þri. 17.6.2008
17. júní
Gleðilegan þjóðhátíðardag.
Hæ hó jibbý jei og jibbí ja... Þjóðhátíðardagurinn rennur upp bjartur og fagur hér í Reykjavík.
Ég veit ekkert hvað ég ætla að gera í dag.Það er gott að slaka á og sitja við tölvuna meðan maður er að skipuleggja daginn.
Ég veit þó eitt fyrir víst að ég mun horfa á EM í kvöld. Það er nú allur þjóðrembingurinn! Sitja og horfa á flotta karlmenn elta einn bolta.
Sennilega kíki ég i kaffi til mömmu og pabba en þar kemur fólk gjarnan saman þegar færi gefst.
Börnin og Barnabörnin láta kannski eitthvað sjá sig, kannski ekki, það kemur í ljós.
Ég hef bara áhyggjur af bangsa norður á Skaga. Dýraverndunarsinnar eru á hraðri leið með hann í danskan dýragarð. Það finnst mér ekki góð niðurstaða á Þjóðhátíðardegi okkar íslendinga að hneppa greyið í slíka þrælavist. Þá væri betra að farga honum.
Hafið það reglulega gott í dag . Nær og fjær.
---
Happy national day today , everybody.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:41 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.