Stundum

 

Stundum

þegar þú ert hér

hjá mér

hugsa ég

hvílík gæfa

 

en gráttu ekki

ef ég fer.

Því augnablik líður

og eilífðin bíður

 

Öll stefnum við þangað

án undankomu.

 

Ýmsar leiðir

liggja þangað

allar leiðir enda þar

sérleiðir

sem aðrar leiðir.

 

 

          Höf:  Vilborg Traustadóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Er þetta ljóð nokkurð um bloggheima ...

kv, Herdís Netlögga Sigurjónsdóttir

Herdís Sigurjónsdóttir, 25.3.2007 kl. 15:31

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Frelsi til að finna því farveg er meðal bloggverja!

Vilborg Traustadóttir, 25.3.2007 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband