þri. 27.3.2007
Bloggvinkona trukona
Nýjasta bloggvinkona mín er trukona eða G. Helga Ingadóttir. Ákaflega sviphrein og falleg kona sem ber af sér góðan þokka. Ég hef nýlega lesið bókina "Ein til frásagnar" sem hún lýsir svo vel á bloggi sínu. Þær tilfinningar sem hún lýsir eru þær sömu og bærðust með mér þegar ég las bókina. Trúin á guð og lífið verður hatrinu yfirsterkari í bókinni og það kemst vel til skila. Ég mun pottþétt koma við á Hvolsvelli þegar ég á leið þar um næst og kíkja við á Eldstó Café eða í Húsi Leirkerasmiðsins þar í bæ.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.