sun. 25.11.2007
Kim Larsen og Kjukken - Geggjaðir
Það var hreinlega "truflað" að vera á tónleikunum með Kim Larsen og Kjukken í gærkvöldi. Við mættum tímanlega og fengum gott stæði alveg upp við sviðið. Þvílíkur kraftur í "kallinum" og hljómsveitin alveg "dúndur". Ég tók auðvitað myndir og læt nokkrar fylgja með.
Þarna er kappinn mættur til leiks og sést auk þess hnakkasvipurinn á nonnablogg bloggvin sem var að sjálfsögðu mættur með myndavélina.
...sem mætti fráneygður á svæðið.
Við elskum þig Kim farðu vel með hjörtun okkar...
Athugasemdir
Kæra Vilborg, þetta er því miður ekki ég sem sést í hnakkan á efstur myndinni, því það er hann Eggert. Það sé ég á því að ég var búin að taka flassið af vélinni minni og ég var ekki með auka vél hangandi á öxlinni. Ef þú átt fleiri myndir þá væri gaman að vita hvort ég komi fram á þeim en nú ætla ég að reyna að bloga smá um þessa tónleika og birta nokkrar af Kim með. kkv jón
Jón Svavarsson, 25.11.2007 kl. 20:02
Æði - ekki skemmt mér svona vel á tónleikum - ever.....félagsskapurinn skiptir líka svo miklu máli, þvílíkt gaman og Kim er 'OTRÚLEGUR ! Takk fyrir frábæra helgi og námskeiðið í morgun kl. 08.15. var líka dúndur ! Svona á lífið að vera fullt af óvæntum uppákomum og gleði !!!! Á eftir að skila bloggi eftir herlegheitin ...bíður morguns, smá þreyta að gera vart við sig eftir heimferðina sem samt var ljúf og góð miðað við árstíma.
Knús og kossar..... Magga systir.
Hulda Margrét Traustadóttir, 25.11.2007 kl. 20:48
Gaman að sjá þessar myndir. Takk fyrir mig.
Marta B Helgadóttir, 26.11.2007 kl. 19:45
Gaman að skoða myndirnar.
Flottar systur
Stella (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 14:24
oh ég komst ekki. Gaman að sjá hvað þú lítur vel út, líka á myndinni hjá bloggvini þínum Nonna. Eruð þið enn í Hveragerði?
kær kveðja
næst kem ég með postulínsfréttir, jákæðar eða neikvæðar vona það fyrra
G Antonia, 28.11.2007 kl. 18:47
Takk fyrir commentin. Fyrirgefðu ruglinginn Nonni, var alveg viss um hnakkasvipinn!
Vilborg Traustadóttir, 29.11.2007 kl. 08:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.