Enn einn myllisteinninn um háls Seðlabankans

Fram kom í ágripi í fréttum úr Kompásþætti morgundagsins að Seðlabankinn neitaði að veita Landsbankanum lán gegn tryggingu upp á 200 milljón pund gegn því að allir ice-save reikningar Landsbankans færðust í breska lögsögu.

Þetta gerði Seðlabankinn daginn áður en bretar beittu hryðjuverkalögum á Landsbankann í Bretlandi til að frysta eignir hans þar. 

Hvers lags vinnubrögð eru viðhöfð á þeim bæ?

(Seðlabankanum)

Hvert fjandans klúðrið af öðru hjá banka sem ætti eins og seðlabankar annarra landa að verja bankana en ekki öfugt!

Ófaglegar aðfarir Seðlabankans frá a-ö hafa kostað þjóðina ómælda peninga, atvinnumissi og það sem er kannski sárast æruna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Klúður frá upphafi til enda !

Hulda Margrét Traustadóttir, 26.10.2008 kl. 19:55

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já maður er að verða hálfringlaður.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.10.2008 kl. 20:11

3 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Sammála ykkur .....

Svanhildur Karlsdóttir, 26.10.2008 kl. 22:15

4 Smámynd: Jens Guð

  Ég segi eins og Jakobína:  Maður er orðinn hálfringlaður.  Eða alringlaður og hættur að skilja upp né niður. 

Jens Guð, 26.10.2008 kl. 22:17

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Og enn situr hryðjuverkamaðurinn og alvaldurinn við stjórnvölinn! Er þetta einhver hemja?  Bananalýðveldi væri væri nafn okkur til vegsauka í samanburði við það stjórnarfar sem ríkir nú.

Nú þarf að draga þetta lið fyrir þingnefnd og sjónvarpa því eins og gert er í USA. Svo á að henda þessum brjálæðingi í grjótið og henda lyklinum.

Jón Steinar Ragnarsson, 26.10.2008 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband