Ég veit ekki hvað mig mun vanta......

Það er hafin skömmtun á vörum í verslunum.  Office One skammtaði bleksprautuhylki fyrir prentara í dag. Hver viðskiptavinur mátti bara kaupa eitt stykki.

Ég hef verið óróleg undanfarið vegna yfirvofandi hættu á skömmtunum.

Það er bara verst að ég geri mér ekki grein fyrir því hvað nákvæmlega mig mun sárlega vanta á næstu mánuðum eða á hverju kemur til með að verða skortur á?

Ef ég vissi það færi ég strax út í búð að kaupa það.

Ég er alla vegana búin að gera slátur...... 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gylfi Björgvinsson

Sem betur fer verður sennilega seinnt  skortur á slátri en það er rétt hjá þér það er að verða skortur á mörgu  vörum í verslunum og sennilega verður ástandið enn verra í upphafi árs

Gylfi Björgvinsson, 29.11.2008 kl. 21:42

2 Smámynd: Jens Guð

  Keyptu bara eins mikið og þú getur af öllu.  - Ef þú átt pening fyrir því.  Það eiga allar vörur eftir að hækka svo svakalega í verði.  - Ef það fæst á annað borð. 

Jens Guð, 29.11.2008 kl. 22:02

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Ég hef hugleitt þetta alvarlega Jens en hvar á að byrja? Ég á að vísu birgðir af klósettpappír og eldhúspappír, þvottaefni, nóg af fötum, en það eru svona hlutir eins og blek í prentarann, batterí í tölvuna,pappír, sprittkerti,ryksugupokar, kaffipokar og annað smálegt sem maður er vanur að ganga að í hvaða búð sem er, sem ég bara fatta ekki fyrr en eru búnir!

Það verður slátur á morgun Gylfi, vertu manna velkomnastur!

Vilborg Traustadóttir, 29.11.2008 kl. 22:30

4 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Það sem okkur virðirst ómissandi núna verður orðin algjör munaðarvara eftir nokkra mánuði. Svo við skulum bara minna okkur á gömlu gildin.

Einu sinni munaði okkur, fjölskylduna á Sauðanesi ekki um það að fara yfir fjöll eftir nuðþurftum. Þá var ekkert annað í boði, við þurftum að sækja það sem vantaði fótgangandi, það tók ekki nema ca fjóra tíma ferðin ef við vorum búin að panta úr Kaupfélaginu - Margt annað eins og  hveiti, sykur, hrísgrjón og fleira sem geymdist vel kom með vitaskipinu á vorin. Og við lifðum af

Já, slátur er gott og svo margt annað sem ég hef verið að uppgötgva aftur síðustu vikurnar...kjöt í káli, kjötbollur í brúnni sósu að hætti mömmu og svo margt og svo margt....Við munum lifa þetta af !

Hulda Margrét Traustadóttir, 29.11.2008 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband