þri. 25.11.2008
Norðurport
Ég tók að mér að sjá um að koma á smá kynningu og/eða samböndum milli aðila í meðfylgjandi máli.Margréti Traustadóttur er að fara af stað með risastórt verkefni sem er Norðurport (hið norðlenska kolaport) á Akureyri.Markaðurinn opnar laugardaginn 6. desember kl 11.00 að Dalbraut 1. Akureyri.Ef einhvern tíma hefur verið þörf fyrir svona starfsemi þá er það nú. Pantanir teknar niður í síma 461 1295 milli klukkan 09.00-12.00 og eftir kl 18.00 vinsamlegast pantið sölubása sem fyrst.Margrét hugsar þetta mikið sem vettvang fyrir fólk að koma saman jafnframt því að gera góð kaup.Hún leggur sál sína í verkefnið og hyggst brydda upp á ýmsum uppákomum og jafnvel hafa sérstaka daga tengda vissum svæðum á landinu (einkum á norðurlandi) þar sem færi gefst á að kynna menningu og listir viðkomandi svæðis samhliða matvöru og öðru sem verið er að bardúsa hverju sinni.Tilvalið fyrir félagsamtök, pláss fyrir kynningar á starfsemi leikfélaga og kóra svo eitthvað sé nefnt, einnig er handverksfólk á Norðurlandi boðið sérstaklega velkomið.Svona starfsemi getur hæglega undið upp á sig á alla kanta og það skiptir miklu máli að fara vel af stað.Símanúmer Margrétar er 461 1295 en hún er einnig með e-mail margr.tr@simnet.isMargrét Traustadóttir er framkvæmdastjóri Norðurports en undirrituð Vilborg Traustadóttir er upplýsingafulltrúi þess.
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Það er einfldlega ekki hægt að fá betri upplýsingafulltrúa. Það sannaðist nú best á ballinu fræga s.l.sumar Takk
Hulda Margrét Traustadóttir, 25.11.2008 kl. 22:36
kvitt á þig Vilborg mín og gangi ykkur vel **
G Antonia, 26.11.2008 kl. 01:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.