Segir mesta hvalveiðiþjóð heims!

Obama ætti að líta sér nær.

Ég veit ekki betur en Bandaríkin séu að stunda hvalveiðar í stórum stíl m.a. í Alaska.

Betra er að vita hvað hægri höndin er að gera meðan maður bendir með þeirri vinstri.

Tvískinnungur Bandaríkjamanna hættir greinilega ekki með Obama! 

 


mbl.is Obama styður hvalveiðibannið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Einmitt, og þetta réttlæta þeir með þeirri röksemd að þarna sé um að ræða réttindi og menningu frumbyggja.  En eru Íslendingar, Færeyjingar og Japanir líka frumbyggjar?  Ég veit ekki til þess að nokkur hafi búið á þeim stöðum áður en núverandi íbúar fluttust þangað, fyrir utan papana hér.

Axel Þór Kolbeinsson, 12.3.2009 kl. 12:13

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ekki sambærilegt. 

Þarna er um að ræða nokkur samfélög frumbyggja í Alaska sem fá að veiða um 50 hvali árlega.  Aldalöng hefð og menning að baki.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.3.2009 kl. 12:53

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Hvað um Færeyjinga Ómar.  Eru þeir ekki frumbyggjar með aldalanga hefð og menningu fyrir hvalveiðum?

Axel Þór Kolbeinsson, 12.3.2009 kl. 14:07

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Frekar sambærilegt við færeyingana, jú.

Annars er farið að ráðleggja færeyingum að borða ekki þetta kjöt vegna þess hve mengað það er.  Neyslan hefur minnkað.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 12.3.2009 kl. 14:45

5 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Ekki tekur Obama rétta ákvörðun þarna og gleymir að skoða báðar hliðar mál. Ég hef umtalsverðar áhyggjur að breytingarnar sem við vonuðumst öll eftir komi seint.

Hilmar Gunnlaugsson, 12.3.2009 kl. 15:27

6 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

p.s. ippa þú dast út af blogg vinalistanum, en ég setti þig inn aftur.

Hilmar Gunnlaugsson, 12.3.2009 kl. 19:59

7 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Já ég fékk meldingu um það og samþykkti ;-).

Vilborg Traustadóttir, 12.3.2009 kl. 20:33

8 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Þetta er skrýtið. Gerðist aftur, þarna er um að ræða galla í kerfinu. Ég prófa að sitja þig inn eftir nokkra daga og vonum að þetta hafi lagast þá

Hilmar Gunnlaugsson, 12.3.2009 kl. 23:53

9 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Kannski er þetta "vinastýring" í stað ritstýringar hjá Mogga, sé að þú ert ekki á listanum lengur!

Vilborg Traustadóttir, 13.3.2009 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband