Í dag

E.B. ofl 028E.B. ofl 034E.B. ofl 024E.B. ofl 012
Við kláruðum að setja niður í garðana í dag.  Mamma, Guðrún og Solla basa í beði, pabbi á " hliðarlínunni" , við Einar Breki hvílum lúin bein og Einar Breki sjarmör með steina. 
Það voru allir elsku sáttir í dag enda sá Guðrún um verkstjórnina að einróma beiðni okkar hinna. Cool  Snæddum svartfuglsegg hjá mömmu og pabba í hádeginu.  Skelltum okkur svo í leirgerð við Solla og Drífa dóttir Sollu. Einar Breki með og hann stóð sig vel. Ótrúlega yfirvegaður með allar þessar kellur í leirnum krunkandi saman.  Máluðum tvær skálar sem verður spennandi að sjá eftir brennslu. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sumir dagar eru hrein snilld ;)

Ester Sveinbjarnardóttir, 14.6.2007 kl. 23:17

2 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Gott dagsverk Vilborg og gaman að sjá myndirnar. Ég öfunda ég þig mest af svartfuglseggjunum og fattaði það núna að ég hef ekki borðað eitt einasta þetta vorið  , enda ekkert Nóatún í Mosfellsbæ lengur, en þar keypti ég alltaf eggin mín. 

Herdís Sigurjónsdóttir, 15.6.2007 kl. 09:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband