Mæli með því........

Mæli sterklega með þessu.  Þannig gætum við sloppið við að leggja timburmennina á komandi kynslóðir.

Timburmennina eftir okkar neyslu.  Við yrðum að taka skellinn strax en er það ekki það sem alkarnir gera í og eftir meðferð?

 


mbl.is Gætum hæglega sleppt IMF-láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já þetta er mjög freistandi hugmynd.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 14.11.2008 kl. 00:27

2 identicon

Hvernig fáið þið út að það sé gott að hafa stýrivexti í 24% og gengisvísitöluna í 220 stigum?

Eins og hinn frábæri Robert Z. Aliber, fyrrverandi prófessor við Chicago-háskóla segir:

Skilyrði IMF, yrðu að sögn Alibers, að verð krónunnar ætti að myndast á markaði, en hún yrði mun veikari en hún er í dag á fastgengi Seðlabankans. Stýrivextir yrðu jafnframt hærri hér á landi. 18% stýrivextir séu í reynd engir stýrivextir, sökum verðbólgu. Raunverulegir stýrivextir ættu að vera 6-8% í núverandi árferði, sem myndi þýða 24% stýrivexti í dag.

Ef þetta er rétt þá myndu stýrivextir vera 24% !!! GOTT FYRIR HEIMILIN Í LANDINU!!

og gengi krónunnar myndi veikjast!!! er það einmitt sem við viljum?

Gengisvísitalan í 350 stig, til að setja liðið endanlega á hausinn!! 

Ólafur H (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 01:17

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Það er nú eitthvað óljóst með þessa stýrivexti og IFM.  Það hefur hvergi komið berlega fram hvort þeir gera kröfur um þessa hækkun.  Þvert á móti kom það fram um daginn eftir jaml, japl og fuður að það voru ISG og GHH sem ákváðu hana þegar hún fór í 18%!  Hef hreinlega ekki fylgt því eftir hvort það stóð eða hvort það var BARA yfirlýsing.  Við höfum staðið stjórnmálamenn að lygum trekk í trekk og er það boðlegt?

Ég tel það væri betra að hafa strangar reglur og fara eftir þeim en ekki breyta þaim eftir á eins og tíðkast hefur.  Hverjar þær reglur eru verður að miðast af getu og sanngirni.  Enginn græðir á að kaffæra allt og alla.

Vilborg Traustadóttir, 14.11.2008 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband