Farin til Póllands....

Ég var að bóka mig til Póllands.  Það er ekki leiðum að líkjast að vera líkt við Pólverja.

Ég man eftir því árið 1992 að þá var erfitt ástand búið að vera í Póllandi en Pólverjar voru farnir að ferðast um í rútum m.a. í Danmörku þar sem við vorum í fríi.

Við fórum í Legoland og þar mættu Pólverjar á rútunum með fjölskyldurnar.

Börnin keyptu ekki stóra Legokassa eins og synir okkar höfðu safnað fyrir í ár eða lengur, en þau voru þarna. 

Pólverjar eru duglegir, sparsamir og heiðarlegir.

Vonandi verðu við þannig líka.......þegar okkar tími kemur!! 

 


mbl.is Íslendingar „nýju Pólverjarnir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinn pólitíski Seðlabanki Íslands

Hvað getur maður sagt?

Annað en ekki ráða pólitíkusa í starf seðlabankastjóra. 

ALDREI AFTUR.


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta þorði enginn að segja lengi vel...

Auðvitað hefur þetta hvarflað sð manni.

Hvernig má það vera að það fólk sem við treystum fyrir fjöreggi okkar brást svo gersamlega?

Glýja í augum vegna skammgóðrar velgengni truflaði alla siðgæðisvitund.

Hjá öllu liðinu.

Forsetanum líka sem baðaði sig í athygli útrásarinnar. 


mbl.is Borgarafundur á Akureyri í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn og tveir geymdir

ÆÆ.

Ég finn til.

Það er svo sárt að horfa upp á þetta.

Fyrir land og fyrir þjóð.

 


mbl.is Ingimundur baðst lausnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svalur Sullenberger

Það er svo óraunverulegt að sjá flugvélina fljóta á Hudson og báta leggjast að henni til að bjarga fólki af vængjum vélarinnar og úr neyðarrennibrautunum.

Gott að allt fór á besta veg. 

 

 


mbl.is Sullenberger: Ætlaði ekki að trúa þessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er gegnsæið Jóhanna?

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur talað fyrir gegnsæi í stjórnsýslu og því að vinna fyrir opnum tjöldum.

Hún neitar að gefa upp þá sérfræðinga sem vinna að nýju frumvarpi um Seðlabanka Íslands.

Er Jóhanna þar með dottin niður á plan margra vinstri manna sem telja að málstaður þeirra sé svo góður að þeir þurfi ekki að fara að leikreglum?

Jafnvel ekki þeim leikreglum sem þeir hafa sett sér sjálfir? 


mbl.is Hörð gagnrýni á seðlabankafrumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frestar hvalveiðum um tvær vikur

Er þetta hægt?

Nú er Steingrímur að grafa sér pólitíska gröf.

Í kreppunni ætlar hann að banna bjargræðið.

Bara vegna þess að hvalaskoðun tíðkast í hans kjördæmi.

Hann sem hefði getað slegið sér upp með því að láta ákvörðunin standa. 

Steingrímur þrjú atkvæði á heimavelli vega lítið á móti 3000 á landsvísu!

 

 


mbl.is Vond stjórnsýsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr bloggvinur manisvans

Nýr bloggvinur Máni Ragnar Svansson hefur bæst í hópinn.  Hann er HugarFlugMaður samkvæmt upplýsingum af bloggi hans.

Skemmtilegt biðlaunabloggið hjá honum og fleiri blogg.  

Kíkið á hann.

Velkominn manisvans.Smile


Stolt siglir fleyið mitt!

Það er gaman að fylgjast með því hvernig Framsóknarflokkurinn er að endurholdgast.

Framsóknarflokkurinn skiptir um stýrimann og skipstjóra og alla áhöfn og sveigir nú undirmannaðri skútunni af leið.

Maður veltir fyrir sér hvaða siglingarleið verði ofan á en nú er kúrsinn tekinn á  að afvegaleiða aðra flokka og tæla þá til fylgilags við maddömuna.

(Er það annars af leið í siglingarfræðum Framsóknarflokksins)? 

Framsóknarskútan sem var komin á hvolf hefur skyndilega fengið sér andlitslyftingu og risið úr hafinu tvíefld að kröftum en án liðsafla. 

Þó hefur nýtt fólk flykkst í skörð þeirra sem stukku af sökkvandi fleytunni.

Nýi Glitnir, Nýi Landsbankinn,  Nýja Kaupþing og Nýja Ísland hafa blásið framsóknarmönnum hug í brjóst og Nýi Framsóknarflokkurinn leit dagsins ljós eftir nokkuð klaufalegar færingarhríðar í formannskjöri.

Víst er að með Jónínu Ben og Sævar Ciesielski innanborðs munu Framsóknarmenn ekki þurfa að kvíða því að fá ekki vind í seglin.

Þvert á móti mun skútan skríða sem aldrei fyrr en hvert er ferðinni heitið? 

 

 


Heyr heyr!!!!!

Ég fagna þessari yfirlýsingu Radda fólksins um að mótmælunum verði haldið áfram.

Ég mun mæta eins oft og kostur er.

Því miður verð ég á "sellufundi" á laugardaginn en mun mæta síðar.

Það er nákvæmlega þetta sem þarf að gera og ég tek undir með hverjum þeim sem kemur fram með tillögur að úrbótum.

Síðan er útfærsluatriði hvernig við framfylgjum þessu.

Til að umbæturnar nái fram að ganga verðum við að mynda sterka samstöðu í grasrótinni og sameina krafta okkar.

 

 

 


mbl.is Mótmælt eftir stjórnarskiptin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband