Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ríkissáttasemjari í málið

Ég held að þetta sé gott mál.  Ásmundur hefur staðið sig með stakri prýði sem Ríkissáttasemjari og hefur því mikla og góða yfirsýn, samningshæfileika og alla burði til að halda vel utan um þetta veigarmikla starf.

Það sem skiptir okkur mestu máli núna sem þjóð er að standa saman að því að endurreisa traust okkar, virðingu og sjálfstæði sem hefur beðið mikla hnekki undanfarið.  

Að maður tali nú ekki um efnahaginn.

Ég er bjartsýnni í dag en í gær.  

Þetta tekur tíma og þegar horft er til lengri tíma held ég að staðan geti bara batnað! 


mbl.is Ásmundur Stefánsson til starfa fyrir forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Bláa höndin"

Hún er greypt í huga mér myndin af Davíð Oddssyni keyra heim af fundi með Geir H. Haarde framm í bílnum og Árna Matthíssen aftur í eftir að þeir ákváðu að þjóðnýta Glitni.  

Það var ekki trautsvekjandi mynd, því miður.  Hverjir komu með þeim að því máli? 

Seðlabankinn er nú valdamesta stofnun landsins.  Seðlabankastjóri, Davíð Oddsson, hringir sjálfur í útvalda, ef marka má fréttaflutning Stöðvar 2 til að tilkynna þeim um að þeir hafi fengið gjaldeyri!

"Útvaldir" lofa og prísa gott samstarf við Seðlabankann og vilja ekki tjá sig um "meint" samtöl.

Á Seðlabankinn og þar með Davíð Oddson, sem virðist vera eini starfandi seðlabankastjórinn um þessar mundir,  þá að ráða hverjir lifa af og hverjir fara á hausinn hér á Íslandi? 

Ástandið er auðvitað alger hryllingur og maður fær hreinlega hnút í magann.  

Einræðið er orðið algert og "bláa höndin" hefur heldur betur "tekið til".

Kemur reyndar úr hörðustu átt ef tekið er mið af frjálshyggjustefnu Sjálfstæðisflokksins. Sem nota bene getur allt eins tekið á sig öfgar til hægri.

Ég er slegin óhug. 


Dýfa víða

Það er dálítið súrrealískt að upplifa þessa tíma sem eru að ganga yfir.  Maður tekur einhvern vegin verðmætin og vegur þau og metur.  Setur veraldlegu verðmætin neðst í röðina en þau sem skipta mestu máli eru þau veðmæti sem eru hjartanu kærust.  Fjölskyldan, vinirnir, nágrannarnir og fólk yfirleitt eru það sem skiptir mestu máli.

Áhugamálin og það að hugsa um líkama og sál er einnig nokkuð sem ósjálfrátt verður mjög mikilvægt. 

Fyrirtæki sem blómstruðu fyrir stuttu berjast nú í bökkum, fólk er að missa vinnuna í auknum mæli og samdráttur virðist óumflýjanlegur.

Við erum neydd til að forgangsraða upp á nýtt.  Mörg okkar hafa misst mikið, sum nánast allt veraldlegt.

Þegar harðnar í ári verðum við að hugsa vel hvert um annað og viðra eignarrétt, það er nefnilega freistandi þegar allar bjargir virðast bannaðar að taka ófrjálsri hendi eitthvað sem okkur vanhagar um.

Tími samhjálpar og umhyggju er runninn upp. 


mbl.is Minna og grennra deCODE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byggjum upp....borðum minna....

Það er ekki um annað að ræða en bretta upp ermarnar og byggja upp á ný.  Við Íslendingar erum ekki vön að sitja með hendur í skauti.  Fyrst og síðast verðum við að huga að náunganum, treysta fjölskylduböndin og hjálpast að í gegn um þetta.

Börnin okkar og barnabörnin þekkja ekki þann veruleika sem við bjuggum við með gjaldeyrisskömmtunum, viðskiptahöftum og skorti á vörum.  Hér hefur allt verið flæðandi í öllu mögulegu.  Bara nefna það og það er til.  Ef ekki þá bara að panta það e-bay eða á netinu einhvers staðar.

"Vinna, kaupa, henda" sögðum við gjarnan við strákana okkar ef þeir vildu ekki klára matinn sinn eða fóru óvarlega með hluti.  Þeir minna okkur reglulega á þetta.Wink

Flestir Íslendingar hafa haft það býsna gott og notið góðærisins, lagt til hliðar og treyst bönkunum gjarnan fyrir því.  Nú er komin upp sú staða að mikið af því fé er farið, brunnið upp og það er stór spurningin sem brennur á mörgum um það hvort Ríkið geti með einhverjum hætti bætt þann hluta upp. Fæstir hafa t.d. geymt lífeyrissparnað sinn á innlánsreikningum.  Flestir hafa sett sparnaðinn sinn í sjóði og hlutabréf. 

Við verðum að treysta því að eitthvað sé hægt að gera til að við endurheimtum það fé sem við höfum af harðfylgi lagt fyrir til efri áranna.

Þangað til það skýrist verðum við að herða sultarólina og vona það besta.

Vera svalir áfram! 

 

 


mbl.is Svalir Íslendingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ýmislegt undir stólunum!

Það er greinilega mikið undir stólum ráðamanna í málefnum Íslensku bankanna.  

Maður spyr sig að því hvort þeir sem skýrslan telur ábyrga fyrir ástandinu, m.a. Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn séu réttu aðilarnir til að vinna úr því?


mbl.is Bankaskýrsla undir stól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa ígrundað hjá Brown

Eftirfarandi grein er í morgunblaðinu í dag á bls 9.  

"Hneykslanleg mistök gerð" 

Richard Portes, prófessor við London Business School og einn höfunda skýrslu Viðskiptarás í fyrra um íslenskt efnahagslíf fjallar um hrun íslensku bankanna á vefsíðunni FT.com í gær.  Portrs telur að "hneykslanleg mistök! hafi verið gerð í því hvernig tekið var á málum þegar erfiðleikar knúðu dyra.Hann  gagnrýnir m.a. Davíð Oddsson seðlabankastjóra fyrir hvernig hann tók á málum Glitnis. Portes telur að ákvörðun seðlabankastjórans hafi endurspeglað pólitík, tæknilega vanhæfni og vanþekkingu á mörkuðum.  Auk þess hafi yfirlýsingar hans í kjölfarið aukið mjög á óróleikann.  Portes rekur síðan hvernig seig á ógæfuhliðina hjá íslenska bankakerfinu með lækkun lánshæfimats ríkisins, lokun lánalína og öru gengisfalli íslensku krónunnar.

Portes segir að orð Davíðs s.l. þriðjudag {í Kastljósi} hafi verið pólitík til heimabrúks.  Illa ígrunduð viðbrögð Breta hafi verið af sama meiði,  Hann telur að ýmsan lærdóm megi draga af málinu.  M.a. að stjórnmálamenn ættu ekki að verða seðlabankastjórar og telur Portes að Davíð ætti þegar að segja af sér.

Portes segir að þótt Íslendingar þurfi að búa við þrengri kost um hríð þá muni Ísland rétta úr kútum."

--- 

Þegar svona ósköp dynja yfir skiptir miklu máli að halda ró sinni og hrapa ekki að neinu.  Gordon Brown datt í þá gryfju að reyna að dreifa athygli Breta frá eigin vandræðum heima með því að ráðast inn í Kaupþing ytra.  Það er skammgóður vermir hjá honum.  

Kannski hefur hann geymt þeim tekjum sem fyrirtækið skilaði Bretum og þeim störfum sem það skapaði löndum hans.

Málsháttur sem ég hef haldið mest upp á gegn um tíðina á vel við í þessu tilfelli.

"Enginn verður hvítari þótt annan sverti"! 

Íslenska ríkið á ekki annars úrkosta en að fara í mál við Bresk stjórnvöld.  Bæði vegna þessa og þeirra hryðjuverkalaga sem þeir beittu á Landsbankann.  

Þótt Bretar hafi ekki orðið hvítari við þetta þá tókst þeim að sverta Ísland.


mbl.is Ríkið íhugar að fara í mál vegna Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SMJÖRKLÍPUAÐFERÐIN

Það má segja að smjörklípuaðferð Davíðs Oddsonar hafi nýst Bretum við að knésetja Kaupþing.  Þeir gátu með harkalegum aðgerðum sínum og yfirlýsingum dreift huga Breta frá eigin vandræðum.  Bretar höfðu í vaxandi mæli gagnrýnt Gordon Brown og stjórn hans fyrir efnahagsástandið í Bretlandi.

Hverjum ætli Gordon Brown kenni nú um?

Hitt er það að ummæli Davíðs Oddssonar í Kastljósi þess eðlis að við myndum ekki borga skuldir óreiðumanna hafa vafalaust verið kveikjan að harkalegum aðgerðum Breta.  Davíð hefur aldrei verið búsettur erlendis og virðist því skorta skynjun á málefnum í stærra samhengi og nauðsynlegan skilning á því hvernig önnur ríki lifa og starfa.  Davíð hefur á undanförnum árum "skemmt" íslensku þjóðinni með reglulegum uppákomum og yfirlýsingum.  Þessi glannalega og að því er virðist hefndarþyrsta yfirlýsingagleði sæmir ekki seðlabankastjóra á eldfimum tímum í efnahagsmálum.  

Þetta er ekki lengur fyndið! 


mbl.is Breskir bankar yfirteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fattaði á leiðinni heim að Davíð Oddsson býr ekki hér....

Ég heyrði fréttir á leiðinni að norðan í dag.  Kjartan Gunnarsson var fokreiður út í Davíð Oddsson á landsfundi Sjálfstæðismanna.  Sagðist ekki una því að vera kallaður "óreiðumaður"!

Ég er líka fokreið út í Davíð Oddsson.  Ég er fokreið út í Gordom Brown og ég er fokreið út í alla þessa nýríku menn sem hafa bruðlað með peningana okkar og offjárfest án fyrirhyggju þannig að við töpum miklu.  Sumir nánast öllu sínu ævistarfi.

Við ræddum þetta fram og aftur hjónin og ákváðum að njóta hvers augnabliks sem við fáum.  Góðu og slæmu.  Við komumst líka að þeirri niðurstöðu að Davíð Oddsson og aðrir þeir sem við erum undrandi á og reið við ættu sitt eigið heimili.   Við þurfum ekki að hafa hann eða aðra inni á gafli hjá okkur daginn út og daginn inn.  

Allra síst Gordon Brown!  Það er alveg nóg pláss fyrir hann í Downingstræti 10.

Það hjálpar mér jafnvel dálítið að biðja fyrir þeim.

--- 

Við vorum á Siglufirði og þar voru menn rólegir yfir málum.  Sögðust ekki hafa tekið þátt í "fylleríinu" en sætu sjálfsagt uppi með einhverja "timburmenn".  Vonandi yrði þetta fárviðri til að jafna kjör landsmanna.   Landsbyggðin kæmist kannski í takt við höfuðstaðinn úr því sem komið væri.

Ég er sammála þessu.  Það var ótrúlega gott að hitta gamla kunningja og sjá æðruleysið og lífskraftinn fyrir norðan. Hvað framtíðin ber í skauti sér verður að koma í ljós og augnablikið er það eina sem við eigum.  

Njótum þess.  InLove 


Hver á að skilja þetta?

Það er skammt stórra högga á milli.  Allt sem virtist á yfirborðinu svo pottþétt var það sannarlega ekki.

Hvers eigum við að gjalda sem stöndum orðvana hjá og sjáum hverja spilaborgina af annarri hrynja? Voru þetta spilaborgir?  Hvar eru nú rök markaðarins?   Hvar er trúin á einstaklingsframtakið og afskiptaleysi ríkisins?Hvar er allt frelsið?

Ég fékk hnút í magann í gærkvöldi þegar ég las um það á mbl.is að Fjármálaeftirlitið hefði tekið yfir stjórn Glitnis eftir að Glitnir leitaði til þess um aðstoð.  Aðstoð við að flýta hluthafafundi og þar með því að samningur ríkisins við Glitni tæki gildi.

Ónot mín snerust um þá frelsisskerðingu að yfirvöld geti gripið inn í atburðarrásina á þennan hátt!  Það kom svona "Rússarnir koma" fílingur sem ég man eftir sem krakki úti á túni heima í sveitinni. Tilfinningin svipuð og  ef einhver sé að gægjast yfir öxlina á þér og skoða hvað þú ert að gera.

Stóri bróðir að fylgjast með! 

Var þetta kannski refsing vegna "óþekktar" Glitnismanna eða var þetta vegna þess að staða bankans hafði hríðversnað frá gerð samningsins sem Fjármálaeftirlitið notaði heimild sína svo skjótt?

Kannski var þetta nauðsynleg aðgerð, kannski ekki.  Kannski var rétt að sprengja blöðruna með þeim hætti sem seðlabankinn gerði í upphafi, kannski ekki?

Við munum aldrei fá að vita það fyrir víst.

Þess vegna er okkur nauðsynlegt að horfa nú fram á veginn og taka til hendinni.   Minnka þannig þann skaða sem samfélagið hefur orðið fyrir eða eins og einhver sagði "back to basic".  

Halda þétt utan um hvert annað og láta ekki breytingar og ónotalegar aðgerðir brjóta okkur niður.

--- 

Pabbi er að velta fyrir sér hvað hann eigi að gera við dollarareikninginn sinn. Á hann að skipta honum yfir í krónur eða láta hann standa.

Kannski væri réttast, í ljósi nýjustu frétta um hugsanlegt "Rússagull", að skipta þeim í rússneskar rúblur!  

Þá er alla vega hægt að segja eins og skáldið "þessi rússneska rúbla er mín, ég er ríkur....o.s.frv.....


Æðruleysi og auðmýkt

Þetta er sorgleg staða og varla að það taki tárum eða sé á bætandi að blogga um.  Þegar tilkynnt var um þjóðnýtingu Glitnis fór skriðan af stað og því miður hefur það kostað þetta.  Ég ákvað strax að láta mitt vera enda ekki með umtalsverðar fjárhæðir inni á reikningum og hugsaði með mér ef allir fara af stað og taka út þá fyrst fer allt til fjandans.

Það er samt eðlilegt að fólk grípi til þeirra ráða þar sem ævisparnaður þess á í hlut.  Þó tel ég að ábyrgð stjórnvalda sé það mikil í þessu máli að þau verði að ábyrgjast allar inneignir í bankanum og tryggja að þær rati rétta leið til eigenda sinna eftir því sem kostur er.

Mér finnst sorglegt að sjá á eftir duglegu fólki úr viðskiptalífinu og það hlakkar ekki í neinum yfir því hvernig komið er.

Svo mikið er víst.  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir orðaði þetta svo vel í sjónvarpinu í gær þar sem hún var í örstuttu viðtali, að jafna sig eftir erfiða aðgerð.   Horfast í augu við vandamálið, taka á því af æðruleysi og auðmýkt og horfa bjartsýn fram á veginn.

Takk fyrir þetta Ingibjörg Sólrún og innilegar óskir um góðan bata.  Ég sendi þér góðan hug og þín er minnst í bænum okkar hér að heiman. 

 


mbl.is Reiðir viðskiptavinir Landsbankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband