mið. 16.5.2007
Uppstigningadagur
Á morgun er uppstigningardagur. Dagurinn sem Frelsarinn steig upp til himna. Dagurinn sem segir okkur að eftir erfiðleika og böl er til lausn. Það voru nú engir smávegis erfiðleikar sem hann lenti í. Var krossfestur af lýðnum, grýttur og hrakinn. Auðmýktur og kvalinn. Hann úthellti blóði sínu fyrir mig og fyrir þig. Mannvonska okkar ætti því að hafa stöðvast þar og þá. Það gerði hún ekki. Því er okkur öllum hollt að leiða hugann að því og hugsa með okkur. Hvað get ÉG gert í málinu? Því ef allir gera það er líklegt að við eignumst betri heim.
-
Á MORGUN.
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:15 | Facebook
Athugasemdir
Til hamingju með daginn Vilborg, og hafðu það gott í dag, sem og hellst alla aðra daga.
Sigfús Sigurþórsson., 17.5.2007 kl. 01:03
Takk fyrir og sömuleiðis Sigfús. Emil það er mikið sem þú leggur af mörkum og léttir fyrir okkur hin.
Vilborg Traustadóttir, 17.5.2007 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.