Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Umhverfisverd

Vinstri grænir og síðar Íslandshreyfingin hafa mjög sérstæðar skoðanir á umhverfisvernd.  Þessir flokkar vilja setja stopp á þær framkvæmdir sem hugsanlegar eru á næstu árum og tryggt gætu mörg þúsund störf til viðbótar á Íslandi.  Ástæða? Ókunn, a.m.k. mjög óljós.  Lítum aðeins á málið,
þau vilja loka álverinu í Straumsvík, þau vildu aldrei álver Alcoa á Reyðarfirði.  Þau berjast nú með kjafti og klóm gegn álveri við Húsavík, olíuhreinsunarstöð á Vestjörðum og fleiri möguleikum til atvinnuuppbyggingar. Í staðinn segjast þau geta skapað sama fjölda starfa með ferðamannaiðnaði.  Það myndi hins vegar þýða stóraukna mengun vegna tíðari flugferða til landsins, aukinnar bílaumferðar auk þess sem það gas sem stígur upp frá fólki er mengandi í sjálfu sér.  Aukin sorpúrgangur, traðkað og spólað land og landsspjöll um allt land.  Stóriðja byggir á staðbundnum landssvæðum þar sem metnaður stjórnenda þeirra er lagður í snyrtilegt umhverfi og fullkominn hreinsunarbúnað.  Virkjanir kosta land sem er fyrirfram valið og kostir og gallar metnir í umhverfismati fyrir allann pakkann.  Allt er þetta háð löngu og ströngu ferli áðurnefnds umhverfismats.  Ferðamannaiðnaðurinn verður seint beislaður með umhverfismati. 

Stórbruni-stóruppbygging

Það var hræðilegt að horfa á í beinni útsendingu þegar þessi fallegu og sögufrægu hús brunnu í dag.   Tjónið er ómetanlegt hvað menningarverðmæti varðar.  Þó var gott að ekki urðu slys á fólki.  Borgarstjóri var sleginn yfir atburðinum og tjáði vilja sinn í að byggja þetta horn upp að nýju í óbreyttri mynd, ef ég skildi hann rétt.
Þar er ég ósammála.  Þegar svona atburður gerist og tjónið er svo mikið að þurfi að reisa frá grunni á ný ætti að líta á það sem tækifæri.  Það vantar allt í miðbæ Reykjavíkur sem gerir hann að miðbæ.  Því ekki að kaupa lóðirnar (ríki og/eða borg) og byggja t.d. nýtt stjórnarráð og hafa pláss fyrir öll ráðuneyti og stjórnsýslu landsins í einu þrjátíu hæða húsi?
Síðan mætti byggja glerþak yfir Austurstræti og tengja bygginguna við Alþingishúsið og Ráðhúsið með skemmtilegum hætti.  Bílastæðahús yrði að sjálfsögðu undir húsinu og leysti þannig mikinn vanda á þessu svæði.  Húsið yrði gert mjög öruggt og brynvarið á alla kanta. Þannig stuðlum við að hámarksöryggi ráðamanna.
Vð Íslendingar verðum að fara að hugsa okkur upp úr moldinni.  Gerum Reykjavík að alvöru borg með hjartað á réttum stað.

mbl.is Borgarstjóri: „Þetta er mjög döpur stund“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LANDSFUNDUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS

 

Eigum við að leggja í að kjósa "Stopp" flokkana og glata þar með dýrmætu forskoti okkar? 

Eigum við að láta pólitískt minnisleysti ná völdum á ný? 

Eigum við að elta ólar við loforðagjálfur "Stopp" flokkanna sem hefur enga stoð í raunveruleikanum?

Ég segi nei!

Landsfundur Sjálftæðisflokksins hófst í dag og þar sagði Geir Haarde m.a. þetta.

"Íslendingar tapa forskoti ef framþróun verður stöðvuð
Hann fjallaði einnig í ræðu sinni um orkumál og sagði að Íslendingar byggju við einstakar aðstæður sem gerði þeim kleift að beisla endurnýjanlegar orkulindir í ríkari mæli en aðrar þjóðir. En grundvöllur þeirrar nýtingar væri þekking og hugvit. Í því væri forskot Íslendinga falið og þar liggi möguleikarnir til að hafa jákvæð áhrif á umhverfismál víðar en hér á landi.

„Við búum yfir sérþekkingu á þessu sviði sem aðrar þjóðir sækjast eftir og er nú þegar orðin útflutningsvara. Orkufyrirtækin eru leiðandi þekkingarfyrirtæki í alþjóðlegum samanburði og sérþekking þeirra mun nýtast í baráttunni við loftslagsmengun. Fái þeir að ráða sem vilja stöðva eða fresta framþróun á vegum íslenskra orkufyrirtækja sem eru leiðandi á sviði endurnýjanlegra orkugjafa ráðið, munum við Íslendingar einfaldlega tapa því forskoti sem við höfum á þessu sviði," sagði Geir."


mbl.is Geir: Eðlilegt að ríkið tryggi öllum lágmarkslífeyri úr lífeyrissjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Augar fyrir auga - tönn fyrir tönn

  Íbúalýðræði hefur verið mikið í umræðunni eftir frækilega framgöngu Lúðvíks “hins hugumdeiga” eins og viðurnefni hans væri vísast á máli Sturlunga.  Sturlungar stunduðu einmitt íbúalýðræði út í ystu æsar.  Þeir hjuggu mann og annan vegna þess einfaldlega að þeim datt ekkert annað ráð í hug til að leysa brýn vandamál.  Sturlungar flúðu Norska "lýðræðið" sem þá var Noregskonungur og settu á stofn virkt íbúalýðræði á Íslandi.  Sturlungar söfnuð liði þegar á þurfti að halda og riðu um héruð til að réttlætið næði fram að ganga eða bara til að ná yfirráðum hver yfir annars landsspildum. Þeim var ekkert heilagt og heilu fjölskyldurnar börðust innbyrðis uns blóð flæddi.  Þeir brugguðu hver öðrum banaráð og enginn var annars bróðir í leik.  Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn.
 -  
 Því er þó ekki að neita að íbúalýðræði á Sturlungaöld var MJÖG SKILVIRKT.  Vandamálin voru leist á staðnum og hurfu reyndar oftsinnis af yfirborði jarðar með einu höggi - í herðar niður.  Hvort Víkingasafnið í Hafnarfirði hefur þau áhrif að bæjarstjórnin þar í bæ greip til lýðræðistilburða Sturlunga í álversmálinu skal ósagt látið.  Bæjarbúar hafa nú útkljáð málið á sársaukafullan hátt og án nauðsynlegra upplýsinga frá bæjaryfirvöldum.  Þeir hafa slátrað gullgæsinni.  Ja nema hvað þetta var allt í plati?  Álverið getur stækkað – þrátt fyrir sársaukafullar orrustur innan fjölskyldna þar sem enginn var annars bróðir í leik.  Ekki fremur en á Sturlungaöld.  Hitt er svo það að opinbert skoðanaleysi bæjaryfirvalda verður seint rakið til Sturlunga sem aldrei lágu á skoðunum sínum.  
 -
 Því er næsta spurning hvort íbúalýðræði í kosningum til bæjarfulltrúa Hafnarfjarðar eftir þrjú ár skili réttlátir málsmeðferð í anda Sturlunga?  Jafnvel hvort það nær fram að ganga í Alþingiskosningunum í vor.  - Eitt er víst að mér hugnast ekki Sturlungalýðræði þeirra Hafnfirðinga og frábið mér það á landsvísu.  Sturlungaöld er liðin. 
Er það ekki?

Ekki Hafnarfjarðar-farsann - TAKK.

 Ég á yndislegt frændfólk og vini í Hafnarfirði.  Ég veit ekki hvað það kaus í “álverskosningunni” og ég ætla ekki að spyrja þau um það. Ég  og Solla systir vorum áðan í heimsókn hjá mömmu og pabba sem búa í Reykjavík eins og ég.  Við erum ekki sammála um tilhögun mála í þessu dæmalausa máli.  Við Solla höldum fram að ábyrgðin sé kjörinna fulltrúa en mamma og pabbi aftur á móti eru ánægð með framkvæmd og niðurstöðu mála.  Eftir dálítið þref og þvarg gat ég ekki á mér setið.  Ég sagði mikið er ég fegin að við búum ekki í Hafnarfirði.  Þar hafa kjörnir fulltrúar algerlega brugðist umbjóðendum sínum.  Velt vandamálum sem þeim ber að leysa yfir á bæjarbúa.  Klofið þannig heilu fjölskyldurnar og kostað borgarastríð meðal Hafnfirðinga.  Fólk grætur hvað undan öðru og sárindi sem aldrei gróa um heilt hafa myndast.  Fyrst við sem ekki búum þarna getum verið svona “vond” hvert út í annað hvað þá með þá sem lenda í þeirri aðstöðu að þurfa að berjast - með hnúum og hnefum?  Gegn eða með einu fyrirtæki í bænum sem mjög margir (fjölskyldur og vinir) byggja afkomu sína á?  Fyrirtæki sem hefur keypt lóð af bænum, fengið starfsleyfi og hefur unnið ötullega að fyrirhugaðri stækkun undanfarin átta ár.  Þvílíkt ótrúverðugt sem Ísland er oðið í augum annara þjóða.  Í augum fjárfesta.  Bananalýðveldi!  Það tekur nefnilega tíma að vinna upp trúnað og traust.  Því var kastað fyrir róða á einu bretti af óskynsömum meirihluta sem á greinilega ekkert erindi í bæjarstjórn Hafnarfjarðr.  Traust verður aldrei keypt fyrir peninga eins og því miður sumir virðast halda.  Íslendingar verða að skerpa reglur um íbúalýðræði og minnka svigrúm lýðræðislega kjörinna fulltrúa á að sýna þann heigulshátt sem bæjarstjórn Hafnarfjarðar sýndi í þessu “farsakennda” máli.  Vanhæfi stjórnenda á ekki að bitna á öðrum en þeim sjálfum.

Borgaralýðræði eða borgarastríð?

 

Ég horfði á Kastljósið í gær þar sem Andri Snær og Rannveig Rist mættu og skiptust á skoðunum um fyrirhugaðar kosningar vegna framtíðar álversins í Straumsvík. Andri hafði tilhneigingu til að setja öll álver núverandi og "tilvonandi" undir sama hatt og það leit út frá hans bæjardyrum eins og kosið yrði um þau öll á einu bretti í Hafnarfirði.  Meðan Rannveig benti m.a. á mikilvægi stækkunar fyrir vaxtamöguleika Alcan og samkeppnishæfi þess við önnur álver í heiminum. Kom líka fram í máli Andra Snæs að hann furðaði sig á því að stjórnvöld legðu það á borgarana með stóriðjustefnu sinni að borgararnir skuli "þurfa" að taka afstöðu í þessu máli.   Bíddu aðeins við?  Er ekki lýðræðislega kjörin stjórn í landinu?  Er ekki lýðræðislega kjörin bæjarstjórn í Hafnarfirði?  Er það ekki í verkahring lýðræðislega kjörinnar bæjarstjórnar að úthluta leyfum og öðru slíku fyrir atvinnustarfsemi í bænum?  Sem hún og gerði.  Í næstu andrá lætur þessi sama lýðræðislega kjörna bæjarstjórn kjósa um framtíð þessa sama gamalgróna fyrirtækis í bænum, sem vel að merkja hún sjálf er nýbúin að úthluta lóð og gefa samþykki fyrir stækkun?  Á sama tíma og bæjarstjórnin gerir þetta neitar hún að láta uppi sína skoðun á málinu?  Til hvers er verið að kjósa í bæjarstjórn?  Ef bæjarstjórnin þorir ekki að taka af skarið af eða á en hleypir af stað “borgarastríði” í annars friðsælum firði?  Lætur fólkið í bænum um að berjast um á banaspjótum í málefnum sem það er þegar búið að gefa bæjarstjórninni umboð til að skera úr um með því að kjósa hana yfir sig?  Hvað næst?  Andri Snær og samtökin Sól í Straumi ættu að líta sér nær og fjargviðrast út í Lúðvík Geirsson og hans kammerata fyrir að vera vanhæf til að stjórna í Hafnarfirði.  Guð forði okkur frá slíkri og þvíumlíkri ríkisstjórn.Shocking


Landnám á liðinni öld

Landnám var stundað hér á landi á Landnámsöld.  Það lagðist af er menn höfðu numið sér land og sett sig niður .  Lá það niðri í þúsund ár eða allt þar til landnámsmaðurinn Ásbjörn Þorgilsson fór í víking að leita uppruna síns og gekk grenjandi um strendur á Ströndum norður í lok síðustu aldar.  Ásbjörn mun komin út af Manga gamla Hannibalssyni, sæfara og hákarlaveiðimanni sem fluttist á Strandir og tók sér kvonfang þar. Ásbjörn þessi er þéttur á velli, nokkuð breiðleitur með augu ránfuglsins sem hann blimmskakkar á menn þyki honum ástæða til.  Ásbjörn þykir nokkuð forn í skapi og hafa menn í flimtingum að í honum búi öfgar tvær, alvara og gaman.  Þessu tvennu þyrfti að jafna út en því sé ekki að leyna að þar fari öðlingur mikill sem öfgar þessar mætast.
---
Ásbjörn hélt við annann mann á Strandir til landvinninga á níunda áratug liðinnar aldar, sá nefnist Hálfdán Guðröðarson og á ættir að rekja til Kálfavíkur í Skötufirði.  Höfðust þeir við í ættaróðali mínu sem stóð í vík nokkurri er nefnist Djúpavík.  Vistir höfðu þeir engar en höfðu þó byssu meðferðis og lifðu þannig á landsins gagni og nauðsynjum.  Ættaróðalið fékk nokkra andlitsliftingu í tíð þeirra félaga og munaði þar mjög um hugvit og útsjónarsemi Hálfdáns.  Má þar nefna að sett var stór kyndiofn í kjallara sem óspart var kyntur einkum til húshitunar en hann reykti mikið og þar sem ekki hafði verið þétt í rifur ættaróðalsins sátu þeir gjarnan í reykmekki miklum og sáu vart rifa í augu hvor annars um veturinn innandyra.   Unnu þeir ötullega að því að hreinsa innan úr verksmiðjunni því þeir voru stórhuga mjög og hugðu á fiskeldi í henni.  Undu þeir við þessa iðju lengi vetrar og þegar voraði kom eiginkona Ásbjörns, Eva Sigurbjörnsdóttir að vitja þeirra.
---
Eva sem er valkyrja mikil eygði óðara möguleika á frekari atvinnuuppbyggingu staðarins og fór svo að þau festu kaup á Kvennabragganum frá síldarárunum.  Það er skemmst frá að segja að þar með var svo mikið að gera í uppbyggingu hótels og ferðaiðnaðar á staðnum að þeir félagar Ásbjörn og Hálfdán hurfu frá fyrri iðju, Hálfdán hvarf á braut að vitja nýrra ævintýra sem ekki verða rakin hér.   

Þau Eva og Ásbjörn hafa því af miklu harðfylgi numið land á Ströndum.  Þarf ekki að orðlengja um það frekar, árangurinn stendur á Djúpuvík og víst er um það að hefðu þau ekki “numið land” á réttu augnabliki væri Djúpavík og ferðamannaiðnaður á Ströndum sýnu fátækari ef einhver. 

Uppbygging á Djúpavík væri alltént ekki hin sama og hún er í dag ef Ásbjörn og Eva hefðu ekki kosið sér búsetu á þessum fagra en eyðilega stað. 

---

http://djupavik.com/

ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ


Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.

 

------------

 

Mér finnst þetta aldrei of oft rifjað upp. Í hraða nútímasamtélagsins ættum við að gera það að vana að setjast niður og fara yfir daginn.  Rifja upp þessar einföldu staðreyndir.  Verðmæti framtíðarinnar eru í okkar höndum.   NÚNA, ekki á eftir eða einhvern tíma seinna.Heart


Samfélag á Ströndum

  

Ég er svo heppin að eiga rætur mínar að rekja norður á Strandir.  Það er blómstrandi sveitamenning eins og hún gerist best.  Þar sem “maður er manns gaman” þar er gaman að vera.  Við förum á hverju sumri og dveljum í húsinu okkar á Djúpuvík í lengri eða skemmri tíma.  Það er gaman að sjá hvað yngstu meðlimir fjölskyldunnar “fíla” veruna þar í botn. 

Í Árneshreppi eru menn skilgreindir eftir búsetu þar og lengd viðveru.  Við fjölskyldan lögðum leið okkar norður í Ófeigsfjörð eitt sumarið.  

Þar var okkur tekið sem höfðingjum og farið með okkur í skoðunarferð um landareignina.  Jafnframt fengum við glögga lýsingu Péturs bónda í Ófeigsfirði á því hvernig heimamenn skilgreina hvern annan.  “Hrifsarar” eru menn eins og Pétur í Ófeigsfirði, Drangamenn o.fl. sem koma á Strandir norður árla vors og “hrifsa” til sín landsins gæði eins og rekavið, æðardún, seli o.fl og halda síðan til vetursetu annars staðar og hafa með sér fenginn.  “Búi” er framsóknarmaður sem jafnframt stundar kvikfjárrækt.  “Búar” hafa vetursetu í Árneshreppi og búa þar búi sínu.  

Okkur fannst þessi útlistun góð hjá Pétri og vildum nú vita hvað við flokkuðumst undir sem kæmum bara til að vera og njóta.  “Þið” sagði Pétur “eruð umrenningar!”Grin

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband