Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
lau. 14.2.2009
Við vitum þá hvað við fáum
Ég dreg ekki í efa orð Katrínar Jakobsdóttur enda er eitt að hafa áhuga og annað að semja.
Við vitum það alveg fyrir víst að þessi stjórn heldur áfram eftir kosningar og þá með fullri aðkomu Framsóknarflokksins sem reyndar hefur töglin og hagldirnar í þessu samstarfi.
Ég fagna því að Lýðveldisbyltingin ætlar ekki að bíða eftir stjórnmálaflokkunum eða stjórnvöldum með aðgerðir.
Fólkið í landinu er um það bil að taka málin í sínar hendir og koma á réttlátara valdakerfi og þar af leiðandi betra þjóðfélagi fyrir okkur öll.
Lifi Lýðveldisbyltingin.
Ekki verið samið um framhald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
lau. 14.2.2009
"Krtistilegu kærleiksblómin spretta....
Kærleiksganga á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 13.2.2009
Engin kreppa í Kanada. Allavega ekki eins kröpp og hér.
Lýðveldisbyltingin er nr. eitt í mínum huga en ég er með plan B. ólíkt ríkisstjórninni ef það gengur ekki eftir.
Sækjum að gerast ríki í Kanada.
Tökum upp Kanadadollar.
Komum okkur í samfélag með frændum og vinum sem flýðu "Skerið" í byrjun síðustu aldar.
Ég er að verða nokkuð svartsýn á að aðild að ESB verði okkur til framdráttar miðað við það skuldafen sem við erum í m.a. vegna Ice-Save o.fl. þá eru litlir möguleikar á Evrópuaðild næstu 10-11 árin.
fim. 12.2.2009
Utanþingsstjórn
Ég hef haldið því fram áður og ætla að árétta það að eina farsæla leiðin í stöðunni hér á Íslandi er að sett verði á stofn utanþingsstjórn.
Kosningum mætti þar af leiðandi auðveldlega fresta fram á haust og undirbúa stjórnlagaþing og framkvæma nauðsynlegar breytingar á Íslensku stjórnarskránni meðan utanþingsstjórnin kæmi hér skikki á mál.
Það væri æskilegt að þær breytingar tækju gildi þannig að kosið yrði um þær og stofnun nýs lýðveldis áður en kosið yrði. Þannig mætti kjósa eftir nýju stjórnarskránni þegar næst verður kosið til Alþingis.
Fólk sem hagar sér eins og þingmenn gera nú eiga ekkert erindi í forsvar fyrir land sem er eins illa statt og Ísland.
Land sem þeir sjálfir keyrðu á kaf.
Ég sé bjarta framtíð eftir að þessum breytingum hefur verið komið á af þeirri einföldu ástæðu að kerfið breytir sér ekki sjálft.
Það viðheldur sér.
fim. 12.2.2009
Máluðum okkur út í horn
Það að við skyldum með svo afgerandi hætti mála okkur út í horn þýðir bara eitt.
Við verðum að hlýða ef við ætlum að eiga möguleika á að skreiðast aftur inn í alþjóðlegt samfélag efnahagslífsins.
Ef við ætlum að lifa af.
Því er umræðan sem komið hefur upp um að framið hafi verið landráð af gáleysi ekki svo fjarri sanni.
Við erum bundin í klafa skulda og efnahagslegt sjálfstæði okkar og mannleg reisn hefur beðið mikla hnekki.
Við verðu alfarið að treysta á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þó að um hann séu skiptar skoðanir.
Ekki einu sinni Steingrímur með stóru orðin getur nokkru um það breytt.
Það sem við getum breytt þessi þjóð er það að við getum stofnað nýtt lýðveldi og þannig aukið sjálfstraust okkar og endurheimt trúna á lýðræðið sem er löngu farin veg allrar veraldar. Við megum einnig til að auka trúverðugleika okkar út á við.
Það gerum við ekki með því að stunda karp, pólitíska flokkadrætti og hafa í frammi magnvana og fálmkennda einræðistilburði eins og Jóhanna hefur valið að gera.
Það gerum við með því að standa í báða fætur og vinna okkur út úr vandamálinu saman.
Á algerlega nýjum forsendum og án þessa ógeðslega spillta flokkakerfis sem við höfum í dag.
Flokkakerfis sem er svo rotið að flokkshollusta ræður för fram yfir þjóðarhag.
Það er landráð og ekki einu sinni af gáleysi!
Nýtt lýðveldi með réttlátara kerfi er það sem við verðum að krefjast til að eiga okkur viðreisnar von!
Peningamálastefnu ekki breytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 11.2.2009
Var Bubbi ekki með hávaða?
Lögreglan var að fatta þessa grein í lögunum í morgun.
Eða?
Kannski líkaði þeim bara betur að fá ókeypis tónleika hjá Egó í morgunsárið en flaut og trommuslátt.
Svo er ekki sama hvort maður er maður eða hundur!
Lögreglan verður að fara að gera það upp við sig eftir hvaða lögum hún vinnur.
Hún má ekki vera tækifærissinnuð.
Nóg er nú samt.
Sturlu bannað að þeyta lúðra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 11.2.2009
Jóhanna getur ekkert meira en Geir?
Það er undarlegt að allt uppþotið hjá Samfylkingunni í kring um "búsáhaldabyltinguna" virðist hafa verið til þess eins að komast í oddaaðstöðu í ríkisstjórninni.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði boðað breytingar á lögum um Seðlabankann um miðjan febrúar.
Geir hafði sent Davíð bréf og fengið sama svar og Jóhanna.
Það sem Sjálfstæðisflokkurinn klikkaði á var hollustan við Davíð með því að gefa ekki upplýsingar og sú "mýta" að ekki grasseri ágreiningur innan fokksins.
Þetta verður allt einhvern veginn sami grautur í sömu fyrirgreiðslupólitíkinni þegar á hólminn er komið.
Vill að Eiríkur hætti strax | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 10.2.2009
Spennandi verkefni.
Ég vona að okkur takist að rétta landið okkar við smám saman.
Ég er hóflega bjartsýn á að svo verði meðan menn stunda flokkadrætti og fyrirgreiðslupólitík.
FRAM Í RAUÐANN DAUÐANN. OKKUR BLÆÐIR!
Ég tek þátt í spennandi verkefni þessa stundina sem mun vonandi þróast í eitthvað verulega jákvætt fyrir okkur sem flest.
Það er gaman að byggja upp og bæta heiminn og það sem við eigum að einhenda okkur í núna er einmitt það.
Þess vegna legg ég til við forseta Íslands að hann leysi upp þingið og skipi utanþingsstjórn áður en hann segir af sér sjálfur sem hann á tvímælalaust að gera.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
þri. 10.2.2009
Hjartanlega sammála Bubba
Mikið er ég sammála Bubba.
Mikið er ég fegin að Bubbi er aftur mættur til leiks fullur réttlátrar reiði.
Þetta er rokk!
Vinkona mín hringdi í mig í gærkvöldi og sagðist upplifa ástandið eins og við værum stödd í miðri hrollvekju.
Ég held að það sé nokkuð nærri lagi.
Þingmenn eyða púðrinu í innbyrðis átök og rugl um einskisverða hluti.
Fyrrverandi og núverandir ráðherrar keppast við að koma höggi hver á annan.
Forsetinn rífst við eiginkonu sína á síðum erlendra blaða.
Þjóðin á betra skilið en þetta!
Segið öll af ykkur.
UTANÞINGSSTJÓRN STRAX!
Bubbi rokkar Seðlabankanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 9.2.2009
Skyldulesning og lærdóminn á að meðtaka og framkvæma
Ég er alveg heilluð af þeim félögum.
Við hjónin horfðum á þá í góðum Kastljósþætti og horfðum svo hvert á annað.
Maðurinn minn sagði "þetta er í fyrsts skopti í langan tíma sem ég hef heyrt eitthvað af viti"!
Ég var að hugsa eitthvað svipað.
Ég er sammála honum.
Vítahringur í peningamálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)