Bretar eru ábyrgir-The British Goverment is responsible

Það er alveg rétt sem kom fram í fréttunum í kvöld að þar sem Bretar tóku eignir Landsbankans í Bretlandi og beittu til þess hryðjuverkalögum þá eru þeir sjálfir þar með orðnir ábyrgir fyrir innistæðunum segir Eiríkur Bergmann dósent á netmiðli breska blaðsins Guardian.

-- 

Hvernig á banki sem haldið er í herkví að geta selt eignir á móti innistæðunum?

Hver er rökfimi forsætisráðherra í þessu máli?

Er hann að nota hana á okkur þegnana eða "skrílinn" (hans orð)?

--

When the British Goverment took over Landsbankinn in England by freezing its assents using terrorist law they took also over all its committments. Thats why they are now responsible for Ice-Save themselves.

The bank can not do anything becouse of how the British Goverment has act.

The British Goerment has taken act against their own interests.

I dont understand why our priminister does not say that to Gordon Brown? 

 

 

http://www.guardian.co.uk/commentisfree/2008/nov/11/iceland-creditcrunch
mbl.is Stoltenberg ræddi um Ísland við Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira af ábyrgð! Burt með spillingarliðið.

Hvernig geta þau sagt að Fjármálaráðherra og Viðskiptaráðherra hafi ekki vitað af vandamáli með Ice-save? Þeir sátu fund þar sem Landsbankinn kynnti stöðu mála og úttekt sem erlent fyrirtæki gerði fyrir hann.

Þar kom fram slök staða bankans og alverleiki málsins.

Fjármálaráðherra kallaði fundinn venjulegan bankafund og morgunverðarsnakk! 

Skildu þeir ekki ensku?

Ef svo er er það enn ein ástæða fyrir þá að segja af sér.

 

 

 


Ef þau verja aðgerðir (aðgerðaleysi) ráðherra sinna þá eiga þau lika að víkja. Burt með spillingarliðið!

Hvergi nema á Íslandi og kannski í Simbabwe líðst þess konar hroki og valdníðsla sem þau Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sýna svo ekki verður um villst í þessu viðtali.

ASÍ hlustar eftir röddum sinna skjólstæðinga og  þeir hafa siðferðiskennd sem hvorugt þeirra hefur eins og glöggt má sjá.

Hér situr þjóðin sem kaus þau í SÁRUM og þau leyfa sé að verja það aðgerðaleysi þessara manna að kalla EKKI eftir upplýsingum um hagsmuni sem eru svo gríðarlega mikilvægir.

Þeir sátu með fjöregg þjóðarinnar í hendi sér og þeir brutu það!

Þvílikur hroki sem er kastað eins og blautri tusku framan í okkur.

Þau eiga bæði að segja af sér eftir þessa frammistöðu! 

Burt með spillingarliðið. 

 

 


mbl.is Vegið ómaklega að ráðherrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að axla ábyrgð og segja bye bye

Bjarni Harðarson er fyrstur til að axla ábyrgð  í þessu þjóðfélagi.  Það gerir hann vegna þess að hann reyndi neðanbeltishögg á sjálfa áldrottninguna og ljósmóður útrásarvíkinganna Valgerði Sverrisdóttur og varð uppvís að því.

Betra væri ef aðrir og meiri skaðvaldar þessu þjóðfélagi tækju pokann sinn.

Bjarni er bara kjaftaskur, afgreiðslumaður á búðarkassa. 

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra  og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hafa báðir gefið út þá yfirlýsingu að þeir hafi ekki vitað um Ice-save vandamálið fyrr en í september á þessu ári.

Þetta þýðir m.ö.o. að þeir eiga báðir að segja af sér.

Þeir eru ekki starfi sínu vaxnir, eru ekki upplýstir af sínum eftirlitsmönnum og kalla ekki sjálfir eftir upplýsingum um þau mikilvægu mál sem undir þá heyra.

Bye bye! 

 


mbl.is Guðni: Bjarni axlar ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búið að gefa veiðileyfi

Það er hér með búið að "gefa veiðileyfi" á Íslendinga. Ice-Save hneykslið hefur komið okkur í raðir svikahrappa og mulið mannorð okkar í spað.

Vitið þið til nú er hafin skriða af alls kyns móðgunum og ásökunum í garð okkar og Breska krúnan leiðir geimið.

Ég er ekki hreykin af okkar þætti í málinu en við erum að tala um einkarekinn banka sem Ísland fattaði ekki að það þyrfti að gera eitthvað gagnvart,  Bretar föttuðu það reyndar ekki heldur. 

Það sem meira er ekki þótti ástæða til að upplýsa ráðherra sem málið heyrði undir um það samkvæmt Fréttablaðinu í dag.

Hvar var eftirlitið? 

 

 


mbl.is Saka Íslendinga um ofveiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Færeyskt víkingarokk!

 

 Það sem ég vil heyra núna. Heart

 


Brynvarðir bílar og lífverðir betri en kosningar!

Ég velti fyrir mér firringunni í stjórnvöldum.  Veruleikafirring er rétta orðið hjá Steingrími J. Sigfússyni.

Á sama tíma og dómsmálaráðherra byrgir sig upp af brynvörðum bílum, eflir sérsveitir og styrkir óeirðalögreglu virðist ríkisstjórnin ætla að sitja sem fastast.

Sama ríkisstjórnin og hleypti fjármálakerfi landsins í kalda kol.  Rústaði efnahagskerfi þjóðarinnar!

Nei enginn er ábyrgur!  Á sama tíma eru ráðamenn drulluhræddir um líf sitt og limi.

Hvers vegna eru þeir það ef þeir bera enga ábyrgð á málum? 

Ég tel að það væri mun ódýrra fyrir þjóðina að skipta þessum mönnum út fyrir aðra menn sem ekki hafa borið ábyrgð á þessu reginhneyksli heldur en að láta sérsmíða bíla og nánast stofna her hér á Íslandi.

Þeir eru að kosta mjög miklu til af því að þeir óttast að við drepum þá og við erum auðvitað látin borga þann kostnað.

Til hvers fjárans eru þeir að ríghalda svona í þau embætti sem þeir ekki valda? Með kjafti og klóm?

Er ekki orðið augljóst að veruleikafirrtir ráðamenn sleppi þeim heljartökum sem þeir hafa náð á okkur og fari að sýsla við eitthvað allt annað?

Segið af ykkur þá þurfið þið hvorki lífverði eða bryndreka! 

Að rækta rófur virðist hvort eð er henta ykkur betur!

 

 

 


mbl.is Kosningum ekki flýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna hækkaði Seðlabankinn stýrivexti?

Ég spyr hvers vegna hækkaði Seðlabankinn stýrivextina ef það var með öllu óvíst hvort IFM myndi veita Íslandi lán?

Erum hann svona innilega haldin sjálfseyðingarhvöt að það var ekki hægt að bíða eftir að IFM segði NEI?

ESB er búið að segja NEI og eftir höfðinu dansa (dangla) limirnir.

Ísland úr NATO Davíð burt!


mbl.is Mörg fyrirtæki eru tæknilega gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég ætla ekki að blogga um réttlæti....

STJÖRNUSPÁ

Steingeit: Þú munt fá spennandi tækifæri til ferðalaga og framhaldsmenntunar á næstu fjórum til sex vikum. Gakktu skipulega til verks.
-- 
Þetta er fyndið í ljósi þess að ég er á námskeiði í myndlist og ætla auk þess á helgarnámskeið í sömu listn orður til Akureyrar um helgina.
 --
Nú kemur óréttlætið.
 
Nýi Landsbankinn var að ráða í starf i aðalútibúinu á Akureyri.  
Svo vill til að konu sem var í því starfi var sagt upp nýverið eða eftir að skilanefndirnar komust að þeirri niðurstöðu hvar ætti að fækka fólki.  Konan hafði unnið hjá Landsbankanum í 27 ár.  
Sú sem ráðin er í staðinn kemur frá Luxemburg þar sem hún var að vinna fyrir Landsbankann og hún er tengd vinaböndum við fyrrverandi eiganda Landsbankans. 
 
Ég veit nú þegar um þrjár uppsagnir hjá Landsbankanum þar sem höggvið er að þeim sem minnst mega sín.
Annarri konu á Akureyri var sagt upp en hún átti nokkra mánuði eftir í eftirlaun.
Einnig var sagt upp konu annars staðar á norðurlandi en hún var fyrirvinna, sem á mann og tvö börn, en maðurinn hennar er öryrki.
Þetta er grátlegt þar sem ég veit að hjá bankanum vinnur fólk sem er "vel gift" og hefur góða fyrirvinnu, fólk sem vinnur hlutastörf til þess eins að "komast út á meðal fólks" og hefur í rauninni haldið launum bankastarfsmanna niðri gegn um tíðiuna.
 
Ég spyr er það stefna Nýja Landsbankans að reka þá sem minnst mega sín og láta klíkustarfsemi um að jafnvel ráða fólk í staðinn?
Er það þess vegna sem ríkisstjórnin segir ekki af sér?
 
Þarf hún að planta "sínu fólki" inn í bankakerfið?
 
Spyr sú sem ekki veit! 
 
Og já ég er reið!  Ég er fjúkandi reið!
--
Hitt er það að það er ekki vinnandi í svona ómannlegu umhverfi og það fólk sem fer frá störfum getur í rauninni verið guðs lifandi fegið.  Snúið sér að einhverju sem er uppbyggjandi og skemmtilegra að fást við.
 
 
Æðruleysisbænin
 
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli. 
 
 
 

Músik fyrir svefninn

 

 Það er best að skella sér í svefninn.  Ég var að lesa bók sem heitir Stúlka með perlueyrnalokk. Mjög góð bók.

Ég er að bíða eftir bók af bókasafninu.

Sú heitir Glerkastalinn og við eigum að lesa hana í leshring á netinu. Ég bíð spennt eftir að fá bókina sem er greinilega vinsæl því ég hef beðið eftir henni í smá tíma.

Hvað um það njótið þess að hlusta á Lennon.  

Góða nótt. Kissing

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband