þri. 28.10.2008
Morgunblaðið
Morgunblaðið má eiga það að þar koma af og til góðar greinar.
Ég leyfi mér að benda á grein í Morgunblaðinu í gær sem heitir "Upp úr skuldasúpunni" og er eftir Gylfa Zoega og Jón Daníelsson hagfræðinga og prófessora. Greinin er á blaðsíðu 19 og er eins konar "to do list" fyrir ríkisstjórnina. Þeir nefna í fimm liðum aðgerðir til bjargar fyrirtækum og heimilum sem eru mjög athyglisverðar. Það er lofsvert framtak hjá þeim að koma með á mannamáli svo við öll skiljum hvað þeir leggja til og er örugglega mjög brýnt að hlusta á þá.
Í Morgunblaðinu í dag á bls. 24 og er svo athyglisverð grein eftir Magnús Skarphéðinsson skólastjóra m.m. Sú grein heitir "Mjólkurkúnum slátrað" og fjallar um og varar við því hvernig við íslendingar erum gjörn á að slátra trekk í trekk bestu mjólkurkúnum okkar.
Ég hvet alla til að næla sér í þessi blöð og lesa þessar greinar
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.