Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
mán. 6.10.2008
Svart er það en sóknarfæri fylgja
Maður er orðlaus eftir daginn og er þá ekki ofmælt! Allt virðist vera í kalda kolum og óöryggi fólk sést víða. Ég ætla ekki að reyna að segja neitt gáfulegt því mér er orða vant. Þó get ég ekki annað en reynt að sjá jákvæðu hliðar þessarar holskeflu sem ríður nú yfir heiminn.
T.d. þá erum við nú farin að tala saman. Úti í búð velta menn fyrir sér ástandinu og reyna að stappa stálinu hver í annan.
Talað er um af framámönnum þjóðarinnar að reyna að auka við veiðiheimildir landi og þjóð til góðs og einnig reynir fólk almennt að draga saman í neyslu sinni.
Ég stend sjálfa mig að því að hugsa á svipuðum nótum og þegar ég var með sex manna heimili og virkilega þurfti að spá í heimilisútgjöld.
"Ef mig vantaði eitthvað og átti ekki fyrir því þá lét ég mig bara vanta það!"
Þetta sagði góð vinkona mín við mig á þessum árum og ég reyndi að taka þessi orð hennar til fyrirmyndar.
Við verðum að vera róleg og umfram allt ekki rjúka til og rífa allt okkar lausafé út úr bönkunum og troða því undir koddann. Þá fyrst syrtir í álinn.
Við verðum að treysta því að það sem stjórnvöld eru að gera nú muni skila okkur í gegn um þetta.
Geir H. Harrde var ekki nærri nógu skýr í ávarpi sínu til þjóðarinnar í dag. Þorgerður Katrín og Steingrínur J. túlkuðu þó ágætlega ræðu forsætisráðherra eftir að hann talaði í "véfréttastíl" til landmanna í dag.
Ég sakna Ingibjargar Sólrúnar virkilega mikið af sviðinu. Hún er frábær leiðtogi sem segir skýrt og á mannamáli hver staðan er. Ég sendi henni bestu óskir um góðan bata.
lau. 4.10.2008
ESB?
Ég velti því fyrir mér hvort það sé raunhæft af Samfylkingunni að vilja setja umsókn um aðild að ESB á dagskrá nú?
Við höfum ekki tekið umræðuna í alvöru en erum nú komin í aðstæður sem gætu flokkast undir það að við séum neydd til að sækja um aðild?
Hvað höfum við þá á samningsborðinu? Vandamál? Brotna krónu? Bilað hagkerfi?
Því miður er ákveðin hætta á því að við séum komin með of mikil vandamál í bili til að það sé raunhæfur kostur að sækja um aðild einmitt núna?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
lau. 4.10.2008
Hverjum er kreppan að kenna?
Hin svokallaða kreppa sem herjar nú á heiminn hefur fengið gríðarlega umfjöllun fjölmiðla enda ástæða til.
Miklar vangaveltur og getgátur eru uppi um orsakir og auðvitað afleiðingar. Mest hefur þó borið á tilhneigingu manna til að finna sökudólga.
Hverjum er kreppan að kenna?
Eigum við eitthvað að vera að velta því fyrir okkur?
Auðvitað verðum við að reyna að finna út hvað það er sem gerir það að verkum að bullandi hagsæld og uppgangur skellir okkur skyndilega niður á hrjúfan botn þar sem fálmkennt handapat virðist vera það eina sem menn grípa til. Svona til að læra af því.
Burtséð frá ytri aðstæðum eigum við að skoða í okkar eigin ranni.
Fórum við offari?
Auðvitað gerðum við það almenningur, með eyðslu okkar og neyslufrekju höfum við skapað botnlausa græðgisvæðingu sem erfitt getur verið að beisla.
Forsvarsmenn bankanna hafa ekki sýnt nauðsynlega aðgát en þvert á móti hvatt til eyðslu með botnlausum lánveitingum, útrás og bruðli m.a. með ofurlaunum í eigin vasa.
Stjórnmálamennirnir hafa sofið á verðinum og ekki gripið til aðgerða til að stemma stigu við þessu "fylleríi" okkar. Því fór sem fór.
Við höfum öll flotið sofandi að feigðarósi. Því varð það mér svona nettur léttir að uppgötva að gamla "sláturgerðargenið" var farið að rumska innra með mér. Mig klæjar í að grípa til aðgerða.
Skella mér í það að taka nokkur slátur svona til að létta á pyngjunni. Mér finnst slátur að vísu ekkert gott en það má alveg svæla því í gesti!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
sun. 6.7.2008
Hroki
Ég upplifi brottvísun þessa manns sem hroka. Valdhroka af verstu gerð.
Málið er ekki tekið fyrir, maðurinn hefur unnið fyrir ABC hjálparstarf hér á landi og stjórnvöld horfa ekki til fjölskyldu hans og þess að hann á nýfætt barn hér á landi. Hver er réttur þess einstaklings?
Íslensk lög kveða á um að börn eigi rétt á að umgangast báða foreldra sína.
Ég vona að mál Pauls Ramses fái farsælan endi en íslensk stjórnvöld eru sannarlega ekki þátttakendur í því að svo verði.
Af visir.is
"Rúmlega 12 hundruð manns hafa sett nafn sitt á undirskriftarlista sem stofnaður hefur verið til stuðnings Keníamannsins Paul Ramses sem vísað var úr landi í fyrradag.
Paul Ramses er nú staddur í Róm á Ítalíu þar sem hann dvelur á gistiheimili fyrir flóttamenn. Mál hans verður tekið fyrir hjá lögregluyfirvöldum snemma í fyrramálið en búist er við að hann dvelji á Ítalíu næstu þrjár vikur.
Hátt í hundrað manns mættu fyrir utan dómsmálaráðuneytið síðastliðinn föstudag til að mótmæla því að Útlendingastofnun fjallaði ekki um mál hans. Þá mættu fjörutíu manns fyrir utan ráðuneytið í gær."
--
I belive Icelandic Goverment is on a wrong way. It is arrogant to don´t listen to people that has worked here for ABC and send this man to Italy. Paul Ramses has a woman and child in Iceland.
I ask where is the childs right to have both parents with him as say´s in Icelandic laws?
I hope for happy end for this man but the Icelandic Goverment is not helping at all.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
þri. 24.6.2008
MS sjúklingar bíða, lyfið er komið
Vafist hefur fyrir heilbrigðiskerfinu að taka nýtt og áhrifaríkt lyf gegn MS sjúkdóminum í notkun. Lyf þetta Tysabri hefur verið í notkun í nágrannalöndunum undanfarin sennilega tvö ár.
Grænt ljós kom á lyfið hér á landi á þessu ári.
Lyfið er gefið á dagdeild Landspítalans og annar sá tími sem ætlaður er til að gefa lyfið ekki eftirspurn.
Ég er búin að fá úrskurð um það frá sérstakri nefnd sem metur hverja umsókn og hvern einstakling að ég eigi að fá lyfið. Það er þó ekki hægt fyrr en í haust. Ástæðan er sú að dagdeildin er þegar komin með alla þá MS sjúklinga sem hún getur sinnt.
Það eru auk þess að koma sumarfrí svo ekki flýtir það fyrir því að við sem bíðum fáum lyfið.
Ég spyr hvað er til ráða?
Það er komið lyf sem klárlega gagnast mörgum mjög vel en við fáum ekki lyfið?
Ég finn fyrir auknum einkennum MS, einkennum sem ganga ekki til baka eins og oft áður.
MS félagið hefur sjúkradagvist á sínum snærum þar sem var yfirlæknir. Til að styrkja þá dagvist sem sjúkrastofnun var ráðin hjúkrunarfræðingur til starfa sem forstöðukona. Sá hjúkrunarfræðingur rak svo lækninn frá störfum, svo nú stendur félagið eftir steingelt og getur ekki tekið að sér það veigamikla hlutverk sem er að þjónusta alla MS sjúklinga.
Tilvalið hefði verið að koma til móts við spítalann og gefa sjúklingum skammtinn á sjúkradagvistinni t.d. eftir að spítalinn hefði gefið fyrstu skammtana og fylgst með hugsanlegum aukaverkunum sem koma einkum fram við fyrstu tvö til þrjú skiptin ef þær eru einhverjar.
Heilbrigðisyfirvöld geta ekki skákað lengur í skjóli peningaleysis. Það er lögboðinn réttur þegnanna að fá bestu og áhrifaríkustu lækningarmeðul sem til eru hverju sinni.
Lyfið er komið og við eigum að fá það.
Strax!
--
MS patients in Iceland are still waiting for tha new medichine Tysabri. It has been given to MS patients in other countries for about teo years and has shown very good results.
It was allowed in Iceland this year but we need more people at the hospital to give it to us. (Money)
It is a shame that patients have to wait for solution that exists!
Where is the health care system going?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.6.2008 kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 22.6.2008
Endurheimt votlendis - mýrlendis
Kynningarfundur var haldinn nýlega að stofnun Náttúrusjóðs. Sjóðnum er ætlað að styrkja stöðu náttúruverndar á Íslandi með fjármögnun náttúruverndarverkefna.
Fyrsti formaður sjóðsins Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur segir að áhersla sjóðsins verði í fyrstu á endurheimt votlendis.
Gott og vel. Ég fagna þessu framtaki.
Fyrsta verkefni sjóðsins ætti því að vera að berjast fyrir því að flugvöllurinn í Reykjavík verði áfram á sama stað. Í Vatnsmýrinni.
Ástæða?

Einkar sjaldgæft votlendi sem er Vatnsmýrin. Votlendi með einstöku fuglalífi. Það þekkist hvergi annars staðar í heiminum að svo fjölskrúðugt fuglalíf í mýrlendi þrífist svo nærri borg. (Inni í borg).
Votlendi sem hverfur ef byggð verður borg með tilheyrandi drenlögnum og öðru sem fylgir.
Votlendi (mýrlendi) og fuglalíf þess sem ætti að friðlýsa eigi síðar en strax.
---
A new Foundation for the nature of Iceland had a meeting last Friday. The first thing to do is trying to get back wetland in Iceland that is getting smaller and smaller.
Some people want´s to move the Reykjavík airport from Reykjavík to get more land for new buildings.
New "downtown"!
The founation should fight for the airport in Reykjavík to stay where it is.
Reason?
Wetland and birdlife around the airport.
Wetland and birds that will disapear if the airport will be moved and we build on the land.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.6.2008 kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 17.6.2008
Einn eftir
Samkvæmt draumi bóndans á Hamri á enn einn ísbjörn eftir að ná landi hér á næstunni. Þá líklega í Skagafirði.
Ég mæli með að búrið verði geymt hér enn um sinn og danski dýralæknirinn Carsten Grøndahl verði kyrrsettur þar til það gerist. Alla vega skilji hann þekkingu sína eftir hérlendis svo fyrr megi bregðast við þegar næsti ísbjörn stígur á land.
Annars eru þetta mjög athyglisverðar tilraunir. Björnunum sem koma hingað dauðuppgefnir og særðir er umsvifalaust vísað úr landi eða þeir drepnir.
Umhverfisverndarsinnar ættu að berjast fyrir því að birnirnir hreinlega fái landvistarleyfi hér þar sem það er greinilegt að þeim er illa vært á sínum eigin heimaslóðum.
Væri það ekki að vernda framgang náttúrunnar?
Birnir eru friðaðir en fólk ekki.
--
An old farmer dreamed that three polar-bears was walking in his land in Skagafjörður. We already have had two in Skagafjörður in Iceland this summer. That leaves one behind. When will that animal come?
I hope the equippment to move next bear to his homeland will be left in Iceland along with dr "doolittle" Carsten Grøndahl from Danmark, to make it easier to save the next "guest" and move it to its home.
I think people trying to save the bears should ask for premission for them to live in Iceland. Since they have choosen to swim all the way to us it is obviously nothing for them in their homeland.
After all it is not allowed to kill the bears but the bears can kill people!
Wouldn´t that be nice?
![]() |
Ísbjörninn að Hrauni dauður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.6.2008 kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
lau. 7.6.2008
Loksins, loksins
Loksins hefur Vilhjálmur tekið þessa ákvörðun og það er vel. Hann hefur ígrundað stöðuna og tekið sér, að sumra mati, allt of langan tíma í þetta.
Mín skoðun er sú að hann hefði átt að hætta strax þegar Björn Ingi hljóp í fangið á minnihlutanum.
Það var trúnaðarbrestur sem hann átti að varpa af fullum þunga yfir á Björn Inga.
Það er líka umhugsunarefni að "Tjarnarkvartettinn" svokallaði, hafi ekki gert sér grein fyrir veikleika þess samstarfs og lagt það á borgarbúa að umbylta öllu fyrir 100 daga.
Hvað um það Hanna Birna er skelegg kona og vel að þessu komin.
Hún mun standa sig í stykkinu!
![]() |
Hanna Birna verður borgarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
lau. 26.4.2008
Hlutverk fréttamanna?
Ég hef stundum velt fyrir mér hlutverki fréttamanna og fjölmiðla almennt. Eftir að Lára Ómarsdóttir sagði upp vegna óheppilegra ummæla sinna í beinni útsendingu hafa þessar hugsanir komið upp á yfirborðið á ný.
Ég tók eftir að hún sagði einnig að lögreglan hefði verið undir "þrýstingi" frá fjölmiðlum og það hefði hugsanlega spilað inn í aðgerðir þeirra gegn atvinnubílstjórum nú í s.l. viku.
Þá spyr ég, er það hutverk fjölmiðla að beita þrýstingi? Er það ekki fyrst og fremst hlutverk þeirra að miðla fréttum? Ég held að hasarblaðamennska og allar vangaveltur um "fjórða valdið" séu vægast sagð misskildar.
Það kann ekki góðri lukku að stýra ef fjölmiðlar eru þannig farnir að stýra atburðarrásinni.
Mér finnst að alla aðila hafi sett verulega niður í þessu máli. Ekki síst fjölmiðla sem hafa viðhaldið vitleysunni með stöðugu áreyti og uppblásnum fréttum af litlu sem engu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mið. 23.4.2008
Ísland vantar leiðtoga
Ég fylgdist í forundran með mótmælum vörubílstjóra og fólksins af ráðhúspöllunum 24. janúar s.l., í beinni í dag. Maður er dálítið fljótur að detta inn í hasarinn og svona uppákoma minnir mann á hve stutt er í stríðseðlið í okkur.
Mér fannst yfirgengilega heimskulegt og dónalegt af vörubílstjórum að mótmæla við Bessastaði þar sem Mahmud Abbas var staddur. Þeir eru að mótmæla reglugerðum og háu olíuverði þar sem maður sem er að berjast fyrir tilveru sinnar þjóðar er í heimsókn!
Keyrði svo um þverbak í dag. Allt fór úr böndunum! ALLT!
Eftir situr að Ísland vantar sárlega leiðtoga. Það dugir skammt að læðast með veggjum og láta sig hverfa í stað þess að taka af skarið. Ætla að þegja þetta í hel!
Hvers vegna ekki að segja eins og er? Heimsmarkaðsverð á olíu er að hækka og mun eflaust halda áfram að hækka og því getur lausnin ekki legið í aðgerðum ríkisstjórnarnnar í að lækka olíuverðið. Lausnin hljóti því að liggja í sparneytnari farartækjum. Það og margt annað verði að skoða og halda áfram að leita lausna sem allir geti vel við unað.
Hvers vegna ekki að koma fram og segjast allur af vilja gerður til að leysa mál varðandi reglugerðir?
Þetta eru jú bara reglugerðir og eru mannanna verk, því ætti að vera hægt að finna lausn á því.
Sum mál leysast af sjálfu sér en fráleitt öll.
Það hljómar vægast sagt illa að heyra forsætisráðherra argast út í eina stétt, jafnvel þó hún fari fram með offorsi.
Hvers vegna ekki að taka slaginn Geir Haarde?
Það hefði Jón Baldvin gert, já og Davíð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)