sun. 26.4.2009
Hroki Jóhönnu
Ég upplifði Jóhönnu mög hrokafulla í þeim samtölum sem ég sá hana í, í nótt og í dag.
Kannski hefur þessi sigur hennar flokks stigið henni til höfuðs.
Mér brá í brún þegar ég sá valdhrokann sem gneistaði af henni og hvernig hún reyndi að gera lítið úr öðrum formönnum sem voru í viðtalsþáttum með henni.
Dramb er falli næst svo ég held að Jóhanna Sigurðardóttir eigi eftir að læra þá lexíu eins og Geir H. Haarde o.fl. hafa þurft að gera á undanförnum vikum og mánuðum.
Það er verst að þessi skóli er dýr fyrir þjóðina sem bíður eftir lausnum.
Við höfum engan áhuga á því að setja fleiri einstaklinga á einhvern ýmindaðan stall Jóhanna Sigurðardóttir.
Vald spillir.
Það spillir greinilega heilög Jóhanna!
Getum valið úr öðrum kostum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.4.2009 kl. 11:24 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.