þri. 7.4.2009
Hvar er þessi velferðarbrú?
Mér finnst í hæsta máta ósannfærandi að hlusta á þennan málflutning. Fólkið sem ætlaði að koma eins og stormsveipur og slá skjaldborg um heimilin og atvinnulífið, skapa 6000 störf hefur ekki staðið við það.
Þvert á móti hafa 6000 manns misst vinnuna síðan nýja ríkisstjórnin komst til valda.
Kraftar ríkisstjórnarinnar hafa farið í blaður og einelti.
Einelti sem allir flokkar taka þátt í. Nú síðast var ég að horfa á þátt frá mínu kjördæmi Norðvestur og þar talaði fyrir hönd Frjálslynda flokksins Sigurjón Þórðarson og hann sagði aðspurður að sennilega færu Frjálslyndir síst í stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokki.
Ég hafði í hyggju að kjósa Frjálslynda flokkinn vegna þess að mér leist best á Guðjón Arnar og Sigurjón sem menn óháð flokkslínum.
Ég steinhætti við það á stundinni. Mér er alveg sama hvaða nafni flokkur nefnist það á ekki að útiloka fyrirfram neina leið.
Þetta virðist vera eintóna hjá flokkum að ala á reiði gagnvart Sjálfstæðisflokknum sem þó einn flokka hefur farið í heiðarlegt uppgjör innan sinna raða og stokkað rækilega upp á málefnaskrá sinni og kosið nýtt fólk inn á framboðslista sína.
Byggja þarf velferðarbrú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.4.2009 kl. 19:13 | Facebook
Athugasemdir
Hey, einungis sauðir fást til að fara á þing, því að þar eru einungis sauðir sem fæla frá allt gott fólk.
Því fer sem fer.
Ásgrímur Hartmannsson, 7.4.2009 kl. 23:52
Sjálfstæðisflokkurinn á að fá tíma til að skoða innviði sína. Hann er ekki stjórntækur við núverandi aðstæður. Það gerir hann ekkert betri þó aðrir séu ekki nógu góðir. gefum Sjálfstæðismönnum 4 ár í að skoða sín mál ofan í kjölin.
Magnús H Traustason, 10.4.2009 kl. 22:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.