Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
fös. 14.11.2008
Mæli með því........
Mæli sterklega með þessu. Þannig gætum við sloppið við að leggja timburmennina á komandi kynslóðir.
Timburmennina eftir okkar neyslu. Við yrðum að taka skellinn strax en er það ekki það sem alkarnir gera í og eftir meðferð?
![]() |
Gætum hæglega sleppt IMF-láni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 12.11.2008
Hneyksli sem við eigum að vinna að lausn á án þess að taka allar skuldbindingar. A big scandal!
Einfaldlega vegna þess að við höfum ekki efni á því. Það eru stjórnir í bæði Þýskalandi, Bretlandi, Hollandi og Belgíu sem sváfu einnig á verðinum.
Það þýðir ekki að fara með offorsi að einni þjóð vegna einkaaðila sem spiluðu samkvæmt reglum Evrópu án þess að hafa baklandið tryggt.
Ég leyfi mér að vona að fleiri sjái aðalatriðin eins og þessi maður og máli ekki Ísland sem allsherjar sökudólg í málinu, heldur beini augum sínum að því að leysa málið.
Gott hjá honum að koma og kynna sér málið hér.
Verst að það er greinilega fátt um svör.
--
I hope this scandal will be solved beetween the nations and tha banks. It is good to see people that are nt blaiming Iceland for all this.
This were a a privat banks that growed að lot and the Europian rules allowed it.
The whole system failed and we have to do everything we can to help getting this money back.
![]() |
Reiðir þýskum stjórnvöldum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.11.2008 kl. 08:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mið. 12.11.2008
Af dv.is-hvet ykkur til að lesa allt.
"Þau sitja sem fastast"
"Sjálfskapað valdaleysi Alþingis
Alþingi getur sótt ráðherra til saka og látið rétta yfir þeim. Það er unnt að gera á grundvelli 14. greinar stjórnarskrárinnar. Þar segir: Ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum. Ráðherraábyrgð er ákveðin með lögum. Alþingi getur kært ráðherra fyrir embættisrekstur þeirra. Landsdómur dæmir þau mál.
Á grundvelli þessarar greinar stjórnarskrárinnar voru sett lög árið 1963 um ráðherraábyrgð og landsdóm.
Fyrsta grein laga um landsdóm hljóðar svo: Landsdómur fer með og dæmir mál þau, er Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra.
Eftir hrun þriggja stærstu banka þjóðarinnar og gríðarlegt tap þjóðarbúsins, með tilheyrandi rýrnun lífskjara virðast lög um ábyrgð ráðherra frá 1963 auðveldlega geta átt við um störf og gjörðir þeirra nú.
Hirðuleysi ráðherra varðar við lög!
Í fyrstu grein laganna segir að ráðherra megi krefja ábyrgðar hafi hann annaðhvort af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi farið í bága við stjórnarskrá lýðveldisins, önnur landslög eða að öðru leyti stofnað hagsmunum ríkisins í fyrirsjáanlega hættu.
Í áttundu grein d-liðar sömu laga segir að það varði ábyrgð ráðherra ef hann verður þess valdandi að nokkuð það sé ráðið eða framkvæmt er skert getur frelsi eða sjálfsforræði landsins.
Loks verður ráðherra sekur eftir b-lið 10. greinar sömu laga ef hann framkvæmir nokkuð eða veldur því að framkvæmt sé nokkuð, er stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þessi sérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að framkvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir.
Í þrettándu grein laganna segir að hafi ráðherra bakað almenningi eða einstaklingi fjártjón með framkvæmd eða vanrækslu, sem refsiverð er samkvæmt lögunum, skal dæma hann til að greiða skaðabætur jafnframt refsingunni."
mið. 12.11.2008
Þjóðstjórn
Ég tel að nú sé mál að við Íslendingar setjum á stofn þjóðstjórn til að vekja athygli á samstöðu þjóðarinnar á þessum grafalvarlegu tímum.
Hreinsum í leiðinni út þá menn sem þrásat við að segja af sér og sjáum til hvort alþjóðasamfélagið breytir um viðmót við það.
Það er ekki trúverðugt að vera með sömu andlitin glottandi framan í heiminn og keyrðu allt í klessu hér heima og víðar af einstökum aulaskap!
![]() |
Staðan er grafalvarleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 12.11.2008
Skoðanir fólksins
Morgunblaðið er búið að auka pláss fyrir skoðanir fólksins undir yfirskriftinni "Umræðan" skoðanir fólksins"en það eru innsendar greinar tengdar umræðu dagsins í dag.
Mjög áhugavert framtak og góðir pistlar hjá mörgum.
Ég vek sérstaka athygli á grein frá Benedikt Jóhannessyni sem hann kallar "Leiðin út úr örvæntingunni". Þar telur Benedikt upp í nokkrum liðum hvað stjórnvöld ættu að gera strax.
Hann rökstyður mjög vel það sem hann segir nauðsynlegt en það er m.a.að tryggja að fólk verði ekki borið út úr íbúðum sínum, a' gefin verði út yfirlýsing um að tekinn verði upp annar gjaldmiðill við fyrsta tækifæri, skipt verði um forystu í Seðlabankanum, Forsætisráðherra haldi daglega fundi í byrjun hvers dags með leiðtogum allra stjórnmálaflokka og forystumönnum af vinnumarkaði og haldi blaðamannafund í lok hvers dags, fenginn verði erlendur aðili til að rannsaka aðdraganda kreppunnar og Ríkisbankarnir fái skýr fyrirmæli um að bjóða þeim fyrirtækjum sem hafa möguleika á að halda rekstri áfram með því að breyta skuldum þeirra í hlutafé sem þau geti síðan keypt aftur þegar um hægist.
Benedikt ítrekar í lok greinarinnar að "Þjóðin sé búin að færa miklar fórnir. Hún vill vita að það verði ekki til einskis. Þess vegna þarf að marka stefnu strax. Engin lýðræðisleg ríkisstjórn geti stjórnað ef hún hafi ekki traust þjóðarinnar. Oftast hafi stjórnir langan tíma til þess að sannfæra almenning. Nú er tíminn hins vegar að renna út".
Ég hver alla til að lesa alla greinina þar sem röksemdir og inngangur eru ekki hér með í þessu yfirliti mínu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 11.11.2008
Meira af ábyrgð! Burt með spillingarliðið.
Hvernig geta þau sagt að Fjármálaráðherra og Viðskiptaráðherra hafi ekki vitað af vandamáli með Ice-save? Þeir sátu fund þar sem Landsbankinn kynnti stöðu mála og úttekt sem erlent fyrirtæki gerði fyrir hann.
Þar kom fram slök staða bankans og alverleiki málsins.
Fjármálaráðherra kallaði fundinn venjulegan bankafund og morgunverðarsnakk!
Skildu þeir ekki ensku?
Ef svo er er það enn ein ástæða fyrir þá að segja af sér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
þri. 11.11.2008
Ef þau verja aðgerðir (aðgerðaleysi) ráðherra sinna þá eiga þau lika að víkja. Burt með spillingarliðið!
Hvergi nema á Íslandi og kannski í Simbabwe líðst þess konar hroki og valdníðsla sem þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sýna svo ekki verður um villst í þessu viðtali.
ASÍ hlustar eftir röddum sinna skjólstæðinga og þeir hafa siðferðiskennd sem hvorugt þeirra hefur eins og glöggt má sjá.
Hér situr þjóðin sem kaus þau í SÁRUM og þau leyfa sé að verja það aðgerðaleysi þessara manna að kalla EKKI eftir upplýsingum um hagsmuni sem eru svo gríðarlega mikilvægir.
Þeir sátu með fjöregg þjóðarinnar í hendi sér og þeir brutu það!
Þvílikur hroki sem er kastað eins og blautri tusku framan í okkur.
Þau eiga bæði að segja af sér eftir þessa frammistöðu!
Burt með spillingarliðið.
![]() |
Vegið ómaklega að ráðherrum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 11.11.2008
Að axla ábyrgð og segja bye bye
Bjarni Harðarson er fyrstur til að axla ábyrgð í þessu þjóðfélagi. Það gerir hann vegna þess að hann reyndi neðanbeltishögg á sjálfa áldrottninguna og ljósmóður útrásarvíkinganna Valgerði Sverrisdóttur og varð uppvís að því.
Betra væri ef aðrir og meiri skaðvaldar þessu þjóðfélagi tækju pokann sinn.
Bjarni er bara kjaftaskur, afgreiðslumaður á búðarkassa.
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hafa báðir gefið út þá yfirlýsingu að þeir hafi ekki vitað um Ice-save vandamálið fyrr en í september á þessu ári.
Þetta þýðir m.ö.o. að þeir eiga báðir að segja af sér.
Þeir eru ekki starfi sínu vaxnir, eru ekki upplýstir af sínum eftirlitsmönnum og kalla ekki sjálfir eftir upplýsingum um þau mikilvægu mál sem undir þá heyra.
Bye bye!
![]() |
Guðni: Bjarni axlar ábyrgð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
þri. 11.11.2008
Búið að gefa veiðileyfi
Það er hér með búið að "gefa veiðileyfi" á Íslendinga. Ice-Save hneykslið hefur komið okkur í raðir svikahrappa og mulið mannorð okkar í spað.
Vitið þið til nú er hafin skriða af alls kyns móðgunum og ásökunum í garð okkar og Breska krúnan leiðir geimið.
Ég er ekki hreykin af okkar þætti í málinu en við erum að tala um einkarekinn banka sem Ísland fattaði ekki að það þyrfti að gera eitthvað gagnvart, Bretar föttuðu það reyndar ekki heldur.
Það sem meira er ekki þótti ástæða til að upplýsa ráðherra sem málið heyrði undir um það samkvæmt Fréttablaðinu í dag.
Hvar var eftirlitið?
![]() |
Saka Íslendinga um ofveiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 10.11.2008
Brynvarðir bílar og lífverðir betri en kosningar!
Ég velti fyrir mér firringunni í stjórnvöldum. Veruleikafirring er rétta orðið hjá Steingrími J. Sigfússyni.
Á sama tíma og dómsmálaráðherra byrgir sig upp af brynvörðum bílum, eflir sérsveitir og styrkir óeirðalögreglu virðist ríkisstjórnin ætla að sitja sem fastast.
Sama ríkisstjórnin og hleypti fjármálakerfi landsins í kalda kol. Rústaði efnahagskerfi þjóðarinnar!
Nei enginn er ábyrgur! Á sama tíma eru ráðamenn drulluhræddir um líf sitt og limi.
Hvers vegna eru þeir það ef þeir bera enga ábyrgð á málum?
Ég tel að það væri mun ódýrra fyrir þjóðina að skipta þessum mönnum út fyrir aðra menn sem ekki hafa borið ábyrgð á þessu reginhneyksli heldur en að láta sérsmíða bíla og nánast stofna her hér á Íslandi.
Þeir eru að kosta mjög miklu til af því að þeir óttast að við drepum þá og við erum auðvitað látin borga þann kostnað.
Til hvers fjárans eru þeir að ríghalda svona í þau embætti sem þeir ekki valda? Með kjafti og klóm?
Er ekki orðið augljóst að veruleikafirrtir ráðamenn sleppi þeim heljartökum sem þeir hafa náð á okkur og fari að sýsla við eitthvað allt annað?
Segið af ykkur þá þurfið þið hvorki lífverði eða bryndreka!
Að rækta rófur virðist hvort eð er henta ykkur betur!
![]() |
Kosningum ekki flýtt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)