Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Eigum við að borga þeim laun yfir höfuð?

Að öllu eðlilegu og það gerist í venjulegum fyrirtækjum að þeir sem fremja afglöp í starfi eru reknir!
mbl.is Laun ráðamanna lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skref í áttina

Það er vissulega skref í áttina að málshöfðun á Bresk stjórnvöld að samþykkja þessi lög.

Ég er þó hrædd um að margar hindranir séu í veginum.

Það er tímafrekt og snúið að höfða mál vegna þessa en að sama skapi nauðsynlegt að fá úr því skorið fyrir dómstólum hvort þessi leið í samskiptum vinaþjóða sé boðleg?

Hvort það sé eðlilegt að frysta eigur fjármálastofnunar á jafn viðkvæmum tíma fyrir efnahagskerfi heillar þjóðar?

Hvort um tækifærissinnaða ákvörðun í tilraun að auka eigin vinsældir heima fyrir  sé að ræða?

Hvort "okkar menn" voru búnir að haga sér þannig að Bretar sáu enga aðra leið?

Við viljum svör, sem réttust svör, þó þau verði óþægileg fyrir einhverja. 

 


mbl.is Fé til málshöfðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherra segir af sér?

Hvernig má þetta vera?

Hefur Belgíski ráðherann ekki reynt Íslensku leiðina?

Að humma þetta fram af sér?

Hvaða hvaða??? 


mbl.is Dómsmálaráðherra Belgíu segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

P.S. Gleymdi fleirum sem eiga að fjúka....

Ég gleymdi að minnast á spillta ritstjórna sem haga fréttaflutningi eftir afli peninga.  Auðvitað eiga þeir að pakka saman og þótt fyrr hefði verið.

Reynir Traustason hafði svo sem ekki mikla tiltrú í samfélaginu fyrir en eftir að opinberað var hvernig hann hagar sinni ritstjórn og ritskoðar fréttir á hann ekkert traust eftir hjá almenningi.

 


Fleiri eiga að fjúka.

Ráðherrar, þingmenn, bankastjórar, eftirlitsmenn, og einnig forseti lýðveldisins.

Hann hefði getað staðfest fjölmiðlalögin en ekki látið undan þrýstingi auðmanna um að gera hinn undarlega gjörning sem var að staðfesta ekki lög frá alþingi.

Ráðherrar bera ábyrgð, alveg sama hvað þeir segja, forsætisráðherra, fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra.  Aðrir ráðherrar sem tengjast mönnum með vafasama slóð í tengslum við bankahrunið eiga einnig að víkja eins og t.d. menntamálaráðherra.  

Þingmenn sem eiga aðild að hruninu eða hafa bjargað eigin skinni eða reynt að bjarga eigin skinni í kjölfarið eiga að pakka saman.

Bankastjórn Seðlabankans hefur ekkert erindi lengur, uppvís að klúðri á klúður ofan.

Bankastjórar bankanna og stjórnendur sem voru ábyrgir fyrir hrun eiga að fjúka líka.  Að sjálfsögðu! 

Eftirlitsmenn hafa alls ekki staðið sína plikt! 

Burt með allt þetta fólk sem hefur komið okkur þangað sem við erum.

Við treystum ekki þessu sama fólki til að byggja upp aftur á eigin rústum. 

Þó þau telji sig vera í björgunarleiðangri þá tel ég alveg óhugsandi að þau sem ullu slysinu bregði sér sjálf í hlutverk björgunarsveitar.  

Fólk sem lendir í slysi eða veldur slysi fær venjulega taugaáfall og á að njóta aðhlynningar, fá áfallahjálp, en ekki ráfa um á rústunum.

Þá koma venjulega utanaðkomandi vel þjálfaðar björgunarsveitir sem taka málin í sínar hendur með sameiginlega stjórnstöð sem sér um að öll vinnubrögð verði fumlaus og markviss. 

--

Auðvitað á tafarlaust að rannsaka málin og sækja menn til saka eftir atvikum.  Við eigum ekki að líða lögbrot eða einhvers konar Enro hneyksli hér á landi!  Hver er að tefja þau mál?  

 

 

 

 


mbl.is Tryggvi hættur í Landsbankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin fær mjúka meðferð hjá fjölmiðlum auðmanna

Þessu heldur Bjarni Harðarson fram í viðtali á mbl.is og það er hætt við að það sé rétt hjá honum.

Ekki bara Samfylkingin heldur Framsóknarflokkurinn , Sjálfstæðisflokkurinn og aðrir flokkar hér á landi.

Nú er nauðsynlegt að stofna nýjan öflugan og óháðan fjölmiðil. Hann myndi sópa til sín góðu fólki sem vill vinna vinnuna sína án þrýstings auðmanna og stjórnmálamanna.  Allir vita að þegar auðmenn og stjórnmálamenn plotta saman á þann hátt sem þeir nú gera myndast banvænan kokteil á vettvangi fjölmiðla sem og á öllum öðrum sviðum í þessu þjóðfélagi.

Íslendingar eru kúguð þjóð með spillta ríkisstjórn og spilltan þingheim sem allur er meira eða minna blandaðir í þetta hrun Íslenska bankakerfisins á einn eða annan hátt.  

Það segir sig sjálft að það er svo fyrst ekkert gerist til að upplýsa mál og skýra hvers vegna staðan er eins og hún er.  

Þingheimur er drulluhræddur um eigið skinn!

Þingheimur og auðmenn komast upp með margt meðan fjölmiðlar sinna ekki upplýsingaskyldum sínum en eru lamaðir undir hæl auðmanna sem halda stjórnmálamönnum í spennitreyju. 

 


mbl.is Stjórna í gegnum fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúguð þjóð.....gott þegar einn stendur upp! Takk Jón Bjarki.

Á eyjan.is er m.a. fjallað mjög ítarlega um mál Jóns Bjarka Magnússonar og ritstjórnar DV sem er í raun mál allrar þjóðarinnar.  Jón Bjarki mat það rétt að svona kúgun er ekki einkamál blaðamanna.

Ritstjórar DV þeir Reynir Traustason og co hófu ófrægingarherferð gegn honum eftir að hann sagði frá því að frétt hefði verið stöðvuð.  Jón Bjarki mætti með upptöku af samtali sínu við Reyni í Kastljósið og sannaði þar með hver sannleikurinn er í þessu máli.

Það sem er mest óhuggulegt er það að sá sem er "pappírstætarinn" í málinu Sigurjón Þ. Árnason gengur laus í húsnæði Landsbankans og tætir gögn til að hvítþvo eigendur DV, 365, Moggans og annarra fjölmiðla.

Hótar greinilega ritstjórum á meðan hann starfar í skjóli nætur við sína iðju.

Þetta er spurning um líf eða dauða blaðsins sagði Reynir Traustason.  Það er greinilega svo í orðsins fyllstu merkingu.

Reynir Traustason hyggst lögsækja Kastljós fyrir að birta trúnaðarupplýsingar með upptöku af samtali sínu og Jóns Bjarka.  O.k. hann um það en ég segi hver átti að lögsækja Reyni og DV fyrir að "vitna í" þetta sama trúnaðarsamtal og ljúga upp á blaðamanninn?

Reyna að svipta hann ærunni?

Nú ætla ég að nota orðalag sem mér hefur hingað til ekki hugnast.  Reynir Traustason er gersamlega búin að drulla upp á bak já eigum við að segja alla leið upp á hnakka og hann situr fastur í eigin skít.

Slæmu fréttirnar eru að almenningur í landinu situr fastur í lygavef spilltra stjórnmálamanna, peningamanna OG fjölmiðlamanna.

Góðu fréttirnar eru þær að Reynir Traustason hefur STAÐFEST orðspor DV sem sorprits.

Hvet alla til að lesa umfjöllun á eyjan.is og  auk þess á eftirfarandi færslu kemur fram hvert hlutverk Sigurjóns er í húsnæði Landsbankans um þessar mundir. 

 

http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/745526/#comments 


Klíkuskapur.....

Það er hámark spillingarinnar þegar jólasveinar eru farnir að gefa hver öðrum girnilegar grillkartöflur í skóinn.

Var Össur ekki að tala um að fækka aukakílóunum utan af ráðherrunum?

Það gerist varla með þessu áframhaldi.

Svo setja þeir auðvitað smjör inn í hana!Shocking 


mbl.is Össur fær kartöflu frá Stekkjastaur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krafa um afsögn dómsmálaráðherra

Hópur sem kallar sig "raddir fólksins" krafðist afsagnar dómsmálaráðherra í dag.

Hrun bankanna tekur sífellt á sig nýjar myndir.  Ljóst er að afsaga sífellt fleiri verður krafist því lengra sem líður án þess að neinn axli sín skinn.

Hvernig væri að einn eða tveir ráðherrar og einn eða tveir embættismenn segðu nú af sér?

Burtséð frá sekt eða sakleysi.

Að bera ábyrgð og fá greidd laun fyrir að bera ábyrgð þýðir líka að þegar trúnaðartraust bregst þá ber þeim að víkja.

Ekkert kjaftæði! 

 


mbl.is Raddir fólksins hjá saksóknara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknarhagsmunir

Þetta eru orðnir fremur rýrir hagsmunir okkar megin.  Peningalegir hagsmunir eru Luxemburgar og Belgíu. Okkar eru rannsóknarlegir hagsmunir.  Þó má ekki gera lítið úr þeim hagsmunum sem geta skipt miklu varðandi bankahrunið.

Það verður að kryfja þessi mál ofan í kjölinn en spurningin er hvernig það verður hægt meðan lög Luxemburgar halda slíkri verndarhendi yfir bönkunum að ekki virðist unnt að fá gögn um starfsemi bankanna eða háttarlag stjórnenda hans og starfsmanna.

Ég vona svo sannarlega að Björgvin standi fast á þessu en verði ekki að éta yfirlýsinguna ofan í sig eins og forsætisráðherrann varð að gera í Ice-save málinu.

 

 


mbl.is Kaupþing í Lúx ekki selt nema gögnin fáist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband