Vefurinn hennar Karlottu

Nú fjölmmennum við á "Vefinn hennar Karlottu" á eftir.  Elsti sonur minn grét sig í svefn margar nætur eftir að myndin var sýnd um jólaleytið þegar hann var c.a.fjögurra ára.  Endirinn var svo sorglegur fannst honum.  Nú er hann 32 ára og við buðum honum sem heiðursgesti á myndina.  Ætlum að fara saman 12 manns frá aldrinum eins til 55. Cool (Solla systir) svo þið haldið ekki að það sé ég, ég er "bara" 50, hehe. Geir Fannar hringdi í elsta bróður sinn til að láta hann vita að hann kæmi með nóg tissjú handa honum.Crying   Hlakka til að fara með hópinn minn.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Agný

Skemmtið ykkur vel en kanski svona gaman með alvöru..eins og lífið er svo oft..einmitt kanski "Vefur lífsins"...

Agný, 18.3.2007 kl. 14:04

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Ákaflega falleg mynd og allir góðir frá eins árs og upp úr.  Ótrúlega áhugasamir sem þýðir góð og vel heppnuð mynd.  Það vorum við Solla systir sem notuðum tissjúið.. Tíu vasaklúta mynd á okkar mælikvarða.  Gaman að svona samverustund. Takk allir sem komu með.

Vilborg Traustadóttir, 18.3.2007 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband