mið. 12.9.2007
Pólitískir forsvarsmenn stofnana
Ég fór að hugsa enn og aftur um vald pólitískra forsvarsmana stofnana á vegum hins opinbera eftir Ísland í dag - í gær. Þar skiptust þær Guðrún Elsa Smáradóttir samfylkingu og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir sjálfstæðisflokki á skoðunum um málefni leikskólanna og þá manneklu sem mikið hefur verið rædd undanfarið. Ég ætla ekki að gera lítið úr manneklunni en ósjálfrátt leitar hugur minn að ástæðum fyrir hve mikið er gert úr henni nú? Það skyldi þó ekki vera vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn fer með stjórnartaumana í borginnu? Gæti hugsanlega verið að pólitískir vinstri forsvarsmenn stofnana séu farnir að taka í árar með minnihlutanum í borginni? Ef svo gæti nú hugsanlega verið hver er þá ábyrgð þeirra?
Og hver er þá ábyrgð þeirra lýðræðislega kjörnu fulltrúa sem spila þannig á stofnanirnar?
Það væri algerlega ólíðandi ef þó ekki væri nema smá stirðleika í að koma börnum á leikskóla mætti rekja til þeirrar ástæðu. Ég tala nú ekki um ef börn eru send heim til að þrýsta á í flokkspólitískum tilgangi. Ég þekki sjálf úr heilbrigðisgeiranum tilraunir aðila af vinstri vængnum til að misnota aðstöðu sína í þessum tilgangi. Þá var Öryrkjabandalagið undir forystu Garðars Sverrissonar búið að fá forstöðumann dagvistar MS sjúklinga Þuríði R. Sigurðardóttur til að spila með í þannig upphlaupi í stað þess að leita lausna hjá þeim sem höfðu með málaflokkinn að gera.
Nei og aftur nei kæru vinstri-vinir við viljum lausnir í málefnum leikskólannna en ekki pólitískan skrípaleik sem reynir að láta þá sem eru að vinna að málinu líta illa út. Vona að ég sé að segja einhverja vitleysu en mikið lyktar þetta nú þannig samt.Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:09 | Facebook
Athugasemdir
Það er alltaf pólitík og kritur í gangi í svona fréttamálum.
Ásdís Sigurðardóttir, 12.9.2007 kl. 22:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.