þri. 4.11.2008
"Við ætlun BARA að græða"!!!!!
"Ef við töpum þá borgar sauðsvartur almúginn".
Burt með þetta fólk. Allt saman.
Í DV í dag sagði Árni Tómasson skiptastjóri Glitnis aðspurður "hvort ekki væri óheppilegt að stjórnendur gömlu bankanna hefðu tekið við stjórn þeirra nýju" og er þar vísað í mál Birnu Einarsdóttur bankastjóra Glitnis, "sagðist hann í rauninni ekki skilja slíkan málflutning. Það væri mikil þekking sem fylgdi starfsmönnum bankanna og í rauninni ómögulegt að byggja nýju bankana upp á fólki af atvinnuleysisbótum".
Þvílík blaut tuska framan í það fólk sem verið er að senda heim úr bönkunum
Ég vil að Árna Tómassyni verði vísað frá störfum fyrir þessi ummæli STRAX.
Ég vil fá nýja stjórnendur inn í bankana og ég vil að allir þeir sem ætla að láta mig borga brúsann fyrir sig hætti að starfa FYRIR MIG.
Fari bara á atvinnuleysisbætur. Þetta fólk keyrði bankana í það þrot sem þeir fóru í og við treystum því ekki lengur. Þetta fólk á ekki að gera óábyrgt gerða sinna!
Þvílíkt hneyksli og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra blessar yfir þetta!
Styður þetta!
Það er nóg til af hæfu fólki, það er kannski komið í vinnu annars staðar, það er kannski ekki komið á atvinnuleysisbætur ennþá, það er kannski á atvinnuleysisbótum. Það er í öllu falli ekki búið að sölsa undir sig gróða og láta mig svo um tapið.
Ég er alveg til í að skipta við þetta fólk ef það tekur tapið þá skulum við hirða gróðann.
Ríkið það er ég!
Persónulegar ábyrgðir starfsmanna felldar niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Svo sammála þér systir.
Hulda Margrét Traustadóttir, 5.11.2008 kl. 07:13
Hárrétt frænka!
Magnús Þór Jónsson, 5.11.2008 kl. 09:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.