Árinu heilsað með Kim Larsen og Kjukken

Eftir mjög skemmtilegt Gamlárskvöld og magnaða flugelda tók við brjálað geim hér hjá okkur.  Flestir gestanna voru farnir en Geir skellti á Danmark 1 og viti menn, þáttur um hljómleikaferð Kim Larsen og Kjukken var í boði þar.   Solla systir var enn hér og við skemmtum okkur ekki lítið yfir þessu.  Síðan settum við á Danmark 1 +  og hlustuðum aftur.  Þá héldu okkur heldur engin bönd og við dönsuðum um íbúðina villtar í geiminu.  Því miður náðist bara mynd af okkur í byrjun enda hefðum við ekki tollað á myndinni eftir að dansinn hófst.  Svo rammt kvað að danstilburðum okkar að leikstjórarnir Quinten og Eli óku hjá í hummer limmo en bönkuðu þó ekki upp á í þetta sinn.  Við vorum alla vega vissar um að þetta væru þeir og færðumst allar í aukana við þessa augljósu (ímynduðu) athygli þeirra.

Solla og Ippa

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Ekki smá sæt mynd af ykkur, önnur að vísu alvörugefnari en hin en það hefur rjátlast af henni í Quinten sveiflunni ! Hefði viljað sjá til ykkar Maður er alltaf að missa af einhverju en vorum með mann í "gíslingu" í humar piri piri hvítlauks veislu, ansi gaman.

Hulda Margrét Traustadóttir, 2.1.2008 kl. 20:25

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kim Larsen er flottur    Guitar 

Ásdís Sigurðardóttir, 2.1.2008 kl. 20:39

3 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Gleðilegt ár, eins gott að njóta listisemda lífsins.

Ester Sveinbjarnardóttir, 3.1.2008 kl. 02:10

4 identicon

Flott mynd af flottum systrum, vantaði bara eina flotta í viðbót

Voða ertu brún Vilborg..varstu að fjárfesta í ljósalampa, ja maður spyr sig  Held það sé brúni liturinn í dressinu sem fer þér svona vel.

Bestu nýárskveðjur til ykkar allra..

Stella (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 22:50

5 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Alltaf sól í Sólheimum, sérstaklega svona hátt uppi þar sem maður er nánast alltaf ofar skýjum!

Vilborg Traustadóttir, 5.1.2008 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband