Hjartanlega sammála Bubba

Mikið er ég sammála Bubba.

Mikið er ég fegin að Bubbi er aftur mættur til leiks fullur réttlátrar reiði.

Þetta er rokk!

Vinkona mín hringdi í mig í gærkvöldi og sagðist upplifa ástandið eins og við værum stödd í miðri hrollvekju.

Ég held að það sé nokkuð nærri lagi.

Þingmenn eyða púðrinu í innbyrðis átök og rugl um einskisverða hluti.

Fyrrverandi og núverandir ráðherrar keppast við að koma höggi hver á annan. 

Forsetinn rífst við eiginkonu sína á síðum erlendra blaða. 

Þjóðin á betra skilið en þetta! 

Segið öll af ykkur.

UTANÞINGSSTJÓRN STRAX! 


mbl.is Bubbi rokkar Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Ég er búin að fá uppí kok. En Bubbi stendur fyrir sínu  Myndbandið frá búsáhaldabyltingunni á eftir að lifa.

Hulda Margrét Traustadóttir, 10.2.2009 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband