þri. 10.2.2009
Spennandi verkefni.
Ég vona að okkur takist að rétta landið okkar við smám saman.
Ég er hóflega bjartsýn á að svo verði meðan menn stunda flokkadrætti og fyrirgreiðslupólitík.
FRAM Í RAUÐANN DAUÐANN. OKKUR BLÆÐIR!
Ég tek þátt í spennandi verkefni þessa stundina sem mun vonandi þróast í eitthvað verulega jákvætt fyrir okkur sem flest.
Það er gaman að byggja upp og bæta heiminn og það sem við eigum að einhenda okkur í núna er einmitt það.
Þess vegna legg ég til við forseta Íslands að hann leysi upp þingið og skipi utanþingsstjórn áður en hann segir af sér sjálfur sem hann á tvímælalaust að gera.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Facebook
Athugasemdir
Hefur sýnt sig á þessum dögum ríkisstjórnarinnar að hann hefði átt að gera það strax. Samfó er ekki í stjórn, eru í kosningabaráttu. Stjórnarandstaðan er líka í kosningabaráttu. Sumir Vinstri Grænir líka. Þetta er ótrúlegt. ÓRG sjálfur kominn í kosningabaráttu. En við látum ekki blekkjast.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 21:13
Þessir aðilar hugsa bara um sín eigin völd
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.2.2009 kl. 22:56
Mér sýnist ríkisstjórnin vera að vinna - mér finnst einhvernvegin að ÓRG og frú megi nú alveg vera áfram á Bessast. þau eru ekki að gera neitt af sér.
Gefum þessu tíma núna fram að kosningum og sjáum hvaða úrvalslið við fáum eftir það. Vænti þess að landinn velji besta kostinn !
Hulda Margrét Traustadóttir, 11.2.2009 kl. 12:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.