fim. 4.12.2008
Norðurport
Það er furðulegt hve fjölmiðlar eru fastir í neikvæðni. Ég er búin að senda ósk um umfjöllun á alla fjölmiðla vegna opnunar markaðarins Norðurport á Akureyri. Enginn þeirra hefur svarað eða sýnt áhuga á málefninu.
Tildrög þess að markaðurinn, sem er hugsaður sem eins konar Kolaport norðursins, varð til eru þau að bankastarfsmanni var sagt upp hjá Landsbankanum á Akureyri eftir 27 ára starf fyrir bankann.
Í stað þess að leggja árar í bát ákvað þessi kona sem er systir mín og heitir Margrét Traustadóttir, að opna markaðinn. Mikil ásókn er í sölubása og því augljóst að þörf á þessari starfsemi er mikil.
Sannarlega umhverfisvænt uppátæki þar sem endurnýting er meðal þess sem starfsemin gengur út á þó auðvitað sé þarna boðið upp á ýmislegt nýtt af nálinni eins og heimaunnið handverk og margt fleira.
Akureyrarbær leigir Norðurporti húsnæðið sem er að Dalsbraut 1. á Akureyri ( rétt við Glerártorg).
Hér er slóðin á Norðurport...
http://nordurport.is/
fim. 4.12.2008
STJÖRNUSPÁ

mið. 3.12.2008
Brad Pitt - alveg draumur
"Mig dreymdi Brad Pitt.
Hann var að fara á fjörurnar við mig.
Ég vissi að þetta yrði "one night stand".
Ég leit á klukkuna og sá að hún var 11.00 að morgni og sagði nei maðurinn minn kemur í mat eftir klukkutíma, það er enginn tími.
Hvernig fer ég að sagði Brad Pitt þjáður af löngun?
Ég sýndi honum fjallgöngustafina mína og ákvað svo að fara í göngutúr. Ég gekk rösklega og studdi mig við stafina sem voru ekki alveg í nógu vel stilltir en virkuðu samt. Ég gekk upp í móti og gekk af einu bjargi á annað.
Ég komst lengra en ég hafði áður komist og endaði uppi á stórum og mjög sterklegum steini. Gegnheilum kletti.
Þetta er Brad Pitt að þakka, hugsaði ég, ég hefði aldrei náð svona langt nema fyrir hans hvatningu".
Það var barn með mér í draumnum en ég kem ekki fyrir mig í bili hvaða barn það var.
Finnst þó það gæti hafa verið elsti sonur minn Trausti þegar hann var lítill.
Klettur og Trausti er gott að dreyma og einnig það að fara ótrauður upp í móti. Klettur er eitthvað stöðugt Trausti er eitt besta draumanafn sem hugsast getur og að komast upp í mót er að sigrast á erfiðleikum. Í þessu tilfelli með stuðningi (stafirnir)".
Hvað var Brad Pitt að þvælast þarna??
Ég sem hef aldrei skilið sex appeal Brad Pitts!
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
þri. 2.12.2008
Hva, erum við ekki með þá verstu?
Stundum sleppur sá smái þótt hann eigi það varla skilið.
Að vera ekki valdir verstu bankamennirnir vegna þess að við erum bara 300 þúsund er bara plat.
Þetta er eins og að sleppa litla bróður þegar hann gerir skammarstrik en hanka þann stóra fyrir sama skammarstrikið.
Þetta þýðir í raun að okkar menn eru óvitar!
![]() |
Verstu bankamennirnir valdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mán. 1.12.2008
Særi ég og æri á ný....
Særi ég og æri á ný
hó hó og hí hí
Eitt sinn var ég ung og frjals
með hvítan barm og hvítan háls
og ungur maður á mig leit
og enginn veit og enginn veit.
Allar stjörnur stigu dans
sængin mín varð sængin hans.
(Eftir minni úr kvæðinu Norn eftir Davíð Stefánsson)
Mér datt í hug upphafið að þessu magnaða kvæði Davíðs Stefánssonar þegar ég sá þessa mögnuðu konu fremja vargastefnu við Stjórnarráðið.
Ég man því miður ekki allt kvæðið en gaman væri ef einhver lumar á því og gæti rifjað það upp með mér.
![]() |
Vargastefna við Stjórnarráð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 1.12.2008
STJÖRNUSPÁ

mán. 1.12.2008
Mannamál, þokkahjúin Þorvaldur og Dísa
Þorvaldur Gylfason og Bryndís Schram voru viðmælendur Sigmundar Ernis í Mannamáli í gærkvöld.
Sitt í hvoru lagi.
Það minnir mig á að á Ströndunum var gjarnan haft á orði "þokkahjúin Þorvaldur og Dísa"!
Ég ætla að rifja upp samhengið ...
Meira seinna...
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 1.12.2008
Geir Jón var flottur!
Lögreglunni fer fram.
Geir Jón Þórisson var flottur í útvarpsviðtali þar sem hann var rólegur og afslappaður þótt hann talaði reyndar eins og véfrétt. Vildi ekki gefa upplýsingar um fjölda eða viðbúnað lögreglunnar.
Hvenær lætur Davíð Oddsson segjast? Það er alveg nóg að honum sé vantreyst svo hann segi af sér.
Hann þarf ekki að vera sekur um eitt eða neitt.
Meðan staðan er svona er hann bara að þvælast fyrir.
Það tekur tíma að byggja upp traust sem hefur verið brotið.
Við höfum ekki tíma núna.
Davíð pleace!
Áni Matt pleace!
Björgvin pleace!
Jónas Franklín pleace!
Þeir sem eru trausti rúnir núna eiga að fara strax.
Enginn segir að það sé að eilífu.
Annars sýnist mér að það verði bylting.
Er það góður kostur í stöðunni?
![]() |
Mótmælendur farnir út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
sun. 30.11.2008
Silfrið
Það var gott að horfa á Silfur Egils í dag og vera sammála þeim gagnrýnisröddum og mati á stöðunni sem þar komu fram.
Góður þáttur.
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4440908
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
sun. 30.11.2008
Hverra er ábyrgðin?
Ef þetta er rétt þá er þetta enn ein "cover my ass" brellan sem hefur virkað.
Auðvitað á yfirmaður Fjármálaeftirlitsins að segja af sér við þó ekki sé nema grun um að hafa sofið á verðinum.
Fyrir hvað greiddum við honum laun?
![]() |
FME tilkynnt um eignarhlut Glitnis í Stími |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |