mán. 29.10.2007
Bloggvinkona kig58
Bloggvinkona Kristín er jafnframt elsta og besta vinkona mín. Við höfum siglt í gegn um súrt og sætt saman og það væri að æra óstöðugan að ætla að segja einhverjar sögur af henni eða okkur saman. Ég hef auk þess nú þegar sagt svo margar af okkar uppátækjum að ég held að nóg sé komið. Það má um okkar vináttu segja að við erum það nánar að við dettum strax í gírinn þegar við hittumst og eyðum saman einhverjum tíma. Við þekkjumst það vel að við vitum eiginlega alveg hvað hin er að hugsa og stundum gerum við ósjálfrátt það sem hin var að undirbúa. Gaman að eiga bloggvinkonu og bestu vinkona í sömu manneskju.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.