mán. 3.9.2007
Næstum á Norah
Ég var næstum lent á þessum tónleikum en blessunarlega gekk það ekki eftir. Jú tónleikarnir voru frábærir og sonur minn og tengdadóttir skemmtu sér vel. Fyrir utan að þau sögðu að það vantaði einn þriðja í salinn meðan upphitunarbandið var að spila. Þó söng Norah með þeim. FL-Group hafði boðið mörgum á tónleikana og þau voru með partý við hliðina en sáu ekki ástæðu til að mæta fyrr en Norah sjálf byrjaði formlega. Þetta fannst þeim skemma stemmninguna í salnum. Ástæða þess að ég var næstum komin á tónleikana var sú að tengdadóttir mín nennti skyndilega ekki að fara. Ég á staðinn til að nýta miðann en tókst að koma henni af stað og passaði fyrir þau eins og til stóð. Hringdi svo í manninn minn og sagði að þau hefðu farið og ég væri að passa. Já mér datt það í hug sagði hann, ég kannast nefnilega eitthvað við svona uppákomur einhversstaðar frá sagði hann
.


Góðu fréttirnar eru þær að þau skemmtu sér konunglega en ég engu minna, alsæl með prinsana að fá að syngja fyrir þá.....

![]() |
Norah Jones í Laugardalshöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.