þri. 20.1.2009
Pólitískar ofsóknir-flauelsbylting
Við höfum nú hafið flauelsbyltingu hér á Íslandi a la Úkraína.
Þegar þingheimi loksins þóknaðist að koma saman eftir MÁNAÐAR jólafrí á þessum erfiðu tímum stóð þjóðin á Austurvelli og lét vita að hún vildi breytingar.
Þegar þingheimur tók fyrir sem fyrsta mál á dagskrá á þessum erfiðu tímum frumvarp um að afgreiða áfengi í matvöruverslunum var hann að segja við þjóðina "fock you".
Þegar lögreglan réðst að háskólastúdentum og meisaði þá og handtók, þar sem þeir voru með hendur yfir höfuð sér að hörfa frá, misbeitti hún valdi sínu.
Sú staðreynd að Jón Bjarki Magnússon var þannig handtekinn og hafður í járnum í bílakjallara í 5-6 klukkustundir segir allt sem segja þarf um það mál að pólitískar ofsóknir færast í aukana á Íslandi.
Þær hafa alla tíð viðgengist, það er bara svo erfitt að fela slíkar ofsóknir í hita leiksins.
Ekki stjórnarslit í augnablikinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.