Við vitum þetta

Yfirmaður áhættustýringar Kaupþings tapaði 2 milljörðum (mest tekið á láni) og það voru allar skuldir hreinsaðar við hann og mörg hundruð aðra bankastarfsmenn sem tóku lán frá 10-1000 milljónir til að kaupa hlutabréf, sumir fengu sér cruiser 100 jeppa, fjármögnuðu heimsreisur og lúxus heimili.

Allar skuldir voru hreinsaðar upp svo þeir geti hafið störf í nýju ríkisbönkunum okkar.

Rökin sem FME og ráðamenn færa fyrir þessu er að það sé ómögulegt að manna yfirmannastöður í nýju bönkunum nema þetta sé gert, því lögum samkvæmt mega gjaldþrota einstaklingar ekki starfa fyrir banka!!!

Fyrir mér er þetta stríðsyfirlýsing við okkur venjulegu borgarana í þessu landi sem erum flest með lán í þessum bönkum. Ef skuldir og sukk þessara óreiðumanna eru sópaðar útaf borðinu þá vil ég að það sama gangi yfir alla!!!!!! tugþúsundir töpuðu stórum hluta af sparnaði sínum, tugþúsundir venjulegra hluthafa í bönkunum töpuðu öllu sínu.... ég gæti haldið endalaust áfram....

þetta er hámark spilingarinnar.

 --

Á sama tíma og þetta er gert er heiðarlegu fólki sagt upp hjá bönkunum.

Ég spyr átti ekki að byrja með hreint borð? 

Ég spyr einnig HVAR ER ÞETTA HREINA BORÐ? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þetta er fáránleg staða og nú koma menn og bulla í það óendanlega. Þetta er aumkunarvert lið.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 3.11.2008 kl. 16:25

2 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Maður er hættur að geta tjáð sig um eitt eða neitt, þvílík er spillingin....

Hulda Margrét Traustadóttir, 3.11.2008 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband