Fallin...

Fallin á eigin bragði?

 Eins og síðast Steingrímur?

 Eða?? 


mbl.is Elítan vill í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég komst ekki á kjörstað...

Því miður komst ég ekki á kjörstað í minni heimasveit Árneshreppi og kaus því utan kjörfundar.  

En ég kaus!

Það var að vefjast fyrir mér hvort það svaraði kostanaði að kjósa þar sem ég hef ekki trú á þeim kjörnu fulltrúum sem  brugðust okkur svo hrapalega í efnahagshruninu.

Ég heyrði í Evu á Djúpavík í morgun og var hún einmitt að bíða eftir að vegurinn yrði opnaður.  Hún sá moksturstækið (sem Ingólfur yfirmaður kjörtjórnar stýrir) út við Naustvík milli élja rétt fyrir símtalið en meðan ég talaði við hana var svo dimmt að hún sá ekki hvar hann var þá stundina.  

Það er því engin afsökun svo..... 

dont-be-the-goat-vote
mbl.is Sá fyrsti mættur í Árneshreppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. Mathiesen

Steingrímur J. Sigfússon hljómar nákvæmlega og þá meina ég NÁKVÆMLEGA eins og Árni M. Mathiesen gerði í sinni valdatíð sem fjármálaráðherra.

Maðurinn sem lofaði upplýsingum til almennings fljótt og örugglega  liggur nú á þeim eins og ormur á gulli og neitar að gefa almenningi kost á að taka upplýsta ákvörðun daginn fyrir kosningar.

Lýgur upp í opið geðið á okkur!

 

 


Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn


VG og Sjálfstæðisflokkur

Svandís Svavarsdóttir trúir ekki að Samfylkingin sem setur Evrópuaðild á oddinn láti stranda á málinu í stjórnarviðræðum við VG.

Gefum okkur að Ríkisstjórnin fengi meirihluta. 

Í kortunum er þá þetta.  VG er á móti aðild að ESB og gefur ekki eftir í því málinu, greinilega.  

Samfylkingin fórnar aðalstefnumáli sínu og sannfæringu fyrir valdastólana. 

VG fer með Sjálfstæðisflokki (ef svo ólíklega vill til að Samfylkingin vill standa við kosningaloforð sín) í stjórn og fær forsætisráðuneytið.  W00t

Þeir gætu hirt Borgarahreyfinguna upp í ásamt leifunum af Framsókn. 

 

 


mbl.is Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og kemst upp með það....

Steinunn Valdís kemst upp með að þiggja þetta fé af fyrirtækjunum Baugi Group og FL Group.

Alveg eins og Guðlaugur Þór.  Sem á að sjálfsögðu að segja af sér vegna tengsla sinna í "stóra styrkjamálinu" hjá Sjálfstæðisflokknum.

Ég kalla það mútuþægni að þiggja svo háar upphæðir í framboðssjóð.  Alvega sama hvort sá sam þiggur heitir Guðlaugur eða Steinunn. 

Það sem er skelfilegast í málinu er þó það hvernig Samfylkingarfólk telur að þeim sjálfum sé allt leyfilegt vegna þess að "málstaðurinn" er svo "góður"!

Viljum við þannig móral við stjórn landsins? 

 

 


mbl.is Steinunn Valdís fékk fjórar milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er alltaf að gerast....

Ég held að við ættum að fara varlega í að dæma aðra.  Þetta er alltaf að gerast hér á Íslandi.  Fólk skilur og annar aðilinn hverfur út úr lífi barnanna að verulegu leiti. 

Það sem gerir þetta dæmi einstakt er það að báðir foreldrarnir fara í einu.

Höfnunartilfinning barnanna er mikil hvort heldur sem er. 

Horfum okkur nær! 


mbl.is Skildu börnin eftir á pítsustað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er O-listinn svarið?

Ég skil vel ef O-listi Borgarahreyfingar er að fá byr í seglin núna.

Þessi hreyfing spratt upp úr Búsáhaldabyltingunni og er hið eina sanna afkvæmi hennar.  Vinstri Græn og hluti Samfylkingar reyna að eigna sér Búsáhaldabyltinguna eftir að þau frömdu nánast "valdarán" í kjölfar hennar. Að frumkvæði Framsóknarflokks.

Það sem verið var að mótmæla á Austurvelli var ástandið almennt og það flokksræði sem við búum við. 

Flokkstræði ALLRA flokka þar á meðal VG, Samfylkingar og Framsóknar. 

Það verður gaman að sjá endanlega niðurstöðu kosninganna og ég trúi því að Borgarahreyfingin fái fleiri en fjóra upp úr kjörkössunum! 


mbl.is O-listi fengi fjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins búið

Ég er bara nokkuð ánægð með það að stjórnmálamenn fái bara viku í kosningabaráttu.

Það er alveg nóg.

þegar svo á það er litið að ef Samfylkingin nær sínu fram í Evrópumálum þá þarf að boða til kosninga á ný til að breyta ákvæðum í Stjórnarskránni.  Þetta finnst mér eðlileg vinnubrögð.

Fyrst Lýðræðisbyltingin náði ekki fram að ganga í góðri og stórri breiðfylkingu þá er réttast að vinna málið í sátt allra aðila og í sátt þjóðarinnar.  Vinna það þannig á hinum pólitíska vettvangi.

--

Ég veit ekki enn hvað ég ætla að kjósa! 

 


mbl.is Takk fyrir, búið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað á ég að kjósa?

Ég er búin að velta því fyrir mér undanfarið hvað ég eigi að kjósa?

Það virðist enginn ásættanlegur kostur í stöðunni.  Ég tók þá ákvörðun í vetur að næst þegar ég myndi kjósa skyldi ég horfa á efstu menn á hverjum lista í mínu kjördæmi og velja síðan þann sem mér litist best á alveg óháð þeim flokki sem viðkomandi væri í framboði fyrir.

Mitt kjördæmi Norðvestur státar karlmönnum í öllum efstu sætunum.

Nú beiti ég útilokunaraðferðinni. 

GUÐBJARTUR HANNESSON NEI  (Samfylking)  Góður maður vafalaust en ekki mín týpa...

JÓN BJARNASON  NEI (Vinstri Grænir)  Allt of forn....

SIGURJÓN ÞÓRÐARSON  JÁ  (Frjálslyndir)  Nokkuð beinskeyttur og rökfastur...

ÁSGEIR MAN EKKI HVERSSON JÁ (Sjálfstæðisflokkur)  Skeleggur og lætur ekki slá sig út af laginu....

GUNNAR MAN EKKI HVERSSON NEI- KANNSKI (Borgarahreyfingin) Ekki nógu sannfærandi eins og ég var sannfærð um að styðja það framboð sem kæmi upp út búsáhaldabyltingunni.....og þó????

MAN EKKI HVER  NEI (FRAMSÓKNARFLOKKUR)  Hef aldrei kosið Framsókn og fer ekki að taka upp á því núna þrátt fyrir "björgunaraðgerðir" Sævars Cicielski og Jónínu Ben!  Man ekki hver þetta er en ef það er Kiddi Sleggja þá man ég ekki í hvaða flokki hann er stundinni lengur....

MAN EKKI HVER  NEI (Lýðræðishreyfingin)  Kommon Ástþór!!  Segir allt sem segja þarf....

 --

Eftir stóðu tvö JÁ og eitt KANNSKI.

SIGURJÓN ÞÓRÐARSON hinn frjálslyndi  og ÁSGEIR sjálfstæði frá Rifi .

Þangað til Sigurjón sagði eitt á framboðsfundi í sjónvarpinu og það var að hann teldi ólíklegt að Frjálslyndir færu í samstarf við Sjálfstæðisflokk eftir kosningar.

SIGURJÓN ÞÓRÐARSON NEI.  Ég hef aldrei tekið þátt í einelti og byrja ekki á því úr þessu,  jafnvel ekki þó óþekktarormar eigi í hlut.

--  

ÁSGEIR FRÁ RIFI JÁ.

Þrátt fyrir vangetu BJARNA BENEDIKTSSONAR til að taka á málefnum tengdum GUÐLAUGI ÞÓR ÞÓRÐARSYNI? 

Enda eru þeir bara Reykvíkingar.

KANNSKI verður KANNSKI bara KANNSKI. 

--

Er þessi aðferð nokkuð verri en hver önnur?  

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband