þri. 14.10.2008
Höfum við efni á öðru?
![]() |
IMF tilbúinn að hjálpa Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 14.10.2008
Var hrinunni hrint af stað?
Þessi frétt vekur upp spurningar og styður grunsemdir þeirra sem telja að afskipti Íslenska Ríkisins hafi verið ótímabær.
Þeirri spurningu verður seint svarað en ljóst er að gagnger rannsókn á þessu máli þarf að fara fram.
Við viljum svör.
![]() |
Mæltu með íslenskum bönkum og standa við það |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 14.10.2008
Nýir bloggvinir
Brandarar og Sóldís Fjóla Karlsdóttir eru mínir nýjustu bloggvinir. Ég býð þau velkomin í hópinn og hlakka til að fylgjast með þeim hér á blogginu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 14.10.2008
Já við erum reið - Hvað segir forsætisráðherra okkar um það?
Við viljum aðgerðir Geir H. Haarde. Gangvart okkur og okkar innanríkismálum og gagnvart Bretum. Við viljum þá ríkisöldu menn sem hafa skaðað okkur með illa ígrunduðum upphrópunum burt! Við viljum skaðabætur frá Bretum sem bæti upp að fullu það tap sem viðskiptavinir Kaupþings urðu fyrir hér á landi.
Við viljum réttlæti.
Strax!
![]() |
Fjögur hundruð bloggfærslur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
þri. 14.10.2008
Bankarnir gjalda fyrir pólitískan seðlabankastjóra?
Er þetta enn eintt púslið í spili seðlabankastjóra? Ég hlakka sannarlega til að lesa þessa bók. Það er alveg hræðilegt til þess að hugsa að leitað var til seðlabankastjóra um neyðarlán og hann steypir þjóðinni 40 ár aftur í tímann með það sama? Auðvitað er staðan slæm víða en við eigum að gera þá kröfu á menn sem skipaðir eru seðlabankastjórar að þeir hafi þekkingu á því sem þeir eiga að fást við. Hafi lágmarks sjálfsstjórn og vit á að sæta lagi í erfiðum og viðkvæmum efnahagsþrengingum en böðlast ekki áfram eins og brjálaður maður.
Eigum við svo að treysta þessum sama manni til að leysa málin?
Nú sitjum við eftir með sárt ennið, þúsundir manna missa vinnuna, höft komin á viðskiptalífið og þar með okkur öll. Kannski var farið geyst af hálfu bankanna en var ekki að sama skapi farið of hægt af hálfu ríkisins? Bankamenn og menn í viðskiptalífinu sögðu alltaf að Ísland væri of lítið og nauðsynlegt væri að ganga í Evrópusambandið til að eignast það bakland sem nauðsynlegt væri.
Nú eru markaðir að stíga vegna þess að Evrópubandalagið hyggst vinna sig saman út úr þrengingunum. Hvers vegna var seðlabankastjóri Íslands ekki með á nótunum hvað það varðaði að samhjálp myndi bjarga miklu. Í dag myndu trúlega allir Íslensku bankarnir lifa af ef þeir hefðu fengið stuðning seðlabankans sem nota bene sótti ekki um erlent gjaldeyrislán þegar það var hægt fyrr á árinu.
Við erum að tala um tvær eða þrjár vikur!
Þetta er dýrt námskeið fyrir okkur Íslendinga.
![]() |
Forsetabók afturkölluð úr prentsmiðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 13.10.2008
Þetta stóð glöggt!
http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=STOD2&programID=b2fab606-e8f9-4500-a4d9-15008d8978da&mediaSourceID=f6799577-868b-4b02-98cb-80c844e3b307
Vinsamlegast Copy og paste!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 13.10.2008
Verður þá lífeyrissparnaður tryggður?
Ég velti því fyrir mér hvort lífeyrissparnaður landsmanna hjá Kaupþingi sé þar með tryggður? Margir hafa lagt allan sparnað sinn í sjóði Kaupþings sem og hinna bankanna.
Það er kaldhæðnislegt til þess að hugsa að örlagavaldar í þessu öllu saman eru nýbúnir að lögfesta sín lífeyrisréttindi hjá Ríkinu. Þannig að þeir þurfa ekki að óttast um afkomu sína.
Landsmenn tapa öllu sínu en borga samt fyrir þá!
Ég vona að þetta séu góðar fréttir fyrir þá sem lögðu allt sitt traust á bankana.
![]() |
Lífeyrissjóðir skoða Kaupþing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 13.10.2008
Viðtalið við Davíð
Ég sá þetta á mbl.is og set hér með. Þarna getur fólk séð það svart á hvítu hvað seðlabankastjóri Íslands sagði í Kastljósi s.l. þriðjudagskvöld.
Höfum það í huga að ef hann hefði haldið kjafti þá væri Kaupþing sennilega komið yfir verstu krýsuna. Markaðir eru að jafna sig eftir að ríki heims hafa sent út sameiginlega yfirlýsingu þess eðlis að takast á við bankakreppuna saman.
![]() |
Hvað sagði Davíð? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 13.10.2008
Illa ígrundað hjá Brown
Eftirfarandi grein er í morgunblaðinu í dag á bls 9.
"Hneykslanleg mistök gerð"
Richard Portes, prófessor við London Business School og einn höfunda skýrslu Viðskiptarás í fyrra um íslenskt efnahagslíf fjallar um hrun íslensku bankanna á vefsíðunni FT.com í gær. Portrs telur að "hneykslanleg mistök! hafi verið gerð í því hvernig tekið var á málum þegar erfiðleikar knúðu dyra.Hann gagnrýnir m.a. Davíð Oddsson seðlabankastjóra fyrir hvernig hann tók á málum Glitnis. Portes telur að ákvörðun seðlabankastjórans hafi endurspeglað pólitík, tæknilega vanhæfni og vanþekkingu á mörkuðum. Auk þess hafi yfirlýsingar hans í kjölfarið aukið mjög á óróleikann. Portes rekur síðan hvernig seig á ógæfuhliðina hjá íslenska bankakerfinu með lækkun lánshæfimats ríkisins, lokun lánalína og öru gengisfalli íslensku krónunnar.
Portes segir að orð Davíðs s.l. þriðjudag {í Kastljósi} hafi verið pólitík til heimabrúks. Illa ígrunduð viðbrögð Breta hafi verið af sama meiði, Hann telur að ýmsan lærdóm megi draga af málinu. M.a. að stjórnmálamenn ættu ekki að verða seðlabankastjórar og telur Portes að Davíð ætti þegar að segja af sér.
Portes segir að þótt Íslendingar þurfi að búa við þrengri kost um hríð þá muni Ísland rétta úr kútum."
---
Þegar svona ósköp dynja yfir skiptir miklu máli að halda ró sinni og hrapa ekki að neinu. Gordon Brown datt í þá gryfju að reyna að dreifa athygli Breta frá eigin vandræðum heima með því að ráðast inn í Kaupþing ytra. Það er skammgóður vermir hjá honum.
Kannski hefur hann geymt þeim tekjum sem fyrirtækið skilaði Bretum og þeim störfum sem það skapaði löndum hans.
Málsháttur sem ég hef haldið mest upp á gegn um tíðina á vel við í þessu tilfelli.
"Enginn verður hvítari þótt annan sverti"!
Íslenska ríkið á ekki annars úrkosta en að fara í mál við Bresk stjórnvöld. Bæði vegna þessa og þeirra hryðjuverkalaga sem þeir beittu á Landsbankann.
Þótt Bretar hafi ekki orðið hvítari við þetta þá tókst þeim að sverta Ísland.
![]() |
Ríkið íhugar að fara í mál vegna Kaupþings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 12.10.2008
Sigurpáll
Við keyptum þennan bát í félagi við vinahjón. Kallarnir fengu Gunna Júll frá Siglufirði til að draga hann frá Húsavík til Siglufjarðar þar sem við munum gera við bátinn.
Báturinn brann á Skjálfandaflóa en mannbjörg varð.
Það vill svo til að Geir sem er verkfræðingur gekk um sænska eikarskóga með skipaverkfræðingnum Brynjari Skaptasyni og vottaði eikurnar í þessa báta sem voru smíðaðir í Skipasmíðastöðinni Vör á Akureyri.

Þarna er hann húslaus en húsið var ónýtt eftir brunann og var tekið af á Siglufirði. Við munum fljótlega renna norður aftur og kallarnir munu þrífa bátinn og taka vélina til yfirhalningar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)