fös. 8.6.2007
Sekt
Fór á þriðjudaginn og borgaði sekt á lögreglustöðinni. Þannig er mál með vexti að við systurnar og systurdóttir mín fengum okkur bíltúr upp í Borgarnes og Akranes. Ég ók. Í Hvalfjarðargöngunum fylgdum við umferðinni nokkuð vel eftir. Allt í einu kom blossi! Við veltum fyrir okkur hvað þetta hafi verið. Ég var heppin að missa ekki stjórn á bílnum. Þetta var svo rosalegur blossi. Við komum okkur saman um að þetta hlyti að hafa verið hraðamyndavél. Systurdóttir mín hrökk við. Hún hafði verið að bora í nefið!
Við létum þetta þó ekki skemma góða ferð. Fengum hrossakjöt í Borgarnesi hjá Ingu og Kela og fórum svo í lambakjöt á Akranesi hjá Ödda (oddikennari) syni Sollu systir. Svo kom bréf. Ég hafði mælst á 82 km hraða (má vera á 70 km í göngunum). Sekt allt að 20.000 kr. Ég fór á lögreglustöðina og var spurð hvort ég hefði séð myndina. Ég sagði nei eins og satt var en ég hefði verið á bílnum. Greiddi 7.500 kr sekt. Hvers vegna er 70 km hámarkshraði þarna? Ég hefði haldið að það væri meiri slysahætta að mynda langar raðir við og í göngunum heldur en að hafa 90 km hámarkshraða þar inni. Eins og á öðrum vegum. Það sem ég er hins vegar að velta fyrir mér núna er hver fær sektargreiðsluna? Þetta er einkavegur!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.