Frestar hvalveiðum um tvær vikur

Er þetta hægt?

Nú er Steingrímur að grafa sér pólitíska gröf.

Í kreppunni ætlar hann að banna bjargræðið.

Bara vegna þess að hvalaskoðun tíðkast í hans kjördæmi.

Hann sem hefði getað slegið sér upp með því að láta ákvörðunin standa. 

Steingrímur þrjú atkvæði á heimavelli vega lítið á móti 3000 á landsvísu!

 

 


mbl.is Vond stjórnsýsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Þú hefðir betur kynnt þér málið betur!  Að hefja hvalveiðar nú er glapræði!

Auðun Gíslason, 6.2.2009 kl. 02:11

2 Smámynd: Örn Arnarson

Steingrímur hefur ekki gefið það út að hann ætli að snúa við ákvörðuninni.  Hann hefur sagt þetta undarlega ákvörðun ráðherra sem er að fara frá og þarf ekki að axla ábyrgð á henni.  Þetta er jú umdeild ákvörðun.  Sjáum til hvað Steingrímur ákveður, frænka, áður en við dæmum hann til glötunar.

For ðe rekkord þá vil ég að við veiðum hval og sem mest af honum.  Það þarf þó að finna milliveg þar sem hvalveiði og hvalaskoðun geta þrifist til jafns.  Hvað t.d. um hvalveiðiskoðun????

Örn Arnarson, 6.2.2009 kl. 08:25

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Ég sem hélt að Steingrímur kynni að vinna á tímum frummannsins þar sem lifað var af náttúruauðlindum hvaða nafni sem þær nefndust.

Steingrímur hefði átt að taka fagnandi þein vinargreiða Einars K. að vera búinn að taka ákvörðunina.

Steingrímur hefði því ekki þurft að taka umdeilda ákvörðun sjálfur.

Hann hefur í nógu að snúast núna hefði ég haldið þó hann þyrfti ekki að vera að eyða dýrmætum tíma í þetta.

Sama hvort hann ákveður að leyfa veiðarnar eða ekki. (Sem ég á eftir að sjá hann gera þar sem þrír hvalaskoðunarbátar eru gerðir út í hans kjördæmi).

Það hefur ekki talist glapræði gegn um tíðina Auðun að afla sér lífsviðurværis.

Vilborg Traustadóttir, 6.2.2009 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband