óþolandi að fólk sem vinnur fulla vinnu (svart) er að plokka af þeim sem ekkert geta unnið með því að þiggja örorkustyrk.  Því miður er það þannig í dag í mörgum tilfellum.  Þessu vill Sjálfstæðisflokkurinn breyta til batnaðar.  T.d. með því að breyta leikreglunum þannig að öryrkjum gefist kostur á að afla sér tekna án þess að skerða bætur.  Þannig myndast ráðrúm til að aðlaga kerfið og sveigja það að nýjum reglum í örorkumati.  Ég er öryrki og ég styð það.  Því er val mitt til hægri.
X-D

Kókplöntuuppskera minni

Gott ef það verður framhald á því að stemma stigu við framleiðslu á þessu skaðræði fyrir mannkynið.  Það þarf að taka upp aðferðir sem duga.  Kannski er þetta ein af þeim aðferðum.

mbl.is Minni uppskera af kókaplöntum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningafjör

Kíkti með pabba á fund hjá Sjálfstæðisflokknum um málefni eldri borgara á laugardaginn.  Það var margt merkilegt sem kom fram í máli frummælenda þeirra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, Jórunnar Frímannsdóttur og Guðfinnu Bjarnadóttur.  Það sem stóð upp úr hjá mér eftir fundinn var hve nauðsynlegt er að Sjálfstæðisflokkur fái Heilbrigðis og Tryggingaráðuneytið eftir kosningar.  Ég hef nokkra reynslu af samskiptum við það ráðuneyti sem fyrrverandi formaður MS félagsins.  Það er undarlegt til þess að vita að millistjórnendur í ráðuneyti geti tekið völdin í sínar hendur.  Ég hélt að þættirnir "Já ráðherra" væru löngu búnir að renna sitt skeið þar til ég upplifði þetta.  Án þess að fjölyrða frekar um þá reynslu tel ég afar brýnt að á málum þeirra félagasamtaka sem sýna fram á greinilegan sparnað í rekstri þeirra stofnana sem þau reka fyrir ríkisfé, með áætlunum og hagræðingum, sé tekið af alvöru og sanngirni.  Það gengur einfaldlega ekki upp ef pólitískir forsvarsmenn stofnananna fá "veiðileyfi" á starfsemina og geti haldið góðu og hagkvæmu uppbyggingarstarfi í "gíslingu" eigin draumóra um "dúkkuhús".  Að þeir fái að beita veikum skjólstæðingum sínum fyrir sig og sína hagsmuni alla leið upp í ráðuneyti er auðvitað svo farsakennt að maður hefði haldið að jafnvel í verstu bananalýðveldum gengi það varla upp.
Fyrst við í "litla" MS félaginu upplifðum þessi harkalegu viðbrögð við  sparnaðarumleitunum okkar trúi ég að víða sé pottur brotinn í okkar ágæta heilbrigðiskerfi. 
Flókið kerfi í Tryggingamálum sjúklinga er einnig óþolandi og á að einfalda ekki seinna en strax.  Það þarf að gera heimasíðu Tryggingastofnunar þannig að auðvelt sé að nálgast nauðsynlegar upplýsingar þar.  Þannig er það ekki í dag. 
Eftir fundinn hjá Sjálfstæðismönnum fórum við pabbi í grillveisl hjá Frjálslyndum á Sægreifanum.  Þar var mergð manna og náði ég að kría út ýsu (án kvóta) hjá Magnúsi Þór.  Hún var dálítið sölt. 
Síðan lá leiðin heim hvar ég tók á móti góðri vinkonu að vestan. Hún er nú flutt suður hún Sigríður Hrönn. 
Loks hélt ég í afmæli hjá Ingunni Jónsdóttur frá Melum í Hrútafirði. 
Hún ef fyrrverandi mágkona mín og fórum við Solla systir ásamt mömmu og pabba og Lucy dóttir Sollu að samgleðjast henni.
samningur
Þó hún og bróðir minn hafi skilið þá er af og frá að öll fjölskyldan þurfi að skilja með.  Auðvitað er allt breytt.  Það gefur auga leið.  Ég hef þó lært þá lexíu að láta hverjum eftir að stjórna eigin lífi.  Það var yndislegt að hlusta á börnin þeirra halda ræðu (10 vasaklúta ræðu bæði vegna gráts og hláturs)  og Traustai spilaði svo fallega á gítarinn "Óður til gleðinnar" fyrir mömmu sína.
P.S.  Horfði svo á Mugison á sunnudagskvöldið í "Sjálfstætt fólk" Jóns Ársæls, þar sem hann lék af fingrum fram m.a. í gamla húsinu hennar Sigríðar Hrannar á Súðavík.

Sjálfstæðisflokkur flestra val

Þegar litið er yfir flokkaflóruna kemur þessi frétt ekki á óvart.  Hver er trúverðugleiki hinna flokkanna?  Samfylkingin með leiðtoga sem tók tilhlaup í landsmálin eftir að hafa lofað sér í borgarstjórn Reykjavíkur út kjörtímabilið.  Ætlaði svo að sitja báðum megin en varð að láta borgarstjórastólinn af hendi.  Eftir að hafa beðið ósigur og endað sem varaþingmaður fór hún fram gegn sitjandi formanni og lofaði auknu fylgi en raunin er önnur.  Fylgið hefur hrunið af Samfylkingunni samkvæmt skoðanakönnunum um 10%.  Það munar um minna.  Vinstri Grænir hafa ekki náð að sannfæra fólkið í landinu um eigið ágæti en eru staðnaður umhverfisflokkur sem hefur ekkert nýtt fram að færa.  Eina sem þau leggja til er stopp á framkvæmdir við stóriðju í a.m.k. fimm ár.  Hvað þýðir það annað en hrun atvinnuuppbygginngar og atvinnuleysi í framhaldinu? Íslandshreyfingin nær ekki að hreyfa við fólki enda ekki með önnur markmið en
stopp á framkvæmdir eins og Vinstri Grænir.  Þau hafa þegar náð hámarks árangri í sínum málflutningi.  Að vekja fólk til umhugsunar um hvert skal stefna.  Það er góðra gjalda vert.  Framsóknarflokkurinn virðist vera að sækja í sig veðrið eins og sá flokkur gerir jafnan er nær dregur kosningum.  Vandræðagangur Halldórs Ásgrímssonar við formannskiptin hefur kostað flokkinn trúverðugleika.  Það er spurning hvort Jóni Sigurðssyni tekst á svo skömmum tíma að ná að sannfæra fólk um að treysta flokknum.  Frjálslyndir höfðu ekki burði til að taka á ágreiningi innan sinna raða og það er einfaldlega dauðadómur hjá ekki stærri flokki. Því tel ég að Sjálfstæðisflokkurinn sé að uppskera svo sem hann sáir.  Hann er eini flokkurinn sem kemur fram með raunsæja og sterka stefnu og hefur burði til að framfylgja henni.  Þessi könnun er því endurspeglun á þeim raunveruleika sem Íslendingar lifa í.

mbl.is Flestir vilja Sjálfstæðisflokk í ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framlenging þjónustusamnings við SÁÁ

Við skulum vona að þetta verði til þess að stytta biðlista inn á Vog.  Það er mikið mál fyrir alkahólista sem viðurkennt hafa vanmátt sinn að komast eins fjótt og auðið er í meðferð. Þessi barátta við Bakkus er "lífróður" í orðsins fyllstu merkingu.  Því fyrr sem sjúklingar komast til fagaðila, því meiri von um bata.
mbl.is Heilbrigðisráðuneytið framlengir þjónustusamning við SÁÁ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískir forsvarsmenn stofnana

Ég var að lesa í Blaðinu að hinir margumtöluðu biðlistar hjá BUGL hafi tvöfaldast á sl. tveim mánuðum.  Ég þekki það frá starfi mínu sem formaður MS-félagsins að fyrir kosningar kom alltaf aukin pressa á forsvarsmenn félagsins og dagvistarinnar að "skapa" neyðarástand til að þóknast pólitískum duttlungum þáverandi forystu Öryrkjabandalagsins eða annarra hagsmunaaðila.  Ég man eftir einu skipti þegar félagið stóð í samningum við ríkið og við vorum með inni í þeirri umræðu að auka hjúkrunarrými fyrir fatlaða einstaklinga.  Þá ætluðu forstöðumaður dagvistarinnar okkar Þuríður R. Sigurðardóttir og Garðar Sverrissona þá formaður ÖBÍ að koma fram með biðlistadæmi.  Til að koma ríkisstjórninni frá.  Ég tók af öll tvímæli um að þetta væru vinnubrögð sem MS-félagið stæði ekki fyrir.  Við værum í viðræðum um þessi mál og "kafbátahernaður" í þessum efnum myndi ekki vera okkur til framdráttar. 
Þó fór það svo seinna að þessir sömu aðilar gerður "kafbátaárás" á okkur sem störfuðum að framgangi MS- félagsins og dagvistarinnar. Þeim tókst að hræða millistjórnendur í Heilbrigðis-og Tryggingaráðuneytinu til hlýðni við sig.  Það er önnur saga.
_
Nú er ég ekki að gera lítið úr málefnum geðsjúkra enda ekki ástæða til þess. Það er þó alltaf tilhneiging hjá pólitískum forsvarsmönnum stofnana að magna upp mál af þessu tagi korteri fyrir kosningar.
_
Ágætis umfjöllun hér: http://agny.blog.is/blog/agny/

Hrafn Gunnlaugsson - klikkar ekki

Las í Fréttablaðinu í morgun (mogginn var ekki kominn) grein eftir Hrafn Gunnlaugsson.  Sjónarhóll á bls 14.  Þar lýsair hann skoðun sinni á að byggja 50-60 hæða hús á rústum Lækjargötu 2 og Pravda. Ég gæti ekki verið meira sammála. Það er mjög góð hugmynd að byggja þarna íbúiðir fyrir námsmenn og myndi það hleypa mjög miklu lífi í miðborgina.  Ég styð það heils hugar og tek undir með Hrafni í þessu máli.  Það væri bara hallærislegt að reyna að búa til formninjar sem eru glataðar.  Hvað sem manni finnst um gömlu húsin þá eru þau  nú ónýt.  Legg til að Hrafn verðir gerður sérlegur ráðgjafi við skipulag og uppbyggingu í Reykjavík.

Góðæri

Þetta eru nú bara "heimildalaus" þankabrot sem flugu gegn um huga minn og gegn um lyklaborðið rétt í þessu.
Í því góðæri sem ríkt hefur undanfarin ár hefur stjórnarandstöðunni reynst erfitt um vik að gagnrýna Ríkisstjórnina með sannfærandi hætti.  Þau hafa þyrlað upp hverju moldviðrinu af öðru sem hafa svo reynst stormur í vatnsglasi þegar á hólminn er komið.  Hver man ekki eftir "fjölmiðlamálinu" sem stoppað var af og hvað gott hefur það leitt af sér? Samþjöppun (ekki samkeppni) á fjölmiðlamarkaði sem erfiðara verður að brjóta upp því lengra sem líður.  Álver á Reyðarfirði vildi stjórnarandstaðan stoppa.  Hvar væru Austfirðingar staddir ef það stopp hefði náðst? Atvinnuöryggið sem við búum við í dag er ekkert sjálfgefið og það þýðir ekkert fyrir stjórnarandstöðuflokkana að segja "nú get ég" þegar þeir hafa engin tromp á hendi sér.  Alla vega hafa  þeir ekki sýnt þau fram að þessu. Það sem þeir hins vegar segja er að það þurfi að stoppa þessar eða hinar framkvæmdirnar og megi alls ekki halda áfram að skapa störf á Íslandi þar sem það skapi þenslu.  Ég spyr nú bara hvernig ástand myndast hér ef þessi afturhaldsöfl ná stjórnartaumunum?  Það yrði nú ekki mjúk lending fyrir hagkerfið eða velferðarkerfið að fá nokkur hundruð manns skyndilega á atvinnuleysisbætur eins og myndi gerast ef stop-flokkarnir fengju að ráða.  Með áframhaldandi skynsemi og örugga stefnu fram á við mun okkur takast að halda fengnum hlut og auka heldur við en stíga aftur á bak.
Don´t stop me now..................

Borg eða smáþorp

Ég er svo heppin að búa í "ómanneskjulegu" háhýsi í Reykjavík.  Ég hrekk alltaf í kút þegar vinstri grænir eða samfylkingarmenn nota þetta orðalag þegar skipulagsmál ber á góma.  Hvað er "ómanneskjulegt" við háhýsi í borg?  Ég hef sjaldan séð skynsamlegri sýn á Reykjavík en þá sem Hrafn Gunnlaugsson sýndi okkur í ágætri mynd um hans hugmyndir að framtíð Reykjavíkur.  R-listinn beytti sér fyrir því að "þétta byggð" eins og það var kallað.  Gott og vel en það hefur einnig verið farið upp um fjöll og firnindi með lágreista byggð á undanförnum árum.  Í valdatíð R-listans myndaðist mikill lóðaskortur í Reykjavík og flúðu þá Reykvíkingar í nálæg byggðalög sem kappkostuðu að hafa lóðir.  M.a. til Kópavogs þar sem nota bene, "ómanneskjuleg " háhýsi hafa sprottið upp eins og gorkúlur og setja skemmtilegan "borgarblæ" á t.d. Salahverfið og fleiri hverfi þar í bæ.  Hefði nú ekki verið dálítið skynsamlegt að byggja upp í loftið í henni Reykjavík líka?  Þess í stað er byggt lágt og byggðin teygð í láréttri stöðu um holt og móa.  Byggðar 20-30 "Hólmavíkur"með alles og tilheyrandi einkabílaakstri milli þeirra og mengun sem því fylgir.  Ég er úr sveit og þegar ég er í sveit vil ég vera þar.  Ég bý hins vegar í borg og þar vil ég hafa BORG.  Iðandi mannlíf og stutt í alla þjónustu.  Það má velta því fyrir sér hvort er manneskjulegra að búa í háhýsum í borg og ganga allra sinna ferða um nágrennið eða búa í einni af 10-20 "Hólmavíkum" og þurfa að þeysa á milli staða í eiturspúandi einkabíl?  Mætandi öllum hinum eiturspúandi einkabílunum frá öllum hinum "Hólmavíkunum" í henni Reykjavík.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband