sun. 8.7.2007
Ég er.....
Ég er djöfull sem drottnandi leikur
ég er dalbúans logandi tindur.
Ég er fjandinn sem fjölkyngið eykur
ég er fersk eins og norðursins vindur
-
Ég er lognmolla, læða frá dölum
ég er lemjandi stórhríð á glugga.
Ég er dyggðin í sólbjörtum sölum
ég er syndin í fölbláum skugga.
-
Ég er allt sem að einn getur fundið
á alheimsins skínandi degi.
Ég er norn sem að næring hef undið
úr nafnlausu spori á vegi.
-
Ef að þú eitthvert sinn skilur
þá ást sem í döflum er bundin
mun hinn sjóðheiti, síkaldi bylur
sig vefja um eilífðarfundin.
Vilborg Traustadóttir
-
Þetta rifjaðist upp fyrir mér við lestur þessarar fréttar. Þetta er úr lengra kvæði eftir mig og ég mun grafa það uppi með aðstoð fjölkynginnar og birta síðar....
--
Það er virkilega vel þess virði að skoða Galdrasýninguna á Hólmavík. Ég er að fara á Strandirnar á þriðjudaginn og ætla þá að láta verða af því að skoða Kotbýli kuklarans í Bjarnarfirði. Ég verð í Djúpuvík og ef þið bloggvinir góðir eruð á ferðinni þarna þá komið þið að sjálfsögðu í kaffisopa til okkar!!!!
Galdramenn á Ströndum láta nútímagaldra lítt til sín taka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.