Unnið við frágang mynda

Ég er að vinna við frágang málverkanna minna fyrir sýninguna sem verður á Hótel Djúpavík fyrri part sumars.  Það er svo merkilegt að ég klíni alltaf afgöngunum af þeirri vinnu á nýjan striga.

Svona til að eiga grunn fyrir mynd seinna.  Svo horfi ég á strigann og sé mynd út úr klessunum og í höfðinu á mér kemur mynd sem mig langar að setja þar.

Ég sest niður og fer að vinna að hugmyndinni en þá er eins og einhver grípi í taumana og penslarnir mála eitthvað allt annað og oftast miklu betri hugmynd eða útfærslu.

Nú er ég komin með fleiri myndir til að velja úr á sýninguna.  Það er alltaf gott að hafa val.

Þess vegna fagna ég þessu framtaki penslanna minna....Cool   

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Snilldarhugmynd, gangi þér virkilega vel með þetta!

Lára Stefánsdóttir, 21.4.2008 kl. 00:27

2 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Flottir penslar sem þú átt, knús

Svanhildur Karlsdóttir, 21.4.2008 kl. 09:24

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er nokkuð hægt að biðja um myndir hér inn á síðuna þína af verkum þínum, allavega sýnishorn??  ég er forvitin.  Eigðu góðan dag 

Ásdís Sigurðardóttir, 21.4.2008 kl. 13:54

4 identicon

Sæl Vilborg mín. Ekki vissi ég að í þér leyndist listamaður. En er svo sem ekkert hissa - þú ert hæfileikarík. Hver veit nema ég skelli mér til Djúpuvíkur í sumar orðið ansi langt síðan ég fór síðast á Strandirnar.  hvenær er opnunin áformumuð ?

Hugsa oft til þín - vona að allt sé gott. þín Dagbjört.

Dagbjört (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 16:43

5 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Þakka ykkur fyrir fallegu konur. Sýningin er frá 1. júní til 15. júlí á Hótel Djúpavík. Set kannski eitt sýnishorn enn fljótlega en þær sem eru komnar voru ekki fullunnar þegar ég setti þær inn. Knús á ykkur...

Vilborg Traustadóttir, 21.4.2008 kl. 17:05

6 Smámynd: Herdís Sigurjónsdóttir

Ég stefnið að því að fara á sýninguna ... ég fæ kannski gistingu aftur . Krakkarnir tala oft um ferðina góðu í fyrra.

Herdís Sigurjónsdóttir, 22.4.2008 kl. 08:51

7 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Já bara mæta á svæðið, einhvern veginn alltaf nóg pláss!!! ;-)

Vilborg Traustadóttir, 22.4.2008 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband