Jólaföndur

Pólland sept-okt 005Við Solla systir settumst niður í dag og föndruðum nokkra engla.  Á tímabili leit allt eins út fyrir að þetta yrðu "vítisenglar" á leið úr landi.  Munaði þar minnstu að við hringdum í sérsveitina til að aðstoða okkur við að hreinsa til.  Allt kom þetta þó "með kalda vatninu" og hér er afraksturinn festur á mynd.  Tekið skal fram að ég er að pikka hér með einum putta þar sem límið úr nýju límbyssunni heldur hinum 9 í "gíslingu".......

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Mikið hló ég að þessari innsetningu !....Mér sýnist englarnir flottir....en fingurnir hehehehehehe...ég er að deyja úr hlátri.....Þið eruð bestar !!!!!

Vítilenglar ! Mig langar í einn....

Verð að segja þér Vilborg að hér eru "galar" tveir og búnir að vera í kvöld.....annar er svoooooooooooooo sætur að ég hugsaði "Hvernig í ósköpunum, gat ég látið Vilborgu vera án þessa - nema - þannig er, að þú og hann eruð bæði harðgift og hann er að vinna á Íslandi fyrir fjölskyldu sína úti í Port......hann er svoooooo góður viðö Dalí.....................ef ég ætti ekki minn góða mann færi ég að hugsa...... omg...Magga systir

Hulda Margrét Traustadóttir, 6.11.2007 kl. 22:15

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

He he he...þú færð einn með derhúfu og geislabaug..það er alltaf gaman að hitta fallega karlmenn og daðra pínu....pantaði í dag að fá aðgang að sæti á tónleikunum þar sem ég treysti mér (okkur) varla til að standa allann tímann á þeim og einnig að komast backstage hjá Kim Larsen og fá mynd af mér (okkur) með honum og svona...we´ll take it from there...............

 

Vilborg Traustadóttir, 7.11.2007 kl. 01:41

3 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Já, mér finnst englarnir flottir en hvað ég hló alein inni í herbergi......voða gaman hjá mér hehehe.....

Var nú svona létt grín með "galana" þeir voru að horfa á leik með José og hann eldaði fyrir okkur léttan málsverð, þeir tala nú ekki mikið í ensku, svo ég reyndi að rifja upp svolítið í Portugölskunni...en það var bara gaman hjá okkur.

Líst vel á þetta með sæti fyrir þig og myndin, góð hugmynd ! Magga systir

Hulda Margrét Traustadóttir, 7.11.2007 kl. 08:13

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Yndislega krúttlegir englar. Eru puttarnir lausir?  hehehe

Ásdís Sigurðardóttir, 8.11.2007 kl. 01:11

5 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

He he já nú tilheyra puttarnir "bláu höndinni" þar sem ég var í myndlistartíma í kvöld..... 

Vilborg Traustadóttir, 8.11.2007 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband