Sigurpáll

Við keyptum þennan bát í félagi við vinahjón.  Kallarnir fengu Gunna Júll frá Siglufirði til að draga hann frá Húsavík til Siglufjarðar þar sem við munum gera við bátinn.

Báturinn brann á Skjálfandaflóa en mannbjörg varð.

Það vill svo til að Geir sem er verkfræðingur gekk um sænska eikarskóga með skipaverkfræðingnum Brynjari Skaptasyni og vottaði eikurnar í þessa báta sem voru smíðaðir í Skipasmíðastöðinni Vör á Akureyri.

Sigurpáll

Þarna er hann húslaus en húsið var ónýtt eftir brunann og var tekið af á Siglufirði.  Við munum fljótlega renna norður aftur og kallarnir munu þrífa bátinn og taka vélina til yfirhalningar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Til hamingju með Sigurpál. Ég frétti af þér á Sigló, þau voru heldur betur sátt við heimsóknina Laugarvegsliðið .

Herdís Sigurjónsdóttir, 12.10.2008 kl. 22:04

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Það skemmir ekki fyrir Sigurpáli, á þessum síðustu og verstu, að honum fylgir kúfiskkvóti!

Alltaf gaman að koma á Laugaveginn. Svo var íka gaman að kíkka á kellurnar í Gallerí Sigló!

Sigurpáll verður víst Vilborg ;-)

Vilborg Traustadóttir, 13.10.2008 kl. 00:54

3 Smámynd: G Antonia

Til hamingju með bátinn... kvitt og kveðja til þín Vilborg mín **

G Antonia, 13.10.2008 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband