fös. 29.6.2007
Veikindi
Mikið fjandi varð ég veik í fyrrinótt. Fékk þvílíkan krampa, mikinn hita og verki um allt. Aðallega höfuðverk. Staulaðist fram á salernið og ætlaði ekki að hafa mig inn aftur. Vakti manninn minn til að koma mér upp í. Var svo stíf af krömpum. Það tók drjúga stund að vekja hann. Sagði honum þegar hann var að stumra yfir mér að ég væri með stífkrampa. Lá við að ég bæði hann að hafa sambandi við útfrarastofnun til að hola mér beint niður. Svaf í allan gærdag og líka í alla nótt. Er skárri í dag en ætla að hafa mig hæga til að byrja með. Er eitthvað svona að ganga?
Athugasemdir
Ég vona að þér batni fljótt og vel.
Drífa Þöll (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 17:25
Láttu þér nú batna og farðu vel með þig um helgina
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 29.6.2007 kl. 17:28
Æi, þetta var leiðinlegt. Kannski hefur þú líka verið þreytt eftir helgina. Farðu vel með þig og þú kemur fílelfd til baka ef ég þekki þig rétt. Knús á heilsuna.
Var í mestu vandræðum með lillabláu fjöllin á svölunum í dag er sólbökuð og rjóð í glímunni við myndverkin.......stundum fúl !!! En svona er listinn, ekki alltaf jafn auðveld. Vonandi náum við að vinna eitthvað saman í sumar.
Heyrumst. Láttu þér batna. Magga systir.
Magga systir (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 19:05
Takk allir.Alltaf gott að fá góðan hug.
Vilborg Traustadóttir, 29.6.2007 kl. 20:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.