mið. 27.1.2010
"Hvers vegna var Icesave tekið úr sáttaferlinu?"
Athyglisverð grein eftir Eirík Bergman, stjórnmálafræðing í Fréttablaðinu í dag. Hann furðar sig á þeirri ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar að taka málefni Icesave úr sáttafarvegi innan Evrópusambandsins með Brussel viðmiðunum svokölluðu, sem kváðu m.a. á um þverþjóðlega aðkomu fleiri Evrópuríkja að lausn málsins og taka þess í stað upp tvíhliða samninga við Breta og Hollendinga.
Þessi sáttafarvegur gekk út á að leysa málið með aðkomu allra þjóða Evrópusambandsins enda snýst það um sameiginlegar reglur á Evrópska efnahagssvæðinu.
Ég tek undir þetta sjónarmið og skil ekki hvernig hægt var að splundra þessum farvegi í loft upp og setja Svavar Gestsson þess í stað í að leysa málið, nánast upp á eigin spýtur!
Hvet alla til að lesa þessa grein.
Hún er á blaðsíðu 16. Umræðan/Icesave
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:02 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.