fös. 9.1.2009
Fáránlegt ef verður lokað fyrir starfsemina
Það er í rauninni fáránlegt ef loka á fyrir starfsemina á St Jósefsspítala.
Sem heilbrigðisráðherra er búinn að ákveða einhliða eða í samkrulli við auðmenn!
Erum við ekki búin að fá gersamlega upp í kok af fjárglæfrastarfsemi hér á Íslandi þó ekki þurfi að bæta sjúkrahúsum landsins á þær vogarskálar?
Gott og vel ef Árni Sigfússon vill taka yfir rekstur sjúkrahússins í Reykjarnesbæ í samvinnu við auðmenn eins og Róbert Wessman þá á það að vera aðskilið mál frá því að leggja niður svo góða starfsemi sem er í Hafnarfirði.
Lúðvík Geirsson heldur ekki vel á spöðunum. Fyrst gloprar hann Alcoa út í veður og vind og nú fer sjúkrahúsið.
Er þetta EKKI pólitík?
Hvað segir ISG um málið?
Langur fundur með ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Lúðvik er nú líka vanviti fyrir allan aurinn, skammst mín fyrir að vera hafnfirðingur með þeir halda svona uppá hann
Rúnar Sigurður Sigurjónsson, 9.1.2009 kl. 01:32
Þetta er óþolandi staða sem er komin upp, við ætlum ekki að læra af bankahruninu, eins og þú segir svo réttilega, þá á að færa auðmönnum sjúkrahúsin, eins og við séum ekki komin með nóg af aula auðmönnum hér á landi.
Sigurveig Eysteins, 9.1.2009 kl. 08:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.