fös. 16.11.2007
Þreytt!
Þreytt, þreytt, þreytt. Það er orð dagsins. Tók Hveragerði með stæl í vikunni. Innrituð á þriðjudag og pantaði starx snyrtingar og fór í hjúkkuviðtal. Læknaviðtal á miðvikudag og fékk stundatöflu. Í bæinn á miðvikudag að redda ýmsu m.a. afruglara til að við vinkonurnar sem erum saman á "hælinu" gætum horft á Stöð 2 inni á herbergi og um kvöldið á myndlistarnámskeið sem ég er á í Kópavogi. Átti svo að mæta í tækjasal á fimmtudag en harðneitaði því þar sem snyrtingarnar voru bókaðar þann dag. Maður hefur nú forgangsröðina á tæru. Eftir snyrtingu þurftum við að vasast í að fá nýjan afruglara eða öllu heldur gamlan afruglara þar sem digital er ekki á Heilsuhælinu. Sennilega tók um þrjár klukkustundir að stilla hann inn með Og Vodafone á línunni. Það gekk hvorki né rak og síminn var "sveittur" þegar ég tók við að reyna að stilla eftir að Kristín hafði verið í beinu sambandi í meira en klukkutíma. Svo kom í ljós að það hafði gleymst að tilkynna gamla afruglarann og því var ekki búið að opna fyrir hann. Skrýtið og við sáum aldrei beljuna! Stundataflan í heilsumálunum hjá mér hófst svo fyrir alvöru í dag og tækjasalurinn með. Sjúkraþjálfun næsta mánudag. En það sem ég er þreytt núna. Kristín vinkona sömuleiðis. Við hengsluðumst hálf slefandi af þreytu út í bíl og heim. Þegar við komum yfir heiðina datt mér í hug að fara í ToysaRus. Gerðum það og þaðan í Just4Kids. Því næst hélt hver heim til sín og ekki laust við að þessi "verslunarauki" hafi sett punktinn yfir þreytumörkin! Fékk tvo ömmustráka í pizzuna og yndilegt að sjá þá. Ferð að sofa þreytt og sæl eftir dagsins önn.
Athugasemdir
Ó! Er svona mikið púl að vera í Hveragerðishvíldardvöl
Marta B Helgadóttir, 16.11.2007 kl. 20:20
Greinilega ekkert grín að hvíla sig frá stressinu! Kveðja úr heilsubænum Snæfellsbæ. Muna að horfa á Útsvar á föstudaginn.
Magnús Þór Jónsson, 17.11.2007 kl. 10:10
Ofgerðu þér ekki í öllu heilsubröltinu ! Þú verður að afrugla þig fyrir öllu öðru á meðan þú ert á hælinu En svo er það myndlistin !! Gangi þér sem best.
Missti ég af einhverju í Útsvari ??
Magga systir
Hulda Margrét Traustadóttir, 18.11.2007 kl. 13:15
Maggi er að keppa fyrir Snæfellsbæ.
Vilborg Traustadóttir, 18.11.2007 kl. 20:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.