fim. 1.1.2009
Gleðilegt ár
Um leið og ég óska öllum vinum og vandamönnum, bloggvinum og öðrum sem líta hér við, gleðilegs árs og friðar set ég hér inn gullkorn úr bókinni "Gullkorn frá liðnum tímum", flett upp af handahófi og auðvitað kom eitthvað um listina.
"Hlutverk listarinnar er ekki að sýna ytra byrði
hlutanna heldur innri merkingu þeirra"
Aristóteles
Nokkuð til í því.
Ég bið þess að fallegt ljós lýsi í litlu hjörtun mín sem gista öll hjá ömmu og afa þessi áramót. Yndislegir drengir, skemmtilegir, fallegir og góðir.
Guð blessi þá og okkur öll.
Amen
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 02:48 | Facebook
Athugasemdir
Knús til ykkar. Fallegt gullkorn !
Hulda Margrét Traustadóttir, 1.1.2009 kl. 12:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.