Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
fös. 21.11.2008
So what?
Ég varð fyrir vonbrigðum eina ferðina enn með blaðamannafund forsætisráðherra.
Ekkert kemur fram nema það sem liggur í loftinu.
Sjálfsagðir hlutir eins og að falla frá eftirlaunafrumvarpi núverandi seðlabankastjóra og þáverandi forsætisráðherra.
Lögð til tímabundin launalækkun til þingmanna, ráherra og dómara ásamt forseta lýðveldisins.
Auðvitað eiga þau sem mesta ábyrgð bera að lækka laun sín.
Hvað með það? Þarf að halda fund með fjölmiðlum til að auglýsa það?
![]() |
Óska eftir launalækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 21.11.2008
Ný stjórn undir forystu Jóns Baldvins?
Ég hygg að það sem við gætum lært af mistökum og illahætti undafarinna missera í stjórnmálum sé að kasta ekki fyrir róða reynslu og þekkingu í pólitík.
Jón Baldvin Hannibalsson fer fremstur meðal jafningja í þeim hópi fólks og býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á öllum sviðum er lúta að því að stjórna landinu og styrkja stöðu okkar innan lands sem utan.
Ekki síst utan landsins þar sem mannorð okkar er í molum. Þar höfum við virkilega þörf fyrir menn eins og hann sem hafa góð sambönd og geta fljótt og örugglega skilað okkur árangri í þeim efnum.
Ungt og reynsluminna fólk, eldhugar, sem nú stíga fram hver af öðrum eiga að nota tækifærið og sgefa kost á sér með þeim reynslumeiri og þétta þannig raðirnar til eflingar okkar illa leikna landi.
Okkar illa leiknu þjóð sem virðist vera föst í helgreipum valdhafa sem taka vald sitt bara alvarlega þegar kemur að því að verja eigin hendur!
Réttlæta misgjörðir sínar meðan RÓM BRENNUR!
fös. 21.11.2008
Blaðurmannafundur
Blaðurmannafundur verður haldinn í dag klukkan fimm.
Forsætisráðherra og utanríkisráðherra boða til hans í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu.
Ekkert efni fundar er kynnt.
Á hverju eigum við von?
Stjórnarslitum?
Breytingum á Seðlabanka og fjármálaeftirliti?
Einhverju nýju um lánið frá IFM?
???
![]() |
Ráðherrar boða blaðamannafund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 21.11.2008
Björgunarleiðangurinn
Þá höfum við það. Ingibjörg er í miðjum björgunarleiðangri og telur ekki tímabært að ganga til kosninga.
Ég trúi því að hún skipti um skoðun þegar líður á næsta ár.
Það er ekki hægt að bjóða þjóðinni upp á það að sama fólkið og klessukeyrði þjóðarskútuna ráðskist svo með það hvar er byggt upp á ný og hvað er látið fara á hausinn.
Sama ófaglærða fólkið látið stjórna Seðlabankanum og kom þar öllu í þrot.
Ég er hrædd um að það sé ekki hægt að líkja þessu við slysavarnafélag vegna þess að slysavarafélög hjálpa fólki eftir þrengingar af völdum náttúruhamfara, slysa eða annarra atvika. Slysavarnafélög reyna að varast slys í stað þess að orsaka þau eins og ríkisstjórn Íslands hefur gert með óábyrgri stefnu í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Björgunarleiðangur ríkisstjórnarinnar snýst eingöngu um það að bjarga eigin skinni!
![]() |
Kosningar ekki tímabærar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 20.11.2008
Eðlilegt
Það er alveg eðlilegt að hafa kosningar í vor. Þjóðin getur þá skorið úr um hvort hún vill óbreytt ástand.
Það er kominn tími til að óbreyttir íslendingar sem ekki hafa látið að sér kveða í pólitík komi fram á sjónarsviðið.
Þjóðin hefur eining þörf fyrir reynda menn sem hafa reynst landi og þjóð vel í gegn um tíðina.
Ég hlakka til að ganga til kosninga norður á Ströndum næsta vor og kjósa rétt!
![]() |
Ráðherrar vilja kosningar í vor |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 19.11.2008
Nenni ekki að blogga um þetta
Ég nenni engan veginn að blogga um þetta.
Það er varla að stjórnendur í þessu landi hafi nennt að sækja um þetta eða koma málum í höfn þannig að þetta gengi eftir.
Hvað fór mikið í vaskinn meðan öll þessi vinna við að semja um það sem eignir voru til fyrir en menn föttuðu ekki fyrr en Björgólfur kom fram í sjónvarpi og sagði það?
Ráðherrar og Seðlabankastjórn nennir ekki að standa upp úr stólunum til að hleypa hæfu fólki að.
Það tekur því varla að gera neitt fyrr en þeir sem ábyrgð bera fara. Tíminn er allt of dýrmætur núna til að eyða honum í að réttlæta sjálfan sig og eigin gerðir eða aðgerðaleysi.
Farið bara frá og hleypið hagfræðingum og þeim sem hafa vit á málum að.
Þá nennum við kannski að gera eitthvað þarflegt.
![]() |
IMF samþykkir lán til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 20.11.2008 kl. 02:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mán. 17.11.2008
IFM
Það er jákvætt að hafa allt uppi á borðinu og gegnsætt þegar svona er háttað sem í dag.
Alveg rétt að birta þetta og leyfa þjóðinni að fylgjast með.
Getur það flokkast sem trúnaðarmál þegar við erum skuldsett upp í topp og svo út úr flýtur?
![]() |
DV birtir yfirlýsingu stjórnvalda til IMF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 15.11.2008
Vér mótmælum allir!
Þessi frægu orð Jóns Sigurðssonar eiga svo sannarlega erindi í dag. Samstaða þegnanna er mikil og það er alveg gersamlega óskiljandi að ekki sé nokkur maður í stjórnkerfinu sem tekur mótmælin til sín.
Ekki nokkur einasti einstaklingur sér ástæðu til að segja af sér.
Afglöp og afskiptaleysi blasir þó við allri þjóðinni en nei! Ráðamenn sem ábyrgð bera standa með allt niður um sig og eru húðstrýktir opinberlega á hverjum laugardegi......að sjálfum sér fjarverandi að vísu.
Þeir húka í felum, virðast ekki vita sitt rjúkandi ráð, halda fréttamannafundi samhliða því að vera sjálfir í þagnarbindindi.
Svona til að friða "skrílinn" sem hefur lýðræðislegan rétt til að mótmæla, eftir því sem þau viðurkenna með umburðarlyndu gervibrosi sem segir okkur meira en þau hefðu viljað láta uppi.
Umburðarlyndu gervibrosi sem segir þið hafið lýðræðislegan rétt til að mótmæla en við þurfum ekki að hlusta!
![]() |
Ráðamenn og frekir krakkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 14.11.2008
Fréttamannafundur
Nú stendur yfir fréttamannafundur þar sem Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttur kynna stöðu mála. Þau segja að þetta verði allt birt í blöðunum á morgun þannig að það fari ekki fram hjá neinum. Ingibjörg Sólrún sagði að loftrýmisaðgerðir af hálfu Breta yrði ekki innt af hendi. Ákvörðunin var tekin á vettvangi Nato.
Geir segist reikna með að IFM taki umsókn okkar fyrir strax eftir helgina en lausn er ekki komin á deilunni þó svo að staða okkar sé betri nú en í upphafi þar sem þeir séu tilbúnir í meiri tilslakanir nú.
Við höfum ekki fallið frá lagalegum rökstuðningi okkar þrátt fyrir það að við ábyrgjumst þær upphæðir sem um hefur verið deilt.
fös. 14.11.2008
Borgum ekki sagði Seðlabanki Íslands
Nú kemur það rækilega í hnakkann á okkur að hafa haft pólitíkus í seðlabankanum. Tækifærisinnaðan seðlabankastjóra.
Nú kemur það rækilega í hnakkann á okkur að hafa forsætisráðherra sem er ekki vanur að taka á málum.
Sem betur fer höfum við utanríkisráðherra sem er búin að fatta að hann/hún getur stjórnað þrátt fyrir og kannski vegna aðgerðaleysis forsætisráðherra.
Ég hef velt því upp áður að er umhugsunarefni hvort ekki eigi að veita Samfylkingunni brautargengi fyrir minnihlutastjórn með tilkomu fagmanna og annarra reynslumeiri manna til að styðja við þá stjórn og leyfa Sjálfstæðisflokknum að taka sér frí til að íhuga og marka sína stefnu sem virðist út og suður í veigarmiklum málum og tefur bara nauðsynlegan og skjótan framgang á þessum erfiðustu tímum sem mörg okkar upplifa nú.
Þau eru bara að þvælast fyrir!
![]() |
Utanaðkomandi mál tefja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |