mán. 31.12.2007
Áramótaskaup Ippu
Árið hófst með glæsibrag hjá Ippu, Eftir át og annað sem tilheyrir jólunum skellti ég mér til Póllands í detox með vinkonu minni. Við fórum út 6. jan og vorum í tvær vikur. Ég hélt upp á 50 ára afmæli mitt ytra. Runnu 8,5 kg af mér á heilsuhælinu í þetta sinn. Önnur eins lýsisbræðsla hefur vart verið fundin í seinni tíð en hópurinn sem samanstóð af 11 manneskjum missti sem svaraði heildarþyngd einnar manneskju.
Hélt afmælisveislu þegar heim var komið og keypti matinn á Grænum Kosti. Það lagðist vel í boðsgesti og var eftirrétturinn líka frá þeim á Grænum. "Það sem fertugur getur gerir fimmtugur betur!"
Dagamman Ippa stóð sína plikt og passaði yngsta guttann tvo daga vikunnar og aðra eftir þörfum. Einstaklega skemmtilegt starf að vera dagamma, reyndar það allra skemmtilegasta hingað til. Segi eins og kunningi okkar hann Stjáni Hauks. "Ef ég hefði vitað hvað þetta yrði gaman með barnabörnin þá hefði ég bara skellt mér beint í þau."
Ættarmót hjá "Sauðanesveldinu" var haldið í júní, þann 22.-24. Magga systir réð tímanum og setti það auðvitað á afmælið sitt sem er 24. þess mánaðar. Við mamma launuðum henni með því að fara í "Stórar Stelpur" og kaupa afmælisgjöf handa henni þar. Verst að við misstum okkur þar líka sjálfar svo við gátum ekkert verið að setja okkur á háan hest gagnvart henni! Enda erum við allar stórar og myndarlegar stelpur, þó eitthvað séum við systurnar að fara fram úr mömmu....allavega á þverveginn. Þrátt fyrir Póllandsferðir mínar. Já þær urðu fleiri á árinu og fórum við vinkonurnar aftur 29. september. Pöntuðum að vísu 15. september sem auglýst hafði verið en það gekk ekki eftir. Missti 5,1 kg í þeirri ferð.
Fórum að sjálfsögðu til Djúpuvíkur þar sem er mjög skemmtilegt að vera og mannlífið kristallast á holtinu og í víkinni góðu við Rreykjarfjörð. Þar sem áður var sindrandi mannlíf og síldarverksmiðja ásamt söltun er sem tíminn hafi numið staðar um nokkra áratugi. Síðan fer hann að rúlla hægt og sígandi í átt að nútímanum, ferðamannaiðnaðinum, sportinu og því einu að vera til. Það er hvergi eins gott að vera til og í Djúpuvík í faðmi fjölskyldunnar og frjáls.
Fór á þrjú myndlistarnámskeið á árinu. Eitt á svölum norður á Akureyri þar sem systir tók mig í gegn ásamt Erni Inga. Annað í Myndlistarskóla Arnar Inga en þetta voru helgarnámskeið. Síðan fór ég á námskeið í Kvöldskóla Kópavogs sem lauk í byrjun desember. Afraksturinn m.m. fer á sýningu næsta sumar á Hótel Djúpavík ef allt fer sem áætlað er.
Fjölskyldan hefur blómstrað og allir ömmustrákarnir komnir á leikskólann. "Amma í fullu starfi" hefur því minnkað við sig vinnuna og er í hlutastarfi......ja eiginlega hobby núna.
Jól og áramót eru að ganga yfir. Allt er með kyrrum kjörum nema veðrið sem virðist ætla að stela senunni þessi áramót á þessum landshluta. Hvað um það við stöndum þá bara með okkar stjörnublys á okkar svölum og njótum éljanna eða rigningarinnar og roksins.
Gleðilegt ár og takk fyrir gamla.
Flokkur: Spaugilegt | Breytt 1.1.2008 kl. 16:17 | Facebook
Athugasemdir
Stjörnuljós á svölunum hljóma spennandi og ég sendi sérstakar kveður á svalirnar vegna slyssins sem varð þar í sumar !
Sakna fjölskyldunnar og við erum bara hér og pössum okkar dýr sem er vægast sagt úr sambandi þessa dagana vegna sprenginganna....var að búa til desert "a la Stella Mjöll "sem hún hristi fram úr erminni þegar móðrin var að vandræðast nýkomin heim úr vinnu eftir klukkan tvö í dag.....lofar góðu, José er í eldhúsinu "eitthvað að fást við mat" eru kalkúnabringur í matinn, búin að leggja þær í sítrónu og krydd bað.......spennandi....hafið það sem best....love...Magga systir
Hulda Margrét Traustadóttir, 31.12.2007 kl. 16:36
Já, Vilborg...árið (veðrið) ! Var gott !!!
Hulda Margrét Traustadóttir, 31.12.2007 kl. 16:37
Gleðilegt ár til þín með von um áframhaldandi blogg vináttu. Hafðu það sem best á nýju ári.
Ásdís Sigurðardóttir, 1.1.2008 kl. 01:05
Gleðilegt nýtt ár til þín og þinna.
Ester Sveinbjarnardóttir, 1.1.2008 kl. 01:12
Gleðilegt nýtt ár Vilborg og takk fyrir frábæra viðkynningu í bloggheimum á árinu.
Marta B Helgadóttir, 1.1.2008 kl. 02:02
Gleðilegt ár Vilborg mín og takk fyrir frábærar samverustundir á liðnu ári og vona ég að þær verði enn fleiri á þessu nýja. Hver veit nema músan vitji mín og ég komi með þér á myndlistarnámskeið. Ég mæti klárlega á sýninguna í Djúpuvík ... ertu samt ekki til í að hafa hana í gömlu verksmiðjunni he he
Herdís Sigurjónsdóttir, 1.1.2008 kl. 20:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.